Mælist til þess að vegurinn verði endurskoðaður 22. apríl 2013 14:01 Mynd úr safni
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mælist til þess að bæjaryfirvöld í Garðabæ og Vegagerðin meti forsendur nýs Álftanesvegar upp á nýtt. Það segist hann gera vegna fjölda áskorana sem honum hafi borist, en töluverð gagnrýni hefur komið fram að undanförnu á umfang hins nýja vegar í Gálgahrauninu. En skipulagsvaldið hvíli hjá Garðabæ varðandi þessa vegagerð, sem gert hafi verið ráð fyrir í samgönguáætlun Alþingis og fjármagn liggi fyrir til framkvæmdanna. „Við eigum alltaf að vera tilbúin að taka allar ákvarðanir til endurskoðunar og ég verð að segja það yfirvöldum í Garðabæ til hróss að það hafa þau jafnan verið tilbúin að gera,“ segir Ögmundur. Hann segist hafa átt marga fundi með bæjaryfirvöldum í Garðabæ um vegaframkvæmdirnar og þau hafi ávallt verið reiðubúin til að skoða málin, og reiknar með að þau taki jákvætt í þessa málaleitan. „Þegar að eindregin beiðni kemur frá málsvörum náttúruverndar finnst mér það skylda, og mjög ljúf skylda, að hlusta á þær raddir.“ Ögmundur mælist til þess að verksamningur verði ekki undirritaður á meðan athugun á umfangi vegarins fer fram. Hann reiknar einnig með að vegamálastjóri bregðist vel við þessari málaleitan eins og öðrum.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Sjá meira