Fleiri fréttir

Yfir 2000 kjúklingar drepast á Trínidad

Yfir tvö þúsund kjúklingar hafa drepist á karabísku eyjunni Trínidad á síðustu fimm dögum. Mikil skelfing hefur gripið um sig meðal íbúa eyjunnar.

Evrópuþjóðir og Bandaríkjamenn fordæma ákvörðun Írana

Ríkisstjórnir Evrópusambandsríkjanna og Bandaríkjanna hafa margar hverjar fordæmt ákvörðun Íransstjórnar um að halda áfram með kjarnorkurannsóknir sínar. Vöruðu þær Írana við að Sameinuðu þjóðirnar gætu refsað stjórnvöldum með einhverjum hætti.

Fjórir slösuðust í sprengingu

Fjórir slösuðust, þar af einn alvarlega, þegar gassprenging varð í verslunarmiðstöð í bænum Utrecht í Hollandi í dag. Sprengingin varð í mannlausri lyfjaverslun.

Íranir rufu innsiglin

Kjarnorkuáætlun Írana er komin af stað á nýjan leik, Bandaríkjamönnum og Evrópusambandinu til mikillar gremju. Vesturlönd óttast að Íranar ætli að þróa kjarnavopn en þeir sverja og sárt við leggja að vinnslan sé í friðsamlegum tilgangi.

Lífstíðarfangelsi fyrir að nauðga 12 vikna barni

Fertugur karlmaður, sem nauðgaði 12 vikna barni með hjálp kærustu sinnar sem átti að gæta barnsins, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Nítján ára unnusta hans hefur verið dæmd til fimm ára fangelsisvistar.

Seinheppinn bankaræningi

Seinheppinn ræningi í Salt Lake City í Bandaríkjunum skipulagði rán illa og uppskar í samræmi við það.

Kjarnorkuáætlun Írana af stað á ný

Kjarnorkuáætlun Írana er komin af stað á nýjan leik, Bandaríkjamönnum og Evrópusambandinu til mikillar gremju. Vesturlönd óttast að Íranar ætli að þróa kjarnavopn en þeir sverja og sárt við leggja að vinnslan sé í friðsamlegum tilgangi.

Svik og prettir vísindamannsins

Svik og prettir er einkunnin sem verk Hwangs Woos-suks, eins virtasta fræðimanns heims á sviði stofnfrumurannsókna fékk í dag. Þetta er áfall fyrir rannsóknir í lífvísindum, segir íslenskur sérfræðingur á þessu sviði.

Úkraínska stjórnin fallin

Úkraínska þingið samþykkti vantraust á ríkisstjórn landsins með 250 af 450 atkvæðum í atkvæðagreiðslu í dag. Ástæðan fyrir vantraustinu er gassamningurinn sem stjórnin gerði við Rússa sem hefur í för með sér að Úkraína þarf að greiða hærra verð fyrir það gas sem hún fær. Viktor Jústsjenkó forseti ætlar að láta stjórnarskrárdómstól landsins kveða úr um lögmæti atkvæðagreiðslunnar.

Hús rýmd í Kaupmannahöfn vegna sprengjuhótunar

Danska lögreglan rýmdi í dag fjölda húsa í Kristjánshöfn og Kristjaníu í Kaupmannahöfn vegna sprengjuhótunar. Óttast var að sprengju kynni að vera að finna í bíl á svæðinu.

Sharon sýnir frekari batamerki

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sýndi frekari batamerki í dag þegar hann hreyfði vinstri hlið líkamans í fyrsta sinn síðan hann fékk mikið heilablóðfall í síðustu viku.

Íranar ætla að auðga úran á ný

Mohamed ElBaradei, yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar, greindi stjórn stofnunarinnar frá því í dag að Íranar ætluðu að hefja auðgun úrans á ný en þó ekki af fullum krafti. Þetta gengur í berhögg við fyrri yfirlýsingar stjórnvalda í Teheran en fulltrúar þeirra hafa neitað því að hefja ætti framleiðslu á kjarnorkueldsneyti í Natanz-kjarnorkurannsóknarstöðinni.

Segist hafa stjórn á fuglaflensunni

Tyrknesk stjórnvöld hafa náð tökum á útbreiðslu fuglaflensu sagði Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands. "Við höfum stjónr á ástandinu og höldum áfram að fylgjast vandlega með því. Þeir sem hafa smitast eru ekki langt leiddir og því er ekki mikil hætta á ferðum að svo stöddu."

