Fleiri fréttir

Ingólfur Júlíusson látinn

Fréttaljósmyndarinn og margmiðlunarhönnuðurinn Ingólfur Júlíusson, lést á sjúkrahúsi aðfaranótt mánudags, eftir hetjulega baráttu við bráðahvítblæði.

Aðalmeðferð í máli Karls Vignis í dag

Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Karli Vigni Þorsteinssyni fer fram í dag og stendur hún yfir allan daginn í Héraðsdómi Reykjavíkur. Karl Vignir er ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fjórum einstaklingum, en mál hans var þingfest þann þriðja apríl síðastliðinn.

Íþróttafélög fái að skoða sakavottorð

Íslensk íþróttafélög eru eftirbátar erlendra félaga varðandi verndun barna. Íþróttahreyfingin vinnur að siðareglum um kynferðisbrot. Mælst er til að félögin fái að skoða sakavottorð umsækjenda þyki tilefni til.

Óíbúðarhæft vegna skolplyktar

„Þetta er misjafnt en hefur verið að versna,“ segir Elías Þorvaldsson, einn íbúa við Eyrarflöt á Siglufirði sem sendu bæjaryfirvöldum undirskriftalista með ósk um úrbætur vegna ólyktar af skolplögnum í fjörunni neðan við hverfið.

Vignir Vatnar vinnur

Vignir Vatnar Stefánsson sigraði kólumbískan andstæðing sinn í fyrstu skák sinni á heimsmeistaramóti áhugamanna í Rúmeníu í gær.

Eldri borgarar í takt við tímann með Wii

Öldrunarheimili Akureyrar (ÖA) hafa keypt þráðlaust net og spjaldtölvur fyrir vistmenn. Nýjungin mælist vel fyrir jafnt hjá vistmönnum sem starfsfólki.

Sáttmáli D- og B-lista yrði marklaust plagg

Brynjar Níelsson, sem skipar annað sæti á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík norður, segir samstarf við Framsóknarflokk valda honum verulegum áhyggjum ef af stjórnarmyndun verður.

Hælisleitendur handteknir

Lögreglan handtók tvo hælisleitendur á umráðasvæði Eimskips við Sundahöfn í Reykjavík í nótt, grunaða um að hafa ætlað að komast um borð í skip sem laumufarþegar.

Sigla afmælishring um Ísland

Eikarbátnum Húna II verður í maí siglt umhverfis landið til að minnast þess að hálf öld er síðan báturinn var smíðaður á Akureyri.

Reiðhjólaþjófnaður algengur

Ömurlegt að troða sér í níðþröngar, þartilgerðar reiðhjólabrækur til þess eins að komast að því að reiðhjólinu hefur verið stolið.

Aðstoðuðu Ramónu

Landhelgisgæslunni barst klukkan níu í kvöld aðstoðarbeiðni á rás 16 frá fiskiskipinu Ramónu ÍS sem var með bilaða vél við Dalatanga.

Segir hátt í 170 hafa séð fljúgandi furðuhluti á Íslandi

Magnús Skarphéðinsson, formaður félags áhugamanna um fljúgandi furðuhluti, segir að hann hafi skráð um 170 reynslusögur einstaklinga á Íslandi sem hafa séð fljúgandi furðuhluti. Þar af séu um 30 frásagnir mjög nákvæmar. Þetta kom fram í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 þar sem rætt var við Magnús í tilefni af því að heimildarmyndin Sirius var frumsýnd í dag.

Segja dæmda ofbeldismenn hafa greiðan aðgang að konum innan heilbrigðiskerfisins

Rótin - félag um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda sendi í morgun erindi um öryggi kvenna á meðferðarstöðum til landlæknis. Félagið óttast að dæmdir ofbeldismenn hafi greiðan aðgang að ungum konum í heilbrigðiskerfinu og vitna meðal annars í dóm sem féll 11. þessa mánaðar þar sem karlmaður var dæmdur í fangelsi fyrir að beita átján ára stúlku hrottalegu ofbeldi en þau kynntust inn á meðferðarstofnun.

Tólf þúsund eintök af framsóknarblaði í vitlaust kjördæmi

"Ég er búinn að frétta af blaðinu á Ísafirði og á Hvammstanga,“ segir Stefán Bogi Sveinsson, ritstjóri framsóknarblaðsins, Dagur Austri, sem kom út í dag og átti að dreifa í kjördæmi formanns Framsóknarflokksins - Norðausturkjördæmi.

Bæjarstjóri Garðabæjar óttast ekki að fara aftur yfir málefni Álftanesvegar

Bæjarstjóri Garðabæjar óttast ekki að fara aftur yfir málefni Álftanesvegar en vegamálastjóri segir að gott hefði verið að fá niðurstöðu í málið fyrr. Innanríkisráðherra hefur beðið þá að fara aftur yfir forsendur fyrir lagningu nýs vegarkafla í Gálgahrauni en framkvæmdunum, sem áttu að hefjast nú í maí, hefur verið mótmælt harðlega.

Stal fatnaði fyrir 400 þúsund

Tilkynnt var um þjófnað úr verslun á Geysi um klukkan fimm í gær. Ekki var tiltækur mannskapur frá lögreglunni á Selfossi til að sinna verkefninu en lögreglumenn frá Sérsveit ríkislögreglustjóra fóru á staðinn og handtóku manninn.

Anna Heiða fær barnabókaverðlaun

Anna Heiða Pálsdóttir fékk í dag barnabókaverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir bókina Mitt eigið Harmagedón sem Salka gaf út. Þessi virtu verðlaun voru nú afhent í 41. sinn við hátíðlega athöfn í Höfða. Guðni Kolbeinsson fékk verðlaunin fyrir þýðingu sína á bókinni Stiklað á stóru um býsna margt eftir Bill Bryson sem JPV útgáfa gaf út. Guðni hefur tvisvar áður fengið þessi verðlaun fyrir afbragðs þýðingu og einu sinni fyrir bestu frumsömdu bókina.

Allir flokkarnir vilja efla landgræðslu

Umhverfismál ber ekki hátt í stefnuskrám flokkanna að þessu sinni. Fréttablaðið þurfti að leita misdjúpt í samþykktum þeirra til þess að finna eitthvað um málaflokkinn.

Maðurinn sem lést

Maðurinn sem lést í kajakslysi í Herdísarvík í gær hét Jón Þór Traustason. Hann átti heimili að Fýlshólum 2 í Breiðholti í Reykjavík. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú uppkomin börn. Jón Þór var 52 ára að aldri, fæddur 13. maí 1960.

Bhutan setur hamingju og sjálfbærni á oddinn

Smáríkið Bhutan í Himalayafjöllunum, þar sem íbúar eru um 740.000, hefur sett sér metnaðarfullt markmið. Pema Gyamtsho, landbúnaðarráðherra landsins greindi nýverið frá því að Bhutan stefndi á að verða fyrsta landið í heiminum þar sem öll ræktun matvæla er algerlega lífræn. Samhliða þessari ákvörðun hefur sala á meindýraeitri og illgresiseyði verið bönnuð. Gert er ráð fyrir að Bhutan takist með lífrænum landbúnaði að auka framleiðslu sína frekar en hitt og flytja framleiðsluvörur sínar út til nágrannalanda eins og Indlands og Kína.

Krefst þess að biskup víki Sigríði úr starfi

Gunnar Þorsteinsson, betur þekktur sem Gunnar í Krossinum, krefst þess að biskup víki Sigríði Guðmarsdóttur, sóknarpresti í Grafarholti, úr starfi og fái ekki að gegna sambærilegu starfi á kirkjulegum vettvangi til frambúðar.

Gunnar Smári um gildi alkapillu

"Er þetta lyf sem fólkið sleppir að taka ef það vill komast í vímu? Ég þekki fólk sem myndi taka slíka ákvörðun,“ segir Gunnar Smári Egilsson formaður SÁÁ.

Fimm féllu í skotárás í Seattle

Fimm féllu í skotárás á bílastæði við fjölbýlishús í Seattle í Bandaríkjunum í morgun. Á meðal hinna látnu er maðurinn sem hóf skothríðina en talið er að lögreglumenn hafi skotið hann til bana. Þrír aðrir karlmenn fórust og ein kona. Talið er að árásarmaðurinn hafi verið einn að verki en ekki er vitað hvað honum gekk til.

Ofbeldisbrotum fjölgar

Alls hafa verið skráðir 1.181 þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu það sem af er árinu 2013

Bilun í prentsmiðju

Bilun varð í prentsmiðjunni Ísafold í nótt. Bilunin olli því meðal annars að það vantar nokkrar blaðsíður í Fréttablaðið í dag. Meðal annars vantar síður 8 og 10 og síður 19 til 22. Á forsíðu er vísað í efni sem er á sumum af þessum síðum, meðal annars í leikdóm um Engla alheimsins.

Lögmaður grunaður í dópmáli

Íslenskur lögmaður á fertugsaldri sætti fyrr í mánuðinum gæsluvarðhaldi grunaður um að standa á bak við smygl á 300 grömmum af kókaíni til landsins.

Gamalt fólk fái heyrt í ljósinu

Nemendur í 2.S í Grunnskóla Hornafjarðar hafa óskað eftir því við bæjaryfirvöld að sett verði upp gönguljós með hljóðmerki hjá gangbrautinni við gatnamót Hafnarbrautar og Víkurbrautar.

575 milljónir fara í úrbætur

Alls hefur Framkvæmdasjóður ferðamannastaða úthlutað 575 milljónum króna til úrbóta á fjölsóttum ferðamannastöðum. Þriðja úthlutun sjóðsins fór nýverið fram.

Dæmi um samkeppnina um besta fólkið

„Kjarni málsins er að þetta mál varpar ljósi á þá samkeppni sem er um best menntaða og hæfasta tölvufólkið í landinu til að reka þessi stóru tölvukerfi, eins og það sem við erum að reka,“ segir Haukur Ingibergsson, forstjóri Þjóðskrár.

Önnur hver kona í meðferð greinir frá kynferðisofbeldi

Greiningarviðtöl við rúmlega 4.100 einstaklinga sem hafa leitað sér lækninga hjá SÁÁ vegna áfengis- eða vímuefnavanda sýna að stór meirihluti þessa stóra hóps hefur verið beittur ofbeldi einhvern tímann á ævinni. Rúmlega önnur hver kona hefur verið beitt kynferðislegu ofbeldi.

Skógrækt telur grisjun í Öskjuhlíð "vitleysu“

„Þetta samkomulag kemur eins og skrattinn úr sauðarleggnum,“ segir Helgi Gíslason, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, um fyrirhugaðar framkvæmdir á og í nágrenni Reykjavíkurflugvallar, sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Jón Gnarr borgarstjóri undirrituðu samkomulag um fyrir helgi. Það kveður meðal annars á um að lækka skuli gróður í Öskjuhlíðinni af öryggisástæðum.

Sjá næstu 50 fréttir