Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Selja herbúnað í andstöðu við Bandaríkin Hugo Chavez, forseti Venesúela, og Jose Bono, varnarmálaráðherra Spánar, tóku í dag þátt í athöfn þar sem undirritaður var stærsti vopnasölusamningur í sögu Spánar. Venesúealastjórn hefur ákveðið að kaupa tólf herflugvélar og átta herskip af Spánverjum. 28.11.2005 19:51
Sprengjuárás í Hebron Palestínskur vígamaður kastaði sprengju að ísraelskum hermönnum við eftirlitsstöð í borginni Hebron á Vesturbakkanum fyrir stundu. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi fallið en árásin var gerð nærri Grafhýsi patríarkanna, stað sem er helgur í augum hvort tveggja múslima og gyðinga. 28.11.2005 18:50
Lést eftir að hafa kysst kærasta sinn Fimmtán ára kanadísk stúlka lést eftir að hafa kysst kærasta sinn. Stúlkan var með ofnæmi fyrir hnetum en kærasti hennar hafði borðað samloku með hnetusmjöri nokkrum klukkustundum áður en þau kysstust. 28.11.2005 18:00
Vilja upplýsingar um fangaflug Franz Josef Jung, varnarmálaráðherra Þýskalands, heimsótti franska kollega sinn Michele Alliot-Marie í París í dag, í fyrsta sinn síðan ný stjórn Þýskalands tók við völdum í síðustu viku. 28.11.2005 17:15
Ræður vopnaða verði til að gæta dýranna Stjórnandi Dýragarðsins í Gaza hefur ákveðið að ráða vopnaða verði til að gæta dýranna. Þetta gerir hann eftir að gengi vopnaðra manna rændi ljónsunganum Sabrinu og tveimur talandi páfagaukum fyrir tveimur vikum. 28.11.2005 16:48
Skjálftinn sterkari en talið var Tíu létust og sjötíu slösuðust í jarðskjálftanum sem reið yfir Qeshmeyju í Íran síðustu nótt. Nokkurra er enn saknað. Styrkur skjálftans mældist 6,1 á Richter-kvarða, talsvert meiri en í fyrstu var talið, og olli miklum skemmdum. 28.11.2005 16:14
Prófkjöri frestað vegna mótmæla Fatah-hreyfing Mahmouds Abbas, forseta Palestínu, frestaði fyrir skemmstu prófkjöri sínu á Gazaströndinni eftir að vopnaðir fylgismenn hreyfingarinnar þustu inn á kjörstaði og lokuðu þeim. Mennirnir sögðu að þúsundir nafna vantaði á kjörskrár og þannig væri komið í veg fyrir að fjöldi fólks gæti kosið. 28.11.2005 15:05
Réttarhöldunum frestað Réttarhöldunum yfir Saddam Hússein hefur verið frestað til fimmta desember, þar sem einn sakborninganna hefur enn ekki orðið sér úti um lögfræðing. 28.11.2005 13:39
Fjöldi árása í Írak undanfarinn sólarhring Allt logar í óeirðum í Írak, í aðdraganda réttarhalda yfir Saddam Hússein, sem hófust á nýjan leik í dag. Öryggisgæsla í kringum réttarhöldin hefur verið snarhert. 28.11.2005 11:19
Réttarhöldin yfir Saddam halda áfram Réttarhöldunum yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, og sjö fyrrverandi samstarfsmönnum hans verður framhaldið í dag eftir sex vikna hlé. Öryggigæsla í tengslum við réttarhöldin hefur verið aukin stórlega eftir að tveir verjendur hinna ákærðu voru myrtir á dögunum. 28.11.2005 08:15
Lík af konu fannst eftir vísbendingum eiginmannsins Lík af konu fannst grafið í Tönsberg í Noregi í gær. Talið er að hin látna sé kona sem lögreglan hefur leitað í þrjár vikur, en hún fannst eftir vísbendingum eiginmannsins sem myrti hana. 28.11.2005 08:09
Fjórum vestrænum hjálparstarfsmönnum rænt í Írak Uppreisnarmenn í Írak rændu fjórum vestrænum hjálparstarfsmönnum á laugardaginn. Tveir mannanna eru frá Kanada og einn frá Bretlandi. Talið er að sá fjórði sé Bandaríkjamaður, en það hefur ekki verið staðfest. 28.11.2005 07:42
Tíu manns létust í jarðskjálfta í Íran Minnst tíu manns létust og hundruðir húsa gjöreyðilögðust þegar jarðskjálfti upp á 5,9 á richter skók suðurhluta Írans í gær. Þá slösuðust sjötíu manns í skjálftanum og nokkrir eru enn í lífshættu. 28.11.2005 07:36
Enn mikil andstaða við inngöngu í Evrópusambandið í Noregi Um helmingur Norðmanna myndi kjósa gegn inngöngu í Evrópusambandið ef gengið væri til kosninga nú, samkvæmt niðurstöðum í nýafstaðinni könnun í Noregi. Alls sögðust 50,2% aðspurðra vera mótfallnir inngöngu í Evrópusambandið en 37,7% voru fylgjandi. 12% þátttakanda í könnuninni voru óákveðnir. 28.11.2005 07:23
Ungur maður finnst myrtur á hótelherbergi í Kaupmannahöfn 17 ára gamall karlmaður fannst myrtur á hótelherbergi í Kaupmannahöfn í nótt. Maðurinn, sem er af afrískum uppruna, var með áverka á höfði en allt bendir til þess að hann hafi verið skotinn. 28.11.2005 06:58
Veldur örtröð Norsk flugyfirvöld búast við miklum flugumferðarteppum þessi jólin vegna fjölda Breta í leit að jólasveininum, samkvæmt norska dagblaðinu Aftenposten. Búist er um 400.000 erlendum gestum í heimsókn til jólasveinsins í smiðju sinni í Rovaniemi í Finnlandi. 28.11.2005 06:45
Brotist inn í bíl Netanyahus Brotist var inn í bíl Benjamins Netanyahus, fyrrum forsætisráðherra Ísraels, í gærkvöld og nöppuðu þjófarnir tveimur farsímum sem í bílnum voru. Þjófarnir brutu rúðu í bílnum, sem hafði verið lagt í bílastæði í borginni Tel Aviv en skammt frá var Nethanyahu á baráttufundi til að ná aftur formannssæti í Likudflokknum. Unnið er að því að rannsaka hvers vegna lífvörðum forsætisráðherrans fyrrverandi urðu ekki varir við þjófana. 27.11.2005 16:25
Bresk stjórnvöld rannsaka ofbeldi við þjálfun breskra hermanna Bresk stjórnvöld eru að rannsaka ofbeldi við þjálfun breskra hermanna eftir að dagblað birti myndir úr heldur sérstökum þjálfunarbúðum hersins. Á myndunum sjást landgönguliðar naktir við æfingar. Þarna er líka maður í grænum sloppi sem skyndilega ræðst að einum hermanninum, slær hann og sparkar þannig í höfuð hans að maðurinn liggur kylliflatur. 27.11.2005 16:15
Vel á annað þúsund manns hafa nú farið gegnum Rafah landamærastöðina Yfir 1500 Palestímumenn hafa nú farið gegnum Rafah landamærastöðina á mótum Gasasvæðisins og Egyptalands að sögn Evrópusambandsins, sem sinnir eftirliti með landamærastöðinni sem opnuð í gær. 27.11.2005 14:50
Heimilisofbeldi á Spáni Yfir 28.000 menn hafa verið handteknir á Spáni fyrir heimilisofbeldi á árinu. Þá féllu 56 konur fyrir hendi maka sinna í landinu. Ofbeldi innan veggja heimila hefur sætt harðri gagnrýni á Spáni og hefur forsætisráðherra landsins, sett af stað átak gegn ofbeldi af þessu tagi. 27.11.2005 14:45
H5 tilfelli greinist í Rúmeníu H5 fuglaflensutilfelli hefur greinst í kalkún í austurhluta Rúmaníu. Landbúnaðarráðuneyti Rúmeníu greindi frá þessu í gær. Öllu fiðurfé á svæðinu verður fargað í dag vegna þessa en ekki er vitað hvort um H5N1 tilfelli sé að ræða, en það getur smitast í menn og hefur orðið yfir sextíu manns að bana í heiminum á síðustu tveimur árum. 27.11.2005 10:04
Mekka vann Stílkeppni Samfés Félagsmiðstöðin Mekka í Kópavogi vann Stílkeppni Samfés sem fór fram í fimmta sinn í gærkvöld. Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs afhenti verðlaunin. Í öðru sæti varð félagsmiðstöðin Setrið í Hafnarfirði og í þriðja sæti urðu einnig Kópavogsbúar, í félagsmiðstöðinni Igló. Félagsmiðstöðvar kepptu í fatahönnun, hárgreiðslu og förðun með það að markmiði að hvetja unglinga til listsköpunar og að gefa þeim tækifæri til að nýta hæfileika sína á því sviði. Alls skráðu fjörtíu og tvö lið af öllu landinu sig til þátttöku og var unnið út frá þemanu - rusl. 27.11.2005 09:45
Landamærin opnuð Yfir fimmtán hundruð Palestímumenn hafa nú farið gegnum Rafah landamærastöðina á mótum Gasasvæðisins og Egyptalands að sögn Evrópusambandsins, sem sinnir eftirliti með landamærastöðinni sem opnuð í gær. Að sögn talsmanns Javier Solana, utanríkismálaráðherra ESB, hefur gengið vel að afhenda Palestínumönnum stjórn stöðvarinnar. Hún var lokuð í þá tæpu þrjá mánuði sem liðnir eru frá því Ísraelsher hvarf á braut frá Gasasvæðinu. Ísraelski herinn hafði umsjón með landamæraeftirliti við stöðina í 38 ár. Ísraelar fylgjast nú með ferðum Palestínumanna um landamærastöðina með fjarstýrðri myndavél. 27.11.2005 09:43
Að minnsta kosti 17 féllu í Kína Að minnsta kosti 17 manns fórust í jarðskjálfta upp á 5,5 á richter sem reið yfir austurhluta Kína í fyrrinótt. Þá er talið að hundruð manna séu slasaðir eftir skjálftann og misstu að minnsta kosti þrjú þúsund manns heimili sín. Mestar urðu skemmdir í borginni Wuhan í Hubei sýslu. 27.11.2005 09:40
Ekið á karlmann á Miklubraut Ekið var á gangandi vegfarenda á Miklubraut, austan við Rauðarárstíg í Reykjavík um hálf hálf þrjú leytið í nótt. Að sögn lögreglunnar er maðurinn, sem talinn er vera á miðjum aldri, mikið slasaður en hann var fluttur meðvitundarlaus á slysadeild Landspítalans. Frekari upplýsingar um líðan mannsins, hafa ekki fengist. 27.11.2005 09:39
Lentu fimmtán sinnum í Evrópu á síðasta ári Utanríkisráðherra Þýskalands er áhyggjufullur vegna fangaflugs CIA og vill að málið verði kannað nánar innan Evrópusambandsins. Berliner Zeitung segir fimmtán fangaflugsþotur hafa lent í Evrópu á síðasta ári. 27.11.2005 08:45
Færri komust yfir en vildu Rúmlega 1500 manns frá Gasasvæðinu flykktust yfir landamærin til Egyptalands í gær án þess að þurfa að fara í gegnum öryggisstöðvar Ísraela. Palestínumenn ráða nú yfir landamærastöðinni í Rafah í fyrsta sinn síðan Ísraelar hertóku svæðið fyrir 38 árum. Landamærin hafa verið lokuð síðan Ísraelar yfirgáfu Gasasvæðið í sumar og komust færri yfir þau en vildu við opnunina í gær. 27.11.2005 07:15
Vaknaði aftur á upphafsstað Það gerist ósjaldan að flugfarþegar taki sér blund á meðan á ferðinni stendur. En það hendir fáa það sem kom fyrir Norðmanninn Tor Martin Johansen. Hann var á leið með innanlandsflugi frá Þrándheimi heim til Namsóss í norðanverðum Þrændalögum. 27.11.2005 07:00
Öflugir jarðskjálftar í Kína Fjórtán manns létu lífið í jarðskjálfta í Kína í nótt. Jarðskjálftinn varð rétt fyrir klukkan níu í morgun að staðartíma og mældist hann 5,7 á Richter. 26.11.2005 21:52
Frumbyggjar í Kanada fá fjárhagsstuðning Stjórnvöld í Kanada og fulltrúar frumbyggja landsins hafa náð samkomulagi um 270 milljarða króna útgjöld til að berjast gegn fátækt meðal frumbyggja á næstu tíu árum. 26.11.2005 19:45
Fyrirlitningin skein af mér Sænska ríkissjónvarpið hefur tekið til sýninga röð heimildaþátta um lasermorðin í Stokkhólmi í byrjun tíunda áratugarins. Óþekktur maður gekk þá laus með riffil með lasermiði og skaut ellefu nýbúa í tíu tilræðum. Lögreglan stóð lömuð hjá og tókst ekki að góma morðingjann fyrr en eftir tíu mánuði. Hann hafði þá lifað kóngalífi og rænt tuttugu banka til viðbótar við árásirnar. 26.11.2005 13:30
Sænskur hermaður lætur lífið í Afganistan Sænskur hermaður lét lífið og þrír særðust í sprengingu í Norður-Afganistan í gær. Sænska varnarmálaráðuneytið segir að fjarstýrð sprengja hafi sprungið við bílalest friðargæsluliða á vegum Atlantshafsbandalagsins. 26.11.2005 10:05
