Fleiri fréttir

Troðfullt í Kringlunni

Kringlan auglýsti sérstaka miðnæturopnun í kvöld af þeim sökum að óðum styttist í jólin. Fjöldi fólks rauk til og augljóst að kominn er verslunarhugur í borgarbúa.

Jóhann Berg skoraði tvö í bikarleik

Jóhann Berg Guðmundsson var á skotskónum með liði sínu, AZ Alkmaar, sem vann 4-1 sigur á D-deildarliðinu Boso Sneek í hollensku bikarkeppninni.

Afleitar aðstæður á vegum

Ferðaveður á landinu er afleitt, hálendið ófært eins og það leggur sig og umferðartafir víða.

Vilja leyfa áfengisauglýsingar

Félag atvinnurekenda vill að áfengisauglýsingar séu að meginreglu heimilar en þó með ströngum takmörkunum.

Leitin skapar fjölda starfa þótt engin olía finnist

Olíuleit við Ísland mun skila verulegum fjölda starfa, jafnvel þótt engin olía finnist. Endurgreiðslur norska ríkisins vegna olíuleitar gætu hins vegar freistað olíufélaga til að bora fremur Noregsmegin á Jan Mayen-svæðinu. Þetta kom fram á ráðstefnu í Reykjavík í dag. Ert þú klár í olíufund?

Alvarlegir fjárhagserfiðleikar hjá Eir

Hjúkrunarheimilið Eir er í miklum rekstrarvanda. Stjórn þess hefur fengið utanaðkomandi sérfræðinga til þess að fara yfir reksturinn og leggja fram tillögur til að koma í veg fyrir að félagið fari í þrot.

Hringdi í íslensku Neyðarlínuna frá Serbíu

"Það munaði öllu að geta fengið ráð á móðurmálinu um hvað ég ætti að gera,“ segir Gerður Hlín Eggertsdóttir. Eins árs sonur hennar, Júlían Gauti, hætti skyndilega að anda og blánaði upp þar sem hann sat við morgunverðarborð fjölskyldunnar í Serbíu. Fjölskyldan hafði aðeins verið búsett ytra í tvo mánuði þegar atvikið átti sér stað og Gerður Hlín hringdi samstundis í hina íslensku Neyðarlínu, 112, í gegnum íslenskan tölvusíma til að fá leiðbeiningar.

Sigmundur flytur norður

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, ætlar að flytja lögheimili sitt í Norðausturkjördæmi.

Nauðgari nýtti sér ölvunarástand fórnarlambs

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Norðurlands Eystra yfir Jóhanni Inga Gunnarssyni, 27 ára, sem sakfelldur var fyrir að hafa nauðgað konu í júní á síðasta ári.

Kókainkona í fimmtán mánaða fangelsi

Hæstiréttur staðfesti í dag fangelsisdóm yfir konu um þrítugt sem dæmd var fyrir að skipuleggja og fjármagna smygl á tæplega 500 grömmum af kókaíni til landsins. Tvö burðardýr, sem hún útvegaði til verksins, voru dæmd í tíu og átta mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Íslenska ríkið sýknað

Foreldrar, ósjálfráða drengs, fóru í mál við ríkið vegna líkamstjóns sem þau töldu að sonur þeirra hefði orðið fyrir við fæðingu sína í mars árið 1999.

Sigurður segir saksóknara hafa kippt fótum undan sér

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, segir að sú ákvörðun sérstaks sakóknara að láta lýsa eftir sér hjá Interpol hafi haft miklar afleiðingar fyrir sig. Þetta sagði Sigurður við fjölmiðla þegar málflutningur um frávísunarkröfu al-Thani málsins fór fram í dag.

Ernir mun fljúga óskert næstu mánuði

Flugfélagið Ernir mun næstu mánuði halda áfram óskertri vetraráætlun sinni innanlands eins og verið hefur undanfarin ár en í gær stefndi í að hætta yrði fluginu nú um mánaðamótin vegna skorsts á opinberu framlagi til verkefnisins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá framkvæmdastjóri Ernis, Herði Guðmundssyni.

