Yfir 100 fjölskyldur flýja heimili sín Svavar Hávarðsson skrifar 23. október 2013 07:00 Yfirleitt er hægt að koma auðveldlega í veg fyrir að myglusveppur geri þann skaða sem hann gerir í fjölmörgum tilfellum. Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir
Vitað er með vissu um yfir 100 fjölskyldur hér á landi sem hafa á fáum árum þurft að yfirgefa heimili sín vegna myglusvepps. Líkur eru til að þær fjölskyldur sem hafa þurft að grípa til þessa örþrifaráðs séu miklu fleiri. Tugir fjölskyldna hafa ekki snúið til baka. Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur og stofnandi fyrirtækisins Hús og heilsa, vann tölfræðina. „Þetta eru þau dæmi sem ég þekki til persónulega og hef fylgt eftir, og veit að fólk þurfti að yfirgefa heimilið vegna myglusvepps og heilsufarsvanda honum tengdum. Ég efast samt ekki um að þetta sé aðeins toppurinn á ísjakanum.“ Síðan Sylgja stofnaði fyrirtæki sitt hefur hún aðstoðað þrjú þúsund fjölskyldur. „Ég þekki mörg dæmi þess að fólk hefur reynt að búa áfram í sínu húsnæði, því það hefur ekki haft efni á því að laga það sem laga þarf. Síðan er síðasta hálmstráið að ganga út með tilheyrandi kostnaði,“ segir Sylgja og bætir við að sárlega vanti frekari upplýsingar um vandamálið til að byggja á. Hér sé undir tvennt af því verðmætasta sem menn eiga - heilsa fjölskyldunnar og heimilið. Fréttablaðið sagði frá því í fyrra að um 20 til 30% húsa á Íslandi eru talin sýkt af myglusveppi. Það er allt að 50 þúsund hús - íbúðarhús og atvinnuhúsnæði. Þingmenn allra flokka lögðu fram þingsályktunartillögu 17. október þess efnis að lög og reglur verði endurskoðaðar með tilliti til myglusvepps og tjóns af þeirra völdum. Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar er flutningsmaður tillögunnar. Hann segir að tilefni hennar sé að svo virðist sem fá úrræði standi fólki til boða í aðstæðum sem þessum. Nauðsynlegt sé að stjórnvöld geri það sem í þeirra valdi stendur til að laga regluverkið. „Viðtöl við fólk sem hefur lent í þessu hafa styrkt mig í þeirri trú að þetta sé bráðnauðsynlegt. Lýsingarnar eru hrikalegar. Þetta er gríðarlegt hagsmunamál og það verður að finna á þessu flöt svo fólk standi ekki uppi slippt og snautt. Það þarf að skoða þetta í smáatriðum - bæði vegna þeirra sem hafa reynt þetta á eigin skinni en ekki síður sem fyrirbyggjandi úrræði.“
Mest lesið „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Erlent Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Erlent Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Erlent Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Erlent Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Innlent Fleiri fréttir „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Magnús Már nýr framkvæmdastjóri Áss „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Ökumenn beðnir um að sýna aðgát vegna fýlsunga Frá hrifningu til vonbrigða: Svona upplifðu borgarbúar almyrkvann Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og Grafarvogi Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Forskot Já-hliðarinnar mælist minna ESB-málin í brennidepli og uppgjör eftir almyrkvann Einn handtekinn vegna gruns um líkamsárás og hótanir „Ég get ekki orða bundist“ Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Bein útsending: Málstofa og sýning um íslensk námsgögn Umferð um Flókalund 430 prósentum meiri en vanalega Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Allir í skýjunum með almyrkvann: Himnanir opnuðust á hárréttum tíma Greiddu atkvæði gegn ráðningu nýs bæjarstjóra Fjallabyggðar Sjá meira