Innlent

Bæjarfulltrúa hótað af lækni

SV skrifar
Oddi Helga Helgasyni, bæjarfulltrúa L-listans á Akureyri, hafa borist hótanir frá lækni í bænum vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Dalsbraut.

Greint er frá þessu í Akureyri vikublaði, en þar kemur fram að málið sé litið alvarlegum augum, sér í lagi vegna stöðu mannsins sem hótar bæjarfulltrúanum. Tölvupóstar vegna málsins hafi farið milli bæjarfulltrúa og til bæjarstjóra.

Framkvæmdir við Dalsbraut á Akureyri hafa verið fyrirhugaðar í fjölda ára og eru mjög skiptar skoðanir meðal íbúa um þær áætlanir. Oddur vildi ekki tjá sig um málið við blaðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×