Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skilaboð Sameinuðu á alþjóðlega alnæmisdeginum Þjóðir heims mega ekki sofa á verðinum í baráttunni við alnæmi, þó að fjölmiðlar hafi fjallað meira um aðra sjúkdóma undanfarin misseri. Þetta eru skilaboð Sameinuðu þjóðanna á alþjóðlega alnæmisdeginum sem er í dag. 1.12.2005 12:23
Þriðji hver starfsmaður myndi þiggja mútur Einn af hverjum þremur opinberum starfsmönnum í Víetnam myndi þiggja mútur ef honum byðist það. Þetta kemur fram í nýlegri könnun sem gerð var þar í landi. Spilltustu starfsmennirnir samkvæmt könnuninni eru þeir sem sjá um úthlutanir á landssvæðum og húsnæði en fast á hæla þeirra koma lögreglumenn, tollverðir og starfsmenn skattsins. 1.12.2005 10:30
Hafa hertekið Ramadí Fjögur hundruð vopnaðir írakskir uppreisnarmenn hafa hertekið hluta af borginni Ramadi í Írak. Þá skutu uppreisnarmennirnir úr sprengjuvörpum á herstöð Bandaríkjamanna og einnig á opinbera byggingu í borginni. 1.12.2005 09:30
Læknar í Frakklandi hafa framkvæmt fyrstu andlitságræðslu sögunnar Læknar í Frakklandi hafa framkvæmt fyrstu andlitságræðslu sögunnar. Læknarnir segja aðgerðina hafa heppnast vel og að hið nýja andlit virki eðlilegt. 1.12.2005 08:30
78 meintir meðlimir eiturlyfjahrings handteknir Sjötíu og átta manns, sem grunaðir eru um aðild að kólumbískum eiturlyfjahring, voru handteknir í Kólumbíu og Bandaríkjunum í gær. Hópurinn er grunaður um að hafa staðið að smygli á eiturlyfjum til Bandaríkjanna, meðal annars með því að fela efnin inni í húsgögnum og málverkum. 1.12.2005 08:11
Meirihluti Bandaríkjamanna efast um sigur í Írak Meirihluti Bandaríkjamanna efast um að George Bush Bandaríkjaforseti búi yfir áætlun sem muni leiða til "sigurs Bandaríkjamanna", eins og það er orðað, í Íraksstríðinu. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Gallup gerði fyrir CNN sjónvarpsstöðina og dagblaðið USA Today en könnunin var birt í gærkvöldi. 1.12.2005 08:03
Bandaríski herinn borgar írökskum dagblöðum fyrir að birta jákvæðar blaðagreinar um herinn Bandaríski herinn borgar írökskum dagblöðum á laun fyrir að birta jákvæðar blaðagreinar um aðgerðir Bandaríkjahers í Írak. Dagblaðið Los Angeles Times hefur komist yfir gögn sem staðfesta þetta. 1.12.2005 07:50
Sífellt fleiri frá bráðalyf gegn HIV veirunni í Danmörku Um hundrað einstaklingar fengu bráðalyf gegn HIV veirunni í Danmörku á síðasta ári. Það er tvöfalt fleiri en fyrir fimm árum. 1.12.2005 07:45
Árið 2005 eitt mesta hamfaraár sögunnar Það sem af er ári hafa Sameinuðu þjóðirnar tíu sinnum kallað eftir neyðaraðstoð en svo oft hafa samtökin aldrei áður þurft að bregðast við. Í gær var farið fram á 265 milljarða króna í aðstoð til bágstaddra um allan heim. 1.12.2005 07:00
Mæðgur myrtar í Noregi Kona á sextugsaldri og dóttir hennar á þrítugsaldri voru myrtar á heimili sínu í Borge í nágrenni Fredriksstad í Noregi í fyrrinótt. Sá sem myrti þær hringdi sjálfur til lögreglu og tilkynnti um morðið en hann er fyrrverandi kærasti móðurinnar. 1.12.2005 06:43
Leynifangelsi verða könnuð Þótt Bandaríkjastjórn hafi ekki enn viðurkennt að hún starfræki leynileg fangelsi erlendis þar sem grunaðir hryðjuverkamenn eru geymdir segist hún hafa meðtekið þau hörðu viðbrögð sem málið hefur vakið. 1.12.2005 06:30
Ríkisstjóri náðar Lovitt Innan við sólarhring áður en til stóð að Robin Lovitt yrði þúsundasti fanginn sem tekinn yrði af lífi í Bandaríkjunum frá því að dauðarefsingar voru teknar þar upp á ný fyrir 28 árum, ákvað ríkisstjóri Virginíu að þyrma lífi hans í gær. Refsingu Lovitts var breytt í ævilangt fangelsi án möguleika á náðun fyrir að stinga mann til bana með skærum í leikjasalarráni árið 1998. 1.12.2005 06:30
