Fleiri fréttir

Leikmenn Man. Utd í fótboltakeilu

Þeir Dimitar Berbatov, Ashley Young og Patrice Evra tóku á dögunum þátt í skemmtilegri auglýsingu þar sem þeir skella sér í fótboltakeilu.

KR-ingar ætla að fagna á Rauða ljóninu

KR-ingar ætla að gera sér glaðan dag á morgun og fagna tvennunni með stuðningsmönnum sínum með stæl. Sigurhátið KR-inga mun fara fram á Rauða ljóninu.

Dofri samdi við KR til 2013

Dofri Snorrason skrifaði í dag undir nýjan samning við Íslands- og bikarmeistara KR og gildir sá til loka tímabilsins 2013.

Fyrsta tap Drott á tímabilinu

Sænska liðið Drott tapaði í kvöld sínum fyrsta leik á tímabilinu í sænsku úrvalsdeildinni. Liðið tapaði þá fyrir Ystad á útivelli, 29-26.

Button: Verður tilfinningaþrungið að keppa í Japan

Bretinn Jenson Button hjá McLaren segir Japan vera sinn annan heimavöll í Formúlu 1, en hann á japanska kærustu sem heitir Jessica Mishibata. Hún er þekkt fyrirsæta í sínu heimalandi og þau skötuhjú dvelja þar oft á tíðum. Um tíma var óljóst hvort Formúlu 1 mótið í Japan gæti farið fram vegna náttúruhamfaranna sem urðu í landinu í mars, en Button telur að mótsthaldið geti gefið japönsku þjóðinni styrk, en miklill áhugi er á Formúlu 1 í Japan.

Arnór markahæstur í tapleik

Nokkrir leikir fóru fram í þýska handboltanum í kvöld, bæði í úrvalsdeild og B-deildinni. Grosswallstadt tapaði naumlega á heimavelli fyrir Flensburg í eina úrvalsdeildarleik kvöldsins, 21-20.

Öruggur sigur Vals gegn Stjörnunni

Valur átti ekki í teljandi vandræðum með Stjörnuna í fyrsta leik tímabilsins í N1-deild kvenna. Staðan í hálfleik var 10-7, Völsurum í vil.

Stefán skoraði í 5-2 tapleik

Stefán Gíslason lék í kvöld sinn fyrsta leik með Lilleström eftir að hann samdi við félagið á ný og skoraði hann í 5-2 tapi gegn Rosenborg.

Daníel og Christiansen gerðu nýja samninga

Tveir leikmenn í Pepsi-deild karla gerðu í dag nýja samninga við sín félög. Þetta eru þeir Daníel Laxdal, Stjörnunni, og Daninn Rasmus Christiansen hjá ÍBV.

Del Bosque skilur ekkert í David Silva

Spænski landsliðsþjálfarinn Vicente del Bosque er allt annað en sáttur við ummæli David Silva sem sagði að hann myndi pottþétt fá fleiri tækifæri með landsliðinu ef hann spilaði með Barcelona eða Real Madrid.

Tom Hicks og George Gillett enn að kæra eigendur Liverpool

Draugur fyrrverandi eigenda Liverpool hangir enn yfir félaginu. Bandaríkjamennirnir Tom Hicks og George Gillett mættu til Liverpool borgar í gærkvöldi og lögðu fram kæru á hendur núverandi eigendum. Gillet og Hicks voru þvingaðir til að selja Liverpool að skipun dómstóla fyrir tæpu ári. Þeir kalla söluna sögulegt svindl og fara fram á hundruð milljóna punda í skaðabætur.

Óli Þórðar stýrir Fylki gegn FH á morgun

Þó svo Ólafur Þórðarson sé á förum frá Fylki þá mun hann klára tímabilið með félaginu og stýra því gegn FH í lokaumferð Pepsi-deildar karla á morgun.

Kobe Bryant valdi það að gera 40 daga samning við Bologna

Kobe Bryant hefur gert munnlegan samning við ítalska félagið Virtus Bologna um að spila með liðinu á meðan verkfallið í NBA-deildinni stendur yfir. Claudio Sabatini, forseti Virtus Bologna lét hafa það eftir sér að það séu 95 prósent líkur á því að Bryant spili með liðinu.

Kröfluflugurnar sterkar í sjóbirtinginn

,,Aðstæður voru mjög erfiðar og við höfum oft veitt meira í Húseyjarkvísl. Sjóbirtingsveiðin var þó ágæt og fínir birtingar inn á milli. Enn og aftur voru það Kröfluflugurnar sem voru að skila okkur þessum fiskum enda eru þær mjög sterkar í sjóbirtingsveiðinni ekki síður en laxveiðinni,“ sagði Hörður Birgir Hafsteinsson en hann og félagar hans voru að ljúka veiðum í Húseyjarkvísl. Þetta var næst síðasta hollið á laxasvæðinu í ánni. Alls fékk hollið 3 laxa og 10 sjóbirtinga.

Elísabet heldur áfram með Kristianstad næsta sumar

Elísabet Gunnarsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Kristianstad og verður áfram þjálfari sænska liðsins. Elísabet er að klára sitt þriðja tímabil með Kristianstad en liðið er nú í 6. sæti deildarinnar með 31 stig í 19 leikjum. Þetta kemur fram í staðarblaðinu í Kristianstad.

Carlos Tevez neitar að biðja Mancini afsökunar

Carlos Tevez segir að hann hafi enga ástæðu til að biðja Roberto Mancini afsökunar og heldur því fram að liðsfélagar sínir muni standa með honum í deilunni við stjórann. Þetta hefur BBC eftir leikmanninum en blaðamenn máttu ekki spyrja Roberto Mancini út í Tevez-málið á blaðamannfundi í dag.

Hvert getur Carlos Tevez farið í janúar?

Carlos Tevez mun örugglega fara frá Manchester City í janúar en hvert getur litli argentínski vandræðagemlingurinn farið eftir allt það sem á undan er gengið.

Dzeko búinn að biðja Mancini og liðsfélagana afsökunar

Bosníumaðurinn Edin Dzeko hefur beðist afsökunar fyrir reiðikast sitt á varamannabekknum eftir að Roberto Mancini skipti honum útaf í tapleik Manchester City á móti Bayern Munchen í Meistaradeildinni á þriðjudaginn. Öll athyglin hefur verið á hegðun Carlos Tevez og mál Dzeko hefur því ekki verið mikill fjölmiðlamatur.

Paul Scholes skilur hvað Carlos Tevez var að hugsa

Paul Scholes, fyrrum leikmaður Manchester United og fyrrum liðsfélagi Carlos Tevez, segist skilja það af hverju Carlos Tevez neitaði að fara inn á völlinn á móti Bayern Munchen á þriðjudaginn. Scholes neitaði á sínum tíma að spila fyrir Sir Alex Ferguson í deildarbikarleik árið 2001.

Roberto Mancini vill skipta Tevez út fyrir Van Persie

Guardian segir frá því í morgun að Roberto Mancini, stjóri Manchester City, sér þegar búinn að finna sér eftirmann Carlos Tevez hjá félaginu. Mancini ætlar sér nefnilega að kaupa Robin Van Persie frá Arsenal í janúar.

Mjög gott veiðisumar í Fnjóská

Laxveiðisumarið var mjög gott í Fnjóská, en að sögn Ingvars Karls Þorsteinssonar hjá Flúðum eru skráðir laxar að minnsta kosti 650 talsins. Þetta kemur fram í Flugufréttum Flugur.is í dag.

KR-ingar Reykjavíkurmeistarar í körfubolta

KR-ingar urðu í gær Reykjavíkurmeistarar í körfubolta eftir 106-96 sigur á Fjölni í úrslitaleik sem fram fór í Seljaskólanum. Þetta kemur fram á karfan.is

Tíu marka maður fjögur ár í röð

Atli Viðar Björnsson hefur raðað inn mörkum í FH-liðinu undanfarin ár og hefur nú náð einstökum árangri í efstu deild á Íslandi. Atli Viðar er fyrstur til að ná fernunni – að skora tíu mörk eða fleiri fjögur sumur í röð.

Guðjón Pétur átti góða innkomu í leik með Helsingborg í kvöld

Guðjón Pétur Lýðsson á góðan möguleika á því að gerast tvöfaldur meistari í Svíþjóð eftir að liðið tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum sænsku bikarkeppninnar með 2-0 sigri á Elfsborg. Guðjón Pétur kom inn á í leiknum í kvöld og stóð sig vel.

Malmö tapaði á Ítalíu

Sænsku meistararnir í Malmö töpuðu í kvöld fyrir ítalska liðinu Tavagnacco í fyrri viðureign liðanna í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvennaflokki.

Fangelsisdómur vofir yfir Ben Wallace

Ben Wallace, leikmaður Detroit Pistons í NBA-deildinni, er í vondum málum og gæti átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsisdóm.

Sigfús: Fórum vel yfir málin í hálfleik

„Þetta var fínn sigur hjá okkur en töluverður haustbragur á okkar leik,“ sagði Sigfús Sigurðsson, leikmaður Vals, eftir sigurinn á Aftureldingu í kvöld.

Sjá næstu 50 fréttir