Nauðgaði tólf vikna barni

Fertugur breskur karlmaður sem nauðgaði tólf vikna barni með hjálp kærustu sinnar sem átti að passa barnið hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Nítján ára unnusta hans hefur verið dæmd til fimm ára fangelsisvistar.

Ekki jafn mikil hætta í Tyrklandi og talið var

Niðurstöður rannsókna á sýnum úr tólf sjúklingum í Istanbúl í Tyrklandi benda ekki til að þeir séu með fuglaflensusmit eins og óttast var. Mikil skelfing hefur gripið um sig í landinu vegna málsins sem og í nágrannalöndunum, Búlgaríu og Grikklandi, en heilbrigðisráðherrar Evrópusambandsríkjanna segja þó ekkert að óttast.

Flest börn fæðast eftir miðsumarhátíðina í Svíþjóð

Árið 2004 var metár í hjónavígslum í Svíþjóð en þá giftu sig 43.088 pör. Svo mörg pör hafa ekki gengið í hjónaband á einu ári síðan árið 1989 samkvæmt upplýsingum frá hagstofunni í Svíþjóð. Flestar hjónavígslurnar eða um tæplega 1500 talsins urðu á heitasta degi ársins það árið sem var 7. ágúst. Þá fæddust felst börn 30.mars sem er níu mánuðum frá miðsumarhátíðinni sem er stór og mikil árleg hátíð í Svíþjóð. Fæst börn fæddust 20. nóvember eða einungis 187 börn.

Mörg veðmál í gangi í tengslum við skírn Danaprinsins

Það styttist í konunglega skírn í Danmörku en sonur Friðriks Krónprins og Mary Krónprinsessu verður skírður 21. janúar næstkomandi. Hjá veðbankanum Nordicbet eru hin ýmsu veðmál í gangi varðandi skírnina. Þar er til að mynda veðjað um nafn litla prinsins en Christian þykir líklegt nafn svo það gefur ekki mikið af sér en veðji maður sem nemur 1000 íslenskum krónum, þá verður uppskeran um 1200 krónur verði prinsinn skýrður Christian.

Þingkosningar framundan í Palestínu

Þingkosningar verða haldnar í Palestínu þann 25. janúar en Ísraelar hafa lýst því yfir að þeir muni ekki koma í veg fyrir að Palestínumenn, sem búsettir eru í Jerúsalem fái að taka þátt í kosningunum eins og þeir höfðu boðað áður.

Tíu menn handteknir í Madríd

Tíu menn voru handteknir í Madríd, höfuðborg Spánar og Baskalandi í morgun, grunaðir um að afla nýliða meðal múslíma, til að gera árásir í Írak. Samkvæmt spænskum fjölmiðlum er einn mannanna talinn tengjast árás á ítalska herlögreglu í suður Írak árið 2003 en sjálfsvígssprengja lagði í rúst ítalska bækistöð og felldi átján Ítala og níu Íraka.

Lífshættuleg snjóþyngsli í Japan

Að minnsta kosti 72 hafa látist vegna mikilla snjóa í Japan síðan í byrjun desember. Aldrei hefur snjóað jafn mikið en næstum fjórir metrar af snjó hafa fallið í landinu á þessum fimm vikum.

Tólf handtökur vegna kókaíns í Kaupmannahöfn á árinu

Kókaín virðist vinsælt sem aldrei fyrr í Kaupmannahöfn það sem af er þessu ári. Þótt aðeins sé rétt rúmlega vika liðin síðan nýtt ár gekk í garð hafa nú þegar tólf manns verið handteknir í dönsku höfuðborginni frá árámótum fyrir smygl eða sölu á kókaíni.

Yfir 230 látnir

Yfir 230 manns eru látnir af völdum kuldakasts í Suður-Asíu að því er yfirvöld á Indlandi greindu frá í dag. Það er einkum heimilislaust fólk á Indlandi og í Bangladesh og Pakistan sem hefur dáið úr kuldunum, sem geisað hafa síðan í nóvember á Norður-Indlandi. Kuldabylgjan hefur náð til Nýju Delhí, höfuðborgar Indlands, en á sunnudaginn var kuldinn í borginni meiri en nokkru sinni í 70 ár.