Lögregla handtekur nakta bankaræningja í El Salvador Lögreglan í El Salvador handtók tvo nakta menn á þriðjudag þar sem þeir voru að grafa göng að bankahvelfingu í höfuðborginni San Salvador. Unnið hafði verið að gangagerðinni dögum saman. Mennirnir voru nærri komnir að bankanum þegar þeir uppgötvuðust af tilviljun þegar hluti ganganna hrundi svo að stór hola myndaðist á götunni. 30.11.2005 23:00
Þrýstingur eykst á Bandaríkjastjórn Þrýstingur jókst enn á Bandaríkjastjórn í dag þegar breska stjórnin staðfesti að hún hefði farið formlega fram á upplýsingar um fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Evrópusambandið er að kanna hvort aðildarríki þess, eða ríki sem sækjast eftir aðild, hafi leyft starfsemi ólöglegra fangelsa á vegum Bandaríkjastjórnar. 30.11.2005 21:51
Peres sagði skilið við flokk sinn Rúmlega sex áratuga langri samleið Shimon Peres og ísraelska Verkamannaflokksins lauk í dag þegar hann sagði sig úr flokknum og lýsti yfir stuðningi við Ariel Sharon og nýstofnaðan flokk hans sem nefnist Kadima. 30.11.2005 20:27
Viðræður innan tveggja vikna Íranir ætla að hefja viðræður við Evrópusambandið um framtíð kjarnorkuáætlunar þeirra innan tveggja vikna sagði Manouchehr Mottaki, utanríkisráðherra Írans, í dag. 30.11.2005 19:40
Peres hættur í Verkamannaflokknum Shimon Peres, einn helsti stjórnmálaleiðtogi í Ísrael, ætlar að hætta í Verkamannaflokknum. Þetta sagði hann á blaðamannafundi í kvöld. Lýsti Peres jafnframt stuðningi við Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, og nýjan miðjuflokk sem Sharon hefur stofnað. Peres sagði jafnframt að Sharon hefði einsett sér að halda áfram friðarferlinu og væri opinn fyrir nýjum hugmyndum í þeim málum. Sagðist Peres þess vegna styðja Sharon. 30.11.2005 19:08
Grunur um sprengju á lestarstöðinni í Hróarskeldu Öll umferð um lestarstöðina í Hróarskeldu í Danmörku var stöðvuð um tíma í dag vegna grunsamlegs poka sem skilinn hafði verið eftir á stöðinni. Lögregla var kölluð á vettvang vegna gruns um að sprengja leyndist í pokanum. 30.11.2005 18:23
Varð fyrir hraðlest í Svíþjóð 15 ára gömul stúlka lést í gærkvöld þegar hún gekk ásamt tveimur jafnöldrum sínum í veg fyrir hraðlest skammt frá Gautaborg í Svíþjóð. Stúlkurnar fóru fram hjá hindrunum sem stöðva eiga umferð yfir járnbrautarteinana eftir að tvær lestir höfðu farið hjá og náðu tvær stúlknanna yfir sporin áður en hraðlestin hafnaði á þeirri þriðju. 30.11.2005 18:07
Valdheimildir lögreglu auknar í Frakklandi Allt útlit er fyrir að franska þingið samþykki frumvarp um hryðjuverk, sem eykur valdheimildir lögreglu til muna. Neðri deild franska þingsins samþykkti frumvarpið í gær. 30.11.2005 12:00
Þúsundasta aftakan vekur umræður í Bandaríkjunum Reiknað er með að í dag fari fram eitt þúsundasta aftakan í Bandaríkjunum frá því þær voru aftur teknar upp þar eftir tíu ára hlé árið 1977. 30.11.2005 12:00
Sjö hundruð á sjúkrahús vegna kuldanna Sjö hundruð manns hafa verið fluttir fárveikir á sjúkrahús á veturbörðum hamfarasvæðunum í Pakistan. Átta manns hafa þegar fallið af völdum vetrarkuldanna við Himalaja-fjallgarðinn. 30.11.2005 11:57
Fellybylir hafa aldrei valdið jafn mikilli eyðileggingu og árið 2005 Fellibylir gætu valdið jafnmiklum eða meiri óskunda á næsta ári en þessu að mati sérfræðinga. Fellibyljatímabilinu lýkur formlega á morgun og aldrei í sögunni hafa fellibylir valdið jafnmikilli eyðileggingu og árið 2005. 30.11.2005 11:56
