Innlent

Toppeinkunn frá ferðafólki

GAR skrifar
Fjórar stjörnur af fimm á Tripadvisor.
Fjórar stjörnur af fimm á Tripadvisor.
Notendur heimasíðunnar Tripadvisor.com gefa Þingvöllum hæstu einkunn sem áfangastað eða fjóra og hálfa stjörnu af fimm mögulegum.

Þetta kemur fram á vefsetri þjóðgarðsins. Þar segir jafnframt að Tripadvisor.com sé vinsæl síða til að meta ferðamannastaði og gefa þeim einkunnir. Þar sé til dæmis litið til einstakra veitingastaða og hótela og svo til heilla borga og landa. „Þingvellir eru einn fjölsóttasti áfangastaður ferðamanna á Íslandi og má á vefnum lesa um skoðanir og upplifanir ferðamanna á Þingvöllum,“ segir á Thingvellir.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×