Innlent

Spá illviðri fram á laugardag

ÞJ skrifar
Útlit er fyrir vonskuveður á norðanverðu landinu næstu daga og er líklegt að illfært verði víða. Fréttablaðið /HAG
Útlit er fyrir vonskuveður á norðanverðu landinu næstu daga og er líklegt að illfært verði víða. Fréttablaðið /HAG
Norðanillviðri verður á landinu fram á laugardagskvöld, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar.

Búist er við stormi víða um land í dag. Norðanátt og snjókoma verður um norðanvert land með vindhraða á bilinu 18 til 25 metrar á sekúndu, en úrkomulítið verður sunnanlands. Frost verður allt niður í fimm stig.

Ekki er búist við að veður fari að ganga niður fyrr en seint á laugardag og sunnudag. Frost gæti farið allt niður í tíu stig, en spár gera ráð fyrir að hlýna taki á mánudag og þriðjudag.

Á vef Vegagerðarinnar segir að útlit sé fyrir mjög slæmt ferðaveður og að færð spillist, sérstaklega norðaustanlands, vegna ofankomu, skafrennings og vinds.

Annars staðar má búast við snörpum vindhviðum við fjöll, til dæmis á Kjalarnesi og í Hamarsfirði. Undir Eyjafjöllum og Vatnajökli má svo búast við meðalvindi jafnvel um 20-25 metra á sekúndu og vindhviðum upp undir 40 metra á sekúndu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×