Kona dæmd fyrir rekstur vændishús í Danmörku

Kona var í dag dæmd í árs fangelsi og 150 stunda samfélagsvinnu í Danmörku fyrir að hafa rekið vændishús í Rødovre í nágrenni Kaupmannahafnar. Talið er að konan hafi auðgast sem nemur 10 milljónum íslenskra króna, jafnvel mun meira, en ekki var hægt að sýna fram á hversu háar fjárhæður hún hafði raunverulega haft upp úr þessu ólöglega athæfi sínu.

Talibanar hóta áframhaldandi árásum í Afganistan

Leiðtogi Talibana í Afganistan, Mohammad Omar, sagði í gær að heilögu stríð gegn bandaríska hernámsliðinu í landinu yrði haldið áfram. Ásrásir myndu færast í aukana á nýju ári og ekki linna fyrr en Bandaríkjamenn væru farnir frá Írak. Omar, sem hefur farið huldu höfði síðan Talibana-stjórnin var hrakin frá völdum í lok árs 2001, sagði að Bandaríkjamenn væru höfuðóvinir Islam.

Myrti fyrrum samstarfsmenn sína og skaut svo sjálfan sig

Tveir öryggisverðir féllu og einn særðist þegar fyrrum samstarfsmaður þeirra skaut þá á pósthúsi í miðborg Madridar, höfuðborgar Spánar í gær. Ekki hafa fengist upplýsingar um ástæðu morðanna en maðurinn, sem var 35 ára og var í veikindaleyfi, framdi sjálfsmorð eftir að hafa drepið mennina. Að sögn lögreglu er rannsókn hafin en talið er að hann hafi átt við andlega erfiðleika að etja.

Sprengja á veitingastað í San Fransisco

Sprengja fannst á einum veitingastað Starbucks kaffihúsakeðjunnar í San Fransisco í gær. Það var einn starfsmaður veitingastaðarins sem fann hana á baðherbergisgólfi staðarins. Var húsið því rýmt og sprengjusérfræðingar kallaðir til sem aftengdu sprengjuna. Ekki er vitað hver kom henni fyrir en að sögn lögreglunnar þar í borg hefði hún valdið miklu tjóni, hefði sprengjan sprungið. Engin viðvörun barst og er málið í rannsókn.

Fjöldaslátrun á fuglum fyrirhuguð í Istanbul

Niðurstöður rannsókna á sýnum úr 12 sjúklingum í Istanbúl í Tyrklandi benda ekki til þess að þeir séu með fuglaflensusmit. Fjöldaslátrun á fuglum er fyrirhuguð í nokkrum úthverfum Istanbul, fjölmennustu borg landsins, þar sem fátækir íbúar, sem flutt hafa til borgarinnar fá sveitum landsins, búa. En þeir ala fugla sér til viðurværis.

Læknar vonast til að Sharon vakni í dag

Ariel Sharon forsætisráðherra Ísraels andar sjálfur og bregst við áreiti. Hann hreyfði bæði fót og handlegg þegar læknar könnuðu viðbrögð hans í gær. Sharon hefur verið haldið sofandi, en smám saman hefur verið dregið úr svefnlyfjaskammti hans og vonast læknar til að hann vakni í dag. Þeir segja hann þó enn vera þungt haldinn.

Fuglaflensutilfellum fjölgar enn

Fuglaflensutilfellum heldur áfram að fjölga í Tyrklandi og virðist fátt geta stöðvað för þessarar skaðræðisflensu vestur á bóginn. Þótt smithættan fari vaxandi telur Haraldur Briem sóttvarnalæknir ekki ástæðu til að vara við ferðum til landsins.

Geðsjúkur maður ógnaði fólki með hníf í Albertslundi í Danmörku

Geðsjúkur maður, sem lögreglan í bænum Albertslund, skammt frá Kaupmannahöfn, skaut á sunnudag, lést í dag af sárum sínum. Maðurinn ógnaði fólki með hníf og á flótta sínum veitti hann sjálfum sér áverka. Lögregla skaut hann síðan í fæturna til að stöðva flóta hans.

Dæmdur fyrir morð á ferðamönnum

Dómari í Afríkuríkinu Úganda sakfelldi í dag uppreisnarmann fyrir morð á 8 ferðamönnum og einum innfæddum leiðsögumanni sem voru í hópi 30 ferðamanna sem voru að ferð um þjóðgarð í Úganda árið 1999.

Sharon sýni lífsmark í fyrsta sinn í dag frá heilablóðfalli

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sýndi lífsmark í dag, í fyrsta sinn frá því að hann fékk alvarlegt heilablóðfall á miðvikudaginn. Hann er enn tengdur við öndunarvél og læknar eru ekki tilbúnir að fullyrða að hann sé úr lífshættu.

Björk sérvitrust

Breska tímaritið, Homes and antiques, hefur valið íslensku söngkonuna Björku Guðmundsdóttur sérvitrustu dægurstjörnu heims. Um sex þúsund lesendur blaðsins tóku þátt í valinu og lagði Björk ekki ómerkari stjörnur en rokkarann Ozzy Osbourne og tískuhönnuðinn Vivienne Westwood.

Olmert líklegri til að semja um frið

Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels, er líklegri en Ariel Sharon til að semja um frið við Palestínumenn. Þetta segir palestínskur kennari sem hefur þekkt Olmert síðan hann var borgarstjóri í Jerúsalem.

Sharon sýnir lífsmark

Ariel Sharon sýndi lífsmark í dag, í fyrsta sinn frá því að hann fékk alvarlegt heilablóðfall á miðvikudaginn. Hann er enn tengdur við öndunarvél og læknar eru ekki tilbúnir að fullyrða að hann sé úr lífshættu. Þórir Guðmundsson fréttamaður er í Jerúsalem.

Hostel vinsælust vestanhafs

Hostel, kvikmynd Íslandsvinsins Elis Roths, fékk mesta aðsókn allra kvikmynda í Bandaríkjunum um helgina. Samtals greiddi fólk 20,1 milljón dollara, andvirði um 1.230 milljóna króna, í aðgangseyri. Myndin fékk því meiri aðsókn en stórmyndirnar The Chronicles of Narnia sem var í öðru sæti og King Kong sem var í þriðja sæti en báðar hafa þær tekið inn um og yfir 200 milljónir dollara í aðgangseyri.

Lést í París Dakar rallinu

Ástralskur mótorhjólakappi lét lífið í slysi í níundu akstursleið í París Dakar rallinu í dag. Andy Caldecott varð 23. keppandinn frá upphafi til að láta lífið í keppninni sem er nú haldin í 28. skipti.

Sex ára smitast af fuglaflensu

Sex ára kínverskur piltur hefur smitast af H5N1 afbrigði fuglaflensunnar og gengst nú undir læknismeðferð á sjúkrahúsi í Hunan héraði. Kínversk yfirvöld hafa staðfest að um fuglaflensu sé að ræða og er pilturinn áttunda kínverska manneskjan sem smitast af sjúkdómnum.

Ráðist að innanríkisráðuneyti Írak

28 hafa látist í sprengjuárásum í Írak það sem af er degi. Tvær sjálfsmorðsárásir voru gerðar í landinu í morgun í innanríkisráðuneyti landsins, í öðru tilvikinu þótti öryggisvörðum maðurinn óvenju sver um sig miðjan og grunaði því að hann bæri sprengiefni. Þeir

Maltverjar hamingjusamastir í heimi

Möltubúar eru hamingjusamastir allra þjóða samkvæmt árlegri hamingjukönnun Erasmus-háskólans í Rotterdam í Hollandi. Íslendingar eru tiltölulega hamingjusamir eða 63% þjóðarinnar.

Cheney fluttur á sjúkrahús

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, var fluttur með hraði á sjúkrahús í morgun vegna öndunarerfiðleika. Cheney er nú á George Washington-sjúkrahúsinu, en búist er við að hann fái að snúa heim síðar í dag, enda engin alvarleg hætta á ferðum.

Skotið á friðargæsluliða í Darfúr

Friðargæsluliði var drepinn og tíu aðrir liggja sárir eftir skotárás í Darfúr-héraði í Súdan í gær. Friðargæsluliðunum, sem eru í Súdan á vegum Afríkusambandsins, var gert launsátur í þorpinu Girgira í vesturhluta Darfúr.

Sjá næstu 50 fréttir