Skakkir á Suðurnesjum

Þrír ökumenn, sem allir voru grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna, voru handteknir á Suðurnesjum í vikunni. Við leit í bifreið eins þeirra fundust leifar af umbúðum utan af fíkniefnum. Í bifreið annars ökumanns var yfirþyrmandi kannabislykt, þegar lögregla stöðvaði för hans. Sá ökumaður reyndist vera með fíkniefni í buxnavasa sínum, þegar hann var handtekinn. Allir ökumennirnir þrír viðurkenndu neyslu fíkniefna.

Ódýrast í Bónus

Bónus var með lægsta verðið á matarkörfunni þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum á höfðuborgarsvæðinu síðastliðinn laugardag.

Svolítið skotinn í Sonum duftsins

Ný bók Arnaldar Indriðasonar, Reykjavíkurnætur, kemur út í dag. Arnarldur segir í samtali við Vísi að bókin gerist árið 1974, tveimur árum eftir Einvígið sem kom út í fyrra. Hún segir frá fyrsta málinu sem Erlendur Sveinsson vinnur að í lögreglunni. "Þá er hann bara í umferðarlöggunni og vinnur mikið á næturvöktum. Þaðan er nafnið komið,“ segir hann. Marion Briem kom mikið við sögu í bókinni í fyrra, en Erlendur vill ekkert segja til um hvort Marion komið mikið við sögu í nýju bókinni. "Ég vildi nú helst ekki segja mikið meira um efnið, betra að fólk upplifi það þá frekar sjálft,“ segir Arnaldur í samtali við Vísi.

Stingur upp á ríkisflugfélagi

Jón Bjarnason þingmaður VG viðrar þá hugmynd að ríkið stofni flugfélag til þess að sinna flugsamgöngum til landsbyggðarinnar.

Rannveig styður Árna Pál - harðnandi barátta

Rannveig Guðmundsdóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar og ráðherra, skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hún lýsir yfir stuðningi við Árna Pál Árnason, bæði í 1. sætið í prófkjöri flokksins sem fram fer þar næstu helgi, og einnig í formansembættið sem Árni Páll hefur tilkynnt að hann sækist eftir.

Al Thani málið: Sakar saksóknara um ólögmætar aðgerðir

Málflutningur um frávísunarkröfu í al-Thani málinu fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málið snýst um ákæru á hendur hendur öllum helstu stjórnendum Kaupþings, þeim Hreiðari Má Sigurðssyni, Sigurði Einarssyni og Magnúsi Guðmundssyni, auk Ólafi Ólafssyni einum stærsta eiganda hins fallna banka. Mennirnir eru ákærðir fyrir markaðsmisnotkun og umboðssvik með því að hafa selt al-Thani bréf í bankanum án þess að nokkur greiðsla kæmi á móti. Þannig hafi verið látið líta út fyrir að verð hlutabréfa í bankanum væri hærra en það raunverulega var.

Ofsaveður á morgun þegar verst lætur

Búist er við því að mestu vindhviður geti farið upp í allt að 55 m/s við fjöll, einkum á sunnanverðu landinu frá Snæfellsnesi til Austfjarða næstu tvo sólarhringa. Veðurstofan varar við vonskuveðri og búast má við að vindhraðinn verði á bilinu 20-28 m/s. Gert er ráð fyrir talsverðri ofankomu á Norðurlandi og Austurlandi.

Thelma stjórnar stjórnsýslusviði

Thelma Cl. Þórðardóttir lögfræðingur hefur tekið við stjórnsýslusviði embættis ríkislögreglustjóra í stað Guðmundar Guðjónssonar, sem lætur af störfum fyrir aldurs sakir. Thelma, sem er framhaldsmenntuð í lögfræði, hefur starfað hjá embættinu frá árinu 2004, þar af sem yfirlögfræðingur frá árinum 2007. Á námsárunum stundaði hún sumarafleysingar í lögreglunni.-

Kynna niðurstöður um rannsókn á kynferðisbrotum

Rannsóknarnefnd kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, sem var skipuð til að rannsaka starfshætti og viðbrögð kaþólsku kirkjunnar á Íslandi vegna framkominna ásakana um kynferðisbrot eða önnur ofbeldisbrot, ætlar að kynna skýrslu sína á morgun. Kynferðisbrot innan kaþólsku kirkjunnar komust í hámæli í fyrrasumar þegar fjölmiðlar fjölluðu um ásakanir á hendur Margréti heitinni Müller, kennara við Landakotsskóla, og fleirum sem sögð eru hafa átt sér stað á síðustu öld.

