Stingur upp á ríkisflugfélagi GRV skrifar 1. nóvember 2012 12:14
Jón Bjarnason þingmaður VG viðrar þá hugmynd að ríkið stofni flugfélag til þess að sinna flugsamgöngum til landsbyggðarinnar. Flugfélagið Ernir tilkynnti í gær að allt stefni í að hætta verði áætlunarflugi til minni áfangastaða félagsins á landsbyggðinni. Sveitarstjórnir víðsvegar um land hafa mótmælt þessum fyrirætlunum og skorað á Innanríkisráðuneytið og Alþingi að grípa til aðgerða. Jón Bjarnason þingmaður VG hefur óskað eftir umræðum á Alþingi um málið. „Þetta er alvarlegt mál sérstaklega fyrir byggðir sem hafa ekki aðrar samgöngur en með flugi yfir lengstan hluta ársins. Þessi óvissa og þessar hótanir eru auðvitað alveg óviðunandi fyrir íbúana á þessum svæðum. Þessvegna hef ég óskað eftir því að ræða þetta á Alþingi og heyra til hvaða aðgerða er hægt að grípa til að tryggja þetta flug áfram," segir hann. En til hvaða aðgerða á að grípa að mati Jóns? „Okkur ber öllum skylda til að halda uppi samgöngum og þjónustu við íbúana hvar sem þeir búa á landinu. Þarna er flugið afar mikilvægt. Við höfum nýlega gert þjónustusamninga um áætlunarferðir með bílum eftir megin veglínunum og því ekki þá að ríkið líka beri ábyrgð á samgöngunum þarna," segir hann. „Og ef það þarf að setja á fót ríkisflugfélag eða með öðrum hætti að koma beint að því, þá verður að gera það. Því þetta er réttur íbúanna á þessum stöðum og okkar eru skyldurnar," bætir hann við að lokum.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira