Innlent

Björgunarsveitir standa í ströngu - bíll fastur á Steingrímsfjarðarheiði

Björgunarsveitin að störfum.
Björgunarsveitin að störfum. Mynd/Freyr Ingi Björnsson
Allnokkur útköll hafa verið björgunarsveitum um land allt síðasta sólarhringinn tengd óveðri því sem gengur yfir landið samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörg.

Síðustu klukkustundir hafa björgunarsveitir frá Vík í Mýrdal og Þórshöfn verið kallaðar út vegna þakplatna sem eru að fjúka af húsþökum og rétt í þessu var björgunarsveitin á Hólmavík kölluð út vegna bíls sem er fastur á Steingrímsfjarðarheiði.

Slysavarnafélagið Landsbjörg vill koma því á framfæri að veðurspáin er mjög slæm víða um land næstu sólarhringa og ekkert ferðaveður er mjög víða. Afar brýnt er að þeir sem telja sig nauðsynlega þurfa að vera á ferð kanni veðurspár og færð á vegum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×