Innlent

Sigurður segir saksóknara hafa kippt fótum undan sér

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, segir að sú ákvörðun sérstaks sakóknara að láta lýsa eftir sér hjá Interpol hafi haft miklar afleiðingar fyrir sig. Þetta sagði Sigurður við fjölmiðla þegar málflutningur um frávísunarkröfu al-Thani málsins fór fram í dag.

„Þegar þetta gerist þá er ég þokkalega kominn á leið við að afla mér lífsviðurværis á nýjan leik en þetta lagði allar þær fyrirætlanir í rúst," segir hann. „Þetta kom algerlega eins og þruma úr heiðskíru lofti enda algjörlega ólöglegt og ósiðlegt af hálfu saksóknara," segir hann. Hann segir að þetta ætti að vera næg ástæða til að vísa málinu frá.

Í meðfylgjandi myndskeið getur þú séð ítarlegt viðtal við Sigurðs sem Magnús Halldórsson fréttamaður tók.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×