Tveir fórust í eldsvoða í Færeyjum Kona á níræðisaldri og sonur hennar á sjötugsaldri, fórust í eldsvoða í Suðurvogi í Færeyjum í gærkvöldi, sennilega vegna reykeitrunar. Ekki var um mikinn eld að ræða en talið er að eldsupptök hafi verið í kjallara hússins. Mæðginin voru ein í húsinu þegar eldurinn kom upp. 30.11.2005 09:00
Styrkur Golfstraumsins hefur minnkað um 30% Golfstraumurinn hefur veikst um 30 % á síðustu fimmtíu árum, samkvæmt nýjasta tölublaði vísindaritsins Nature. Þá kemur einnig fram að hluti Golfstraumsins sé fastur í hringiðu í sunnanverðu Atlantshafi í stað þess að fara alla leið norður til Íslands og Grænlands. 30.11.2005 08:00
Átta manns fórust í skothríð tíu grímuklæddra uppreisnarmanna í Írak Átta manns fórust í skothríð tíu grímuklæddra uppreisnarmanna á sendibifreið nærri borginni Bakúba í Írak í morgun. Tveir slösuðust í árásinni. Yfirvöld í Írak búast við hrinu árása í landinu í næstu tveim vikum, í aðdraganda þingkosninganna fimmtánda desember. 30.11.2005 07:27
Tveir starfsmenn bankans handteknir Tveir starfsmenn Northern-bankans á Norður-Írlandi, þar sem stórfellt rán var framið fyrir tæpu ári, voru handteknir í gær, grunaðir um aðild að ráninu. Um er að ræða karlmann og konu á þrítugsaldri. Bankaræningjarnir höfðu á brott með sér ríflega tuttugu og sex milljónir punda, eða tæplega þrjá milljarða króna, en ránið var framið í höfuðborginni Belfast skömmu fyrir jólin í fyrra. 30.11.2005 07:26
Bandaríkjamenn hefja ítarlega rannsókn á hugsanlegum leynifangelsum CIA Bandaríkjamenn ætla að hefja ítarlega rannsókn á því hvort leyniþjónustan CIA, haldi úti leynifangelsum í Austur-Evrópu. Þetta sagði Condoleeza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna á fundi sínum með Frank-Walter Steinmeyer, utanríkisráðherra Þýskalands í gær. 30.11.2005 07:25
Þrír hlutu áverka eftir árás varðhunda Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir árás þriggja varðhunda við pósthúsið í Marieholm í nágrenni Eslöv í Svíþjóð í gærkvöldi. Enginn hlaut alvarlega áverka en tveir voru fluttir á sjúkrahús með sjúkrabíl en sá þriðji í einkabíl. Lögreglan fór á staðinn til að leita hundanna en án árangurs. 30.11.2005 07:11
Efast um lögmæti kjörfundar Flokkur sem efla vill tengslin við yfirvöld í Moskvu vann yfirburðasigur í þingkosningunum í Tsjetsjeníu á sunnudaginn. Mannréttindasamtök bera brigður á að kosningarnar hafi verið frjálsar og óháðar. 30.11.2005 07:00
Sýndu myndband af gíslum Al Jazeera sjónvarpsstöðin sýndi í dag myndband sem stöðin segir að sýni fjóra gísla sem mannræningjar í Írak tóku nýlega. Talið er að um sé að ræða kristna friðarsinna sem hafa verið í Írak undanfarið. Einn mannanna er Norman Kember, aldraður Breti. 29.11.2005 22:06
Peres styður Sharon Shimon Peres er sagður ætla að segja sig úr Verkamannaflokki Ísraels á morgun og lýsa yfir stuðningi við Ariel Sharon og nýjan flokk hans í þingkosningunum sem verða haldnar 28. mars næstkomandi. Hann ætlar þó ekki að ganga til liðs við flokk Ariels Sharons. 29.11.2005 21:36
Áttunda hvert barn vannært Þurrkar og engissprettufaraldur lagði alla uppskeru í Afríkuríkinu Níger í rúst. Afleiðingarnar eru hungursneyð. Hungursneyðin hefur meðal annars leitt til þess að tólf prósent barna undir fimm ára aldri hafa þurft meðferð vegna vannæringar. 29.11.2005 20:03