Schröder segir skilið við stjórnmálin Eftir sjö ár við stjórnvölinn í Þýzkalandi er Gerhard Schröder nú hættur beinum afskiptum af stjórnmálum og ætlar að snúa sér að lögmannsstörfum og skrifa pólitískar endurminningar sínar. 26.11.2005 09:00
Öngþveiti í Evrópu vegna vetrarveðurs Vetur konungur olli usla víða á meginlandi Evrópu í gær. Nokkurra sentímetra jafnfallinn snjór lagðist yfir stóran hluta álfunnar. Bylurinn olli miklu umferðaröngþveiti og ófáum slysum. Áætlunarflug fór úr skorðum. 26.11.2005 07:00
Ráðamenn hóta refsingum Eiturflekkurinn í Songhua-fljóti marar nú úti fyrir Harbin í Kína. Þriðji vatnslausi dagurinn í borginni rann upp í gær en íbúarnir bera sig engu að síður vel. Tæpum hálfum mánuði eftir að sprenging varð í efnaverksmiðju í bænum Jilin hafa kínversk stjórnvöld ákveðið að senda rannsóknarnefnd á vettvang og rannsaka málið. 26.11.2005 06:45
Landamærin á Gasa-ströndinni opnuð Palestínumenn á Gasa-svæðinu fá að heimsækja ættingja sína í Eygyptalandi í fyrsta sinn í næstum fjörutíu ár frá og með morgundeginum. 25.11.2005 23:26
Eitur í vatnsbólum í Kína Martröð allra borgarbúa er orðin að veruleika í milljónaborg í Kína. Þar er ekkert rennandi vatn eftir að eiturefni komust í ána sem liggur í gegnum borgina. 25.11.2005 19:29
Óttast að eitrið berist til Rússlands Hundrað tonn af eiturefnum berast nú með ánni Songhua í Kína eftir mikla sprengingu í efnaverksmiðju fyrir tólf dögum síðan. 25.11.2005 16:15
Fá að framleiða Tamiflu Yfirvöld á Indonesíu hafa fengið leyfi til að framleiða flensulyfið Tamiflu vegna þess ástands sem upp er komið í landinu vegna fuglaflensu. 25.11.2005 15:45
George Best er dáinn Knattspyrnukappinn George Best er dáinn. Hann lést á spítala í London nú í morgun. Norður-Írinn Best, sem var 59 ára, gerði garðinn frægann með Manchester United en átti við áfengisvanda að stríða og þurfti að fá ígrædda lifur fyrir rúmum þremur árum. 25.11.2005 13:28
Pinochet í stofufangelsi Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, hefur verið dæmdur í stofufangelsi, eftir að hann var ákærður fyrir mannréttindabrot fyrir dómstóli í Chile. 25.11.2005 09:00
Hollendingar krefja Bandaríkjastjórn svara Hollensk stjórnvöld segja að Bandaríkjamenn verði að greina frá staðsetningu og starfsemi leynifangelsa í Austur Evrópu. Ben Bot, utanríkisráðherra Hollands segir að framlag Hollendinga til hernaðaraðgerða Bandaríkjamanna verði endurskoðað ef ekki verði greint frá starfseminni hið fyrsta. 25.11.2005 08:19
Bylting á breskri drykkjumenningu Bylting hefur orðið á breskri drykkjumenningu. Deilt er um það hvort hún sé til góðs eða ills. Framvegis er stöðum sem selja áfengi heimilt að selja það hvenær sem er dagsins og þess vegna að hafa opið allan sólarhringinn. 24.11.2005 22:10
Óttast að vatnsból borgarinnar sé mengað Í Khabarovsk óttast íbúar nú að vatnsból borgarinnar sé mengað en drykkjarvatnið er tekið úr ánni Songhua. Hún rennur fyrst í gegnum Kína og þann þrettánda nóvember síðastliðinn fór út í hana mikið magn eiturefna eftir sprengingu í efnaverksmiðju þar. 24.11.2005 21:25
Þúsundasti fanginn tekinn af lífi frá 1977 Á næstu dögum verður þúsundasti fanginn tekinn af lífi frá því að aftökur voru leyfðar á ný. Þrjú þúsund og fjögur hundruð fangar bíða þess að verða teknir af lífi í bandarískum fangelsum, þar af hundrað og átján útlendingar. 24.11.2005 21:20