Ekki jafn mikil hætta í Tyrklandi og talið var 10. janúar 2006 13:06 AP
Niðurstöður rannsókna á sýnum úr tólf sjúklingum í Istanbúl í Tyrklandi benda ekki til að þeir séu með fuglaflensusmit eins og óttast var. Mikil skelfing hefur gripið um sig í landinu vegna málsins sem og í nágrannalöndunum, Búlgaríu og Grikklandi, en heilbrigðisráðherrar Evrópusambandsríkjanna segja þó ekkert að óttast. Fjöldaslátrun á fuglum er fyrirhuguð í nokkrum úthverfum Istanbul, fjölmennustu borg landsins en þar búa fátækir íbúar, sem flutt hafa til borgarinnar frá sveitum landsins og ala fugla sér til viðurværis. Sjö sjúkrahús hafa verið í viðbragðsstöðu í Tyrklandi eftir að 14 einstaklingar voru sagðir smitaðir af H5N1 afbrigði fuglaflensuveirunnar, mannskæðustu tegund veirunnar. Þar á meðal voru tvö börn sem létust í síðustu viku en þau voru fyrstu sjúklingarnir sem látast af völdum veirunnar í Evrópu. Heilbrigðisráðherra Tyrklands, sem hefur heimsótt Van hérað þar sem veikin kom fyrst upp, segir að tekist hafi að ná tökum á vandamálinu og að ekki sé hætta á faraldri. Ráðamenn í Rússlandi hafa þó varað við ferðalögum til Tyrklands og er óttast að ferðamannaiðnaðurinn muni skaðast vegna málsins sem og í nágrannalöndunum Búlgaríu og Grikklandi. Heilbrigðisráðherrar Evrópusambandsríkjanna halda því þó enn fram að raunveruleg hætta sé ekki á ferðum, vandinn sé og muni verða aðallega í Asíu, þar sem tæplega 80 manns greindust í vikunni af fuglaflensu þó ekki H5N1, en tilfelli fuglaflensunnar hafa einnig komið upp í fimm Evrópulöndum. Ástæða sé þó til að hafa varan á og gera þær ráðstafanir sem til þarf ef svo ólíklega vildi til að veiran skyldi breiðast út. Vísindamenn segja þó að veiran gæti auðveldlega tekið stökkbreytingum sem valdi því að hún berst milli manna og þannig valdið alheimsfaraldri. APAPAPAPAPAPAPAPAPAP
Erlent Fréttir Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira