Innlent

Allir flokkarnir vilja efla landgræðslu

Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar
Þegar stefna flokkanna er borin saman kemur í ljós að þar er víða sami tónn sleginn. Þó ber nokkuð á milli hvað áherslur varðar.
Þegar stefna flokkanna er borin saman kemur í ljós að þar er víða sami tónn sleginn. Þó ber nokkuð á milli hvað áherslur varðar.
Umhverfismál ber ekki hátt í þessari kosningabaráttu og kjósendur þurfa að leggja í nokkra rannsóknarvinnu til að fræðast um stefnu flokkanna í þeim málaflokki.

Kjósendur virðast þó hafa meiri áhuga á umhverfismálum en flokkarnir, en í könnun sem Fréttablaðið og Stöð 2 gerðu kom fram að þau væru kjósendum mikilvægari en málefni verðtryggingar og Evrópusambandsins, svo dæmi séu nefnd.

Þeir flokkar sem hafa samþykkt sérstaka kosningastefnu, sem finna má á netinu, minnast varla á umhverfismál. Þau er til dæmis ekki að finna í kosningaáherslum Framsóknarflokksins og sé leitarorðið ?umhverfi? notað í kosningaáherslum Sjálfstæðisflokksins finnast aðeins setningar um starfsumhverfi fyrirtækja.

Stefna Bjartrar framtíðar í málaflokknum rúmast í sjö orðum: Verndum umhverfið. Verum umhverfisvæn. Græn í gegn. Eflaust eru fáir sem ekki geta skrifað upp á hana, þótt kannski sé vafa undirorpið hvað það þýði að vera græn í gegn.

Píratar hafa ekki samþykkt neina stefnu í málaflokknum og umræðuþráður um umhverfismál á þingi þeirra, en það er tæki sem flokkurinn notar til að ræða og samþykkja stefnu sína á netinu, er auður.

Landsfundasamþykktir

Flokkarnir hafa hins vegar flestir samþykkt sér ítarlega stefnu í umhverfismálum á landsfundum sínum. Þar er að finna útfærða stefnu þeirra í málaflokknum og ýmislegt sem kjósendur geta nýtt sér til að taka ákvörðun í vor, ætli þeir að láta afstöðu til umhverfismála ráða atkvæði sínu.

Þegar stefna flokkanna er borin saman kemur í ljós að þar er víða sami tónn sleginn. Þó ber nokkuð á milli hvað áherslur varðar.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur samþykkt ítarlega stefnu í málaflokknum, enda skilgreinir flokkurinn sig sem umhverfisflokk. Þar er sjálfbær þróun lykilatriðið og segir þar að hún sé ein af grunnstoðum flokksins. „Hún vísar til sameiginlegrar ábyrgðar okkar á því samfélagi sem við búum í og til ábyrgðar okkar gagnvart komandi kynslóðum.“

Samfylkingin segir umhverfisvitund vera forsendu jafnaðarstefnu á 21. öldinni. Flokkurinn leggur mikið upp úr grænu hagkerfi, en ríkisstjórnin hefur meðal annars lagt áherslu á það og Alþingi lét meðal annars vinna viðamikla skýrslu um málið. Með grænu hagkerfi er vísað til „hagkerfis sem leiðir til aukinna lífsgæða um leið og dregið er verulega úr umhverfislegri áhættu og röskun vistkerfa,“ eins og segir í umræddri skýrslu.

Framsóknarflokkurinn ítrekar það í stefnu sinni að hann vilji stjórnarskrárákvæði um að auðlindir eigi að vera í eigu þjóðarinnar, en á heimasíðu flokksins segir að það hafi ranglega verið borið upp á hann að svo sé ekki. Þar er rætt um að nýta náttúruauðlindir landsins af varúð og virðingu, en þó verði að nýta þau tækifæri sem til staðar eru, til að mynda með olíuvinnslu á Drekasvæðinu.

Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn sem fléttar arðsemi og hagkvæmni inn í umhverfisstefnu sína.

Sátt um uppgræðslu

Hæpið er að umhverfismál muni vefjast fyrir stjórnmálaflokkunum, þegar til stjórnarmyndunar kemur. Það væri þó líklega helst í virkjanamálum, en það er nokkuð athyglisvert hve lítið flokkarnir ræða um þau mál. Björt framtíð er þó býsna skýrmælt þegar hún segir að frekari uppbygging álvera sé ekki skynsamleg.

Flokkarnir munu hins vegar ekki eiga í vandræðum með að ná saman um landgræðslu, en allir leggja þeir mikið upp úr henni, nema Björt framtíð.

Landgræðslan virðist því enn vera leiðarstefið í umhverfisvernd á Íslandi, en segja má að á 20. öldinni hafi umhverfismál að langmestu leyti snúist um hana. Í það minnsta er ljóst að umhverfismál eru ekki ofarlega í huga flokkanna nú um stundir.

Björt framtíð - Græn í gegn

  • Vernda umhverfið. Vera umhverfisvæn. Græn í gegn.
  • Minnka sóun og auka endurvinnslu.
  • Efla umhverfisvænar samgöngur.


Framsóknarflokkur - Auka langtímasýnina


  • Nýta náttúruauðlindir af varúð með sjálfbærni að leiðarljósi.
  • Gera Ísland sem mest óháð innflutningi orkugjafa, til dæmis með olíuvinnslu á Drekasvæðinu.
  • Þróa betur endurnýjanlega orkugjafa.
  • Efla landgræðslu.
  • Auka langtímasýn á sem flestum sviðum og marka stefnu um landnotkun.
  • Setja lög um rétt almennings til heilnæms umhverfis og ómengraðra matvæla.
  • Ísland verði í fararbroddi á alþjóðavísu um hnattræna umhverfisvernd.


Sjálfstæðisflokkur - Skynsamleg nýting auðlinda


  • Arðbær nýting á auðlindum í takt við umhverfissjónarmið. Nýtingarréttur verði í höndum einkaaðila sem greiði hóflegt og sanngjarnt nýtingagjald.
  • Tryggja aðgang að góðu drykkjarvatni með vatnsvernd.
  • Tryggja gott aðgengi að landi til útivistar.
  • Breyta Rammaáætlun í takt við upphaflegar tillögur sérfræðinga.
  • Nýta einkaframtakið í náttúruvernd en heimila gjaldtöku náttúruperlna.
  • Afnema nýsett náttúruverndarlög.
  • Efla landgræðslu.


Samfylking - Efling græna hagkerfisins

  • Fara gætilega í uppbyggingu í vatnsafli og jarðvarma og efla rannsóknir á öðrum orkukostum.
  • Móta framleiðslustefnu í lífrænum landbúnaði.
  • Efla landgræðslu.
  • Fjárfesta í þjóðgörðum og setja stjórnsýslu þeirra undir einn hatt.
  • Efla græna hagkerfið með fjárfestingum ríkisvaldsins og aðgerðum í samvinnu við atvinnulífið.
  • Stórefla opinbert eftirlit með því að lögum um umhverfis- og mengunarmál sé fylgt.
  • Marka stefnu um olíuleit á Drekasvæðinu.


Vinstri græn - Sjálfbær þróun lykilatriðið

  • Sjálfbær þróun ein af grunnstefnum flokksins.
  • Vinna markvisst gegn hlýnun lofthjúps jarðar af mannavöldum.
  • Hraða vinnu við friðlýsingar svæða í 2. áfanga Rammaáætlunar.
  • Draga úr neyslu og leggja áherslu á endurvinnslu og endurnýtingu.
  • Efla varnir gegn mengun frá jarðhitavirkjunum.
  • Vinna eftir samningi SÞ um líffræðilega fjölbreytni og evrópska landslagssáttmálanum.
  • Stórauka rannsóknir á umhverfisáhrifum ferðamennsku.
  • Efla landgræðslu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×