Innlent

Skakkir á Suðurnesjum

Mynd úr safni
Mynd úr safni
Þrír ökumenn, sem allir voru grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna, voru handteknir á Suðurnesjum í vikunni. Við leit í bifreið eins þeirra fundust leifar af umbúðum utan af fíkniefnum. Í bifreið annars ökumanns var yfirþyrmandi kannabislykt, þegar lögregla stöðvaði för hans. Sá ökumaður reyndist vera með fíkniefni í buxnavasa sínum, þegar hann var handtekinn. Allir ökumennirnir þrír viðurkenndu neyslu fíkniefna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×