Handbolti

Sigfús: Fórum vel yfir málin í hálfleik

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Þetta var fínn sigur hjá okkur en töluverður haustbragur á okkar leik,“ sagði Sigfús Sigurðsson, leikmaður Vals, eftir sigurinn á Aftureldingu í kvöld.

„Afturelding var betra liðið í fyrri hálfleiknum og spiluðu bara virkilega vel, en við vorum aldrei langt frá þeim“.

„Við fórum vel í gegnum okkar mál í hálfleiknum og komum virkilega grimmir til leiks út í þann síðari“.

Sigfús Sigurðsson lék í þýsku 2. deildinni á síðustu leiktíð með Emsdetten og þótti standa sig vel.

„Ég ákvað fyrst það gekk svona vel hjá mér á síðustu leiktíð að fara á fullt aftur í boltann, ég er í fínu standi og get vonandi gert eitthvað fyrir liðið“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×