Innlent

Rannveig styður Árna Pál - harðnandi barátta

Rannveig Guðmundsdóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar og ráðherra, skrifar grein á Vísir.is þar sem hún lýsir yfir stuðningi við Árna Pál Árnason, bæði í 1. sætið í prófkjöri flokksins sem fram fer þar næstu helgi, og einnig í formansembættið sem Árni Páll hefur tilkynnt að hann sækist eftir.

Í greininni lýsir Rannveig því yfir að það hafi verið persónuleg vonbrigði fyrir hana sjálfa þegar Árni Páll hætti sem Viðskipta- og efnahagsráðherra árið 2011. „Enda kom í ljós samkvæmt Capacent Gallup að fylgi Samfylkingar í kjördæminu hrundi í kjölfarið," skrifaði Rannveig.

Stuðningur Rannveigar kemur nú þegar prófkjörsbarátta Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæminu fer harðnandi. Meðal annars hefur Árni Páll ráðið til sín kosningastjóra forseta Íslands, Ólafíu B. Rafnsdóttur, en hún vann einnig með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur þegar hún bauð sig fram til formanns gegn Össur Skarphéðinssyni árið 2005. Þá sigraði Ingibjörg.

Árni Páll Árnason.
Katrín Júlísdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, sækist einnig eftir fyrsta sætinu en hún var í öðru sæti í síðasta prófkjöri

Í framboði eru Amal Tamimi, framkvæmdastjóri, sem býður sig fram í 2.-3. sæti, Anna Sigríður Guðnadóttir, deildarstjóri Heilbrigðisvísindabókasafns LSH, í 2.-4. sæti, og svo auðvitað Árni Páll Árnason, alþingismaður, sem býður sig fram í 1. sæti, Geir Guðbrandsson, vaktstjóri, í 5. sæti, Katrin Júlíusdóttir, alþingismaður og ráðherra, í 1. sæti, Lúðvík Geirsson, alþingismaður, í 2. sæti, Magnús Orri Schram, alþingismaður, í 2.-3. sæti, Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi og kennari, í 3.-4. sæti, Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum, í 3.-4. sæti og Stefán Rafn Sigurbjörnsson, nemi, í 3.-5. sæti.

Þingmenn kjördæmisins eru þau Katrín og Árni Páll og svo Lúðvík og Magnús Orri.


Tengdar fréttir

Stuðningsgrein: Árni Páll er rétti maðurinn

Ég tók því afar illa þegar Árni Páll Árnason var settur út úr ríkisstjórn um sl. áramót. Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu var þá millilent í sameinuðu atvinnumálaráðuneyti til þess svo að vera staðsett nýverið í fjármálaráðuneyti. Með mannabreytingunni var höggvið í pólitíska stöðu fjölmennasta kjördæmisins og þetta sterkasta vígi jafnaðarmanna – Kraginn – veiklað að óþörfu. Enda kom í ljós samkvæmt Capacent Gallup að fylgi Samfylkingar í kjördæminu hrundi í kjölfarið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×