Innlent

Troðfullt í Kringlunni

BBI skrifar
Mynd/Jón Hákon
Kringlan auglýsti sérstaka miðnæturopnun í kvöld af þeim sökum að óðum styttist í jólin. Fjöldi fólks rauk til og augljóst að kominn er verslunarhugur í borgarbúa.

Samkvæmt heimildum Vísis eru öll bílastæði troðfull við Kringluna og örtröðin líkust því sem gerist á Þorláksmessu.

Í kvöld verður opið til miðnættis í Kringlunni til að ramma inn jólavertíðina þar á bæ. Af þessu tilefni ákváðu margar verslanir að bjóða afslátt af ákveðnum vörum. Og slíkt tækifæri létu borgarbúar ekki ganga úr greipum sér.

Mynd/Jón Hákon



Fleiri fréttir

Sjá meira


×