Teygja sig um Evrópu og Bandaríkin Yfir hundrað kínversk börn og ungmenni, sem horfið hafa sporlaust frá Svíþjóð, eru ekki einsdæmi á Norðurlöndum. Þau eru aðeins hluti af því, sem virðist vera skipulegur mansalshringur, sem teygir anga sína um alla Evrópu og til Bandaríkjanna. 29.11.2005 19:52
Upplýsingaskrifstofa opnuð í Kalíníngrad Norræna ráðherranefndin hefur komist að samkomulagi við rússnesk yfirvöld um að setja á laggirnar norræna upplýsingaskrifstofu í Kalíníngrad. Unnið hefur verið að málinu með hléum frá árinu 2000, en ráðherranefndin starfrækir nú þegar skrifstofu í Pétursborg og hefur gert í tíu ár. 29.11.2005 17:42
Aðildarviðræðum við Rúmena slitið? Aðild Rúmena að Evrópusambandinu er í hættu ef rétt reynist að þeir hafi hýst leynifangelsi fyrir bandarísku leyniþjónustuna. 29.11.2005 12:30
Mótmælendur setja strik í reikninginn Tveir mótmælendur frá Greenpeace töfðu ræðu Tony Blair í London, sem átti að hefjast klukkan hálf tíu í morgun. 29.11.2005 11:11
Vændiskonur á landsbyggðinni mun eldri Vændiskonur á landsbyggðinni eru jafnan mun eldri en starfssystur þeirra í borgum - að minnsta kosti í Ástralíu. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem ástralskur háskólaprófessor gerði. 29.11.2005 10:30
Allt á kafi í Kólumbíu Nærri hundrað hafa látist og meira en þúsund heimili eru rústir einar eftir gríðarleg flóð í Kólumbíu undanfarna daga. Rigningar í landinu undanfarna mánuði eru þær mestu í aldarfjórðung og áhrifanna gætir um allt land. 29.11.2005 10:00
Ríkisstjórn Kanada fallin Kanadíska ríkisstjórnin er fallin. Í gær var samþykkt vantrauststillaga á stjórnina á kanadíska þinginu og flest bendir því til að boðað verði til kosninga strax í janúar. 29.11.2005 09:49
Kviknaði í út frá hitateppi Betur fór á en horfðist þegar kviknaði í hitateppi sem þriggja ára gamall drengur svaf með í Vestfold í Noregi. Faðir hans vaknaði út frá reyknum og sá þá að hitateppið var í ljósum logum en drengurinn svaf við hlið hans. 29.11.2005 09:15
Fluglaflensuveiran í Kína hefur stökkbreyst Fuglaflensuveiran sem fundist hefur í fólki í Kína hefur þegar stökkbreyst og er öðruvísi en sá stofn veirunnar sem fundist hefur í fólki í Víetnam. Þetta fullyrða talsmenn heilbrigðis ráðuneytisins í Kína. Enn geti veiran þó ekki borist beint á milli manna, sem margir óttast að gæti leitt til heimsfaraldurs. 29.11.2005 07:46
Þrír í haldi lögreglu fyrir morð á ungum manni á hótelherbergi í Kaupmannahöfn Tveir Pólverjar hafa verið úrskurðaðir í einangrun fram að Þorláksmessu fyrir morðið á ungum gambískum karlmanni sem fannst látinn á hótelherbergi í Kaupmannahöfn í gær. Tvær pólskar konur voru einnig handteknar í gær. Önnur konan var úrskurðuð í þriggja daga gæsluvarðhald en hinni var sleppt í gær. 29.11.2005 07:41
Kalt á skjálftasvæðum í Pakistan Tveir hafa þegar látist af völdum mikilla kulda á jarðskjálftasvæðunum í Pakistan og óttast er að eins muni fara fyrir tugþúsundum manna ef ekki berst meira fjármagn á hamfarasvæðin hið allra fyrsta. Í gær voru meira en hundrað manns fluttir á sjúkrahús með öndunarfærasjúkdóma og tveir lifðu ekki af nóttina. 29.11.2005 07:35
Tvær sprengjuárásir í Bangladess Að minnsta kosti þrír létust og fjörutíu særðust í tveimur sprengjuárásum í Bangladess í morgun. Talið er að um sjálfsmorðsárásir hafi verið að ræða. Fyrri árásin var gerð við lögregluvarðstöð í borginni Chittagong þar sem þrír létust, tveir lögreglumenn og hinn meinti árásarmaður, og fimmtán liggja sárir. 29.11.2005 07:09