Innlent

Ernir mun fljúga óskert næstu mánuði

Flugfélagið Ernir.
Flugfélagið Ernir. Mynd/ Óskar
Flugfélagið Ernir mun næstu mánuði halda áfram óskertri vetraráætlun sinni innanlands eins og verið hefur undanfarin ár en í gær stefndi í að hætta yrði fluginu nú um mánaðamótin vegna skorsts á opinberu framlagi til verkefnisins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá framkvæmdastjóri Ernis, Herði Guðmundssyni.

Vísir greindi frá því í gær að forsvarsmenn flugfélagsins stefndu á að hætta öllu áætlunarflugi til minni áfangastaða á Íslandi. Flugfélagið hefur hingað til flogið til Húsavíkur og Vestmannaeyja, en einnig á minni áfangastaði eins og á Höfn í Hornafirði, Bíldudals og Gjögur.

Fulltrúar innanríkisráðuneytis, Vegagerðarinnar, Flugmálastjórnar og Isavia funduðu um stöðuna í ráðuneytinu í gær.

Í framhaldi af því ræddust við í dag þeir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri og Hörður, framkvæmdastjóri Ernis, og komust að samkomulagi um að Ernir myndu starfrækja áætlunarflug sitt innanlands eins og verið hefur næstu vikur a.m.k fram til áramóta.

Tíminn verður jafnframt notaður til að fara yfir fjárhagslegan grundvöll flugs á ríkisstyrktum leiðum næsta ár, en samningur yfirvalda og flugfélagsins rennur út í lok árs 2013 að því er fram kemur í tilkynningu frá Erni.

Munu fulltrúar Ernis og samgönguyfirvalda fara yfir stöðuna ásamt fulltrúum fjárveitingavaldsins.


Tengdar fréttir

Stingur upp á ríkisflugfélagi

Jón Bjarnason þingmaður VG viðrar þá hugmynd að ríkið stofni flugfélag til þess að sinna flugsamgöngum til landsbyggðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×