Innlent

"Megrunarfæði á ekkert erindi til barna“

Elísabet Hall skrifar
Stöð 2 greindi frá fyrr í vikunni að séróskum um mataræði leikskólabarna hafi fjölgað mikið en dæmi eru um að nokkrar máltíðir séu eldaðar svo að öll börnin á deildunum geti borðað í samræmi við sérþarfir sínar.

Yfirleitt þegar óskað er eftir sér mataræði fyrir börnin er það vegna ofnæmis eða óþols á sérstakri matvöru og þurfa þá foreldrar að skila inn læknisvottorði þess efnis en einnig geta foreldrar óskað eftir sér mataræði vegna trúarástæðna.

Nokkrir leikskólastjórar sem fréttastofa ræddu við í dag sögðu að nokkuð hafi færst hafi í aukana á síðustu árum að foreldrar biðji um sérstakan mat fyrir börn sín sem flokka megi sem lífsstílstengdan mat eins og til dæmis að maturinn þurfi að vera kolvetnalaus eða fitusnauður. Einnig séu dæmi um að óskað sé eftir einungis lífrænum eða óerfðabreyttum mat.

Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur, segir slíka þróun geta verið varhugaverða og að megrunarfæði eigi ekkert erindi til lítilla barna.

„Við vitum að það að alast upp í umhverfi þar sem er mikil áhersla lögð á megrun og holdarfar getur haft neikvæð áhrif á börn. Það eykur líkurnar á að þau þrói með sér neikvæða líkamsmynd þegar fram í sækir þannig að ég held að við ættum að vera mjög varkár varðandi alla svona áherslur og umræðu í kringum börn.“

Sigrún segir að auknar lífsstíls umræður í íslensku samfélag geti auðveldlega speglast inn í leikskólana.

„Það þarf líka að hafa í huga að heilbrigði snýst ekki bara um líkamlegt hreysti. Heilbrigði er líka andleg heilsa og félagslegir þættir og þetta verður allt að koma saman í einhvers konar heildrænu tilliti þegar heilbrigði barna er annars vegar. Auðvitað hefur maður alltaf áhyggjur af því þegar það er nýtt og nýtt megrunaræði nær svona mikilli fótfestu eins og virðist alltaf gerast á Íslandi. Maður hefur áhyggjur af hvaða áhrif þetta hefur á börnin. Þau fari þá að hafa áhyggjur af mataræði sínu eða holdafari og það fer að hafa neikvæð áhrif á þeirra andlegu líðan.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×