Báðu móður fíkils að leyna samkomulagi

Smálánafyrirtækið Kredia lokaði lánareikningi 21 árs manns að tilstuðlan móður hans. Þjónustufulltrúi Kredia bað þó móður mannsins, Dagbjörtu Steindórsdóttur, að láta hann ekki vita af fyrirkomulaginu.

Þrjú börn ættleidd til einhleypra á árinu

Ættleiðingar einhleypra hafa hafist á nýjan leik eftir fimm ára hlé. Tvær einhleypar konur hafa fengið börn til sín frá Tékklandi og Tógó og sú þriðja fær barn innan skamms. "Rosalega ánægjulegt ferli,“ segir Ásta Bjarney Elíasdóttir.

Lagt til að Norðurlöndin verði tóbakslaus árið 2040

„Þessar tillögur eru mjög framsýnar og í raun átti ég ekki von á því að nefndin gengi svona langt," segir Siv Friðleifsdóttir þingmaður og formaður velferðarnefndar Norðurlandaráðs. Þing ráðsins stendur nú yfir í Helsinki og í dag verður fjallað um víðtækar tillögur nefndarinnar í lýðheilsustefnu í áfengis- og fíkniefnamálum. Meðal þess sem nefndin leggur til er að Norðurlöndin verði tóbakslaus árið 2040, áfengisauglýsingar sem beinast sérstaklega að ungu fólki verði bannaðar og settir verði áfengislásar í bíla sem komi í veg fyrir það að bílstjórar undir áhrifum áfengis geti ekið af stað.

Mæta mikilli þörf á vistrými

Sinnum heimaþjónusta kynnir í dag Heimilið, nýtt búsetuúrræði fyrir bæði eldri borgara og yngra fólk sem þarf á umönnun að halda.

Bæjarfulltrúa hótað af lækni

Oddi Helga Helgasyni, bæjarfulltrúa L-listans á Akureyri, hafa borist hótanir frá lækni í bænum vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Dalsbraut.

Toppeinkunn frá ferðafólki

Notendur heimasíðunnar Tripadvisor.com gefa Þingvöllum hæstu einkunn sem áfangastað eða fjóra og hálfa stjörnu af fimm mögulegum.

Sameiginlegt sendiráð í Reykjavík

Finnar, Svíar, Danir og Norðmenn hafa ákveðið að flytja sendiráð sín á Íslandi í sameiginlega sendiráðsbyggingu með sama hætti og Norðurlöndin hafa gert í Berlín. Þetta kom fram á blaðamannafundi utanríkisráðherra Norðurlanda á Norðurlandaráðsþingi í Helsinki í gær.

Sjálfræði nemenda minnkar

„Nokkuð er um að nemendur á nýju skólastigi byrji að vinna aftur að einhverju sem þeir voru að læra á skólastiginu á undan,“ segir Gerður G. Óskarsdóttir menntunarstjóri sem hefur unnið að rannsókn á skilum skólastiga.

Fá skip að veiðum

Spáð er stormi á öllum miðum og djúpmiðum umhverfis landið nema á Suðvesturdjúpi. Aðeins 50 fiskiskip eru á sjó við landið, sem er með því minnsta sem þekkist, og eru flest þeirra í vari, eða þau halda sjó og eru þar með ekki að veiðum. Með þessu áframhaldi í nokkra daga fer að skorta fisk á markaðina.-

Kaupunum á Actavis lokið

Samheitalyfjafyrirtækið Watson hefur tilkynnt að kaupunum á Actavis sé lokið. Ekki verða marktækar breytingar á starfseminni á Íslandi. Hið nýja félag verður þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtæki heimsins með tekjur upp á um 6 milljarða dollara eða rúmlega 760 milljarða króna.

Sjá næstu 50 fréttir