Innlent

Sameiginlegt sendiráð í Reykjavík

Finnar, Svíar, Danir og Norðmenn hafa ákveðið að flytja sendiráð sín á Íslandi í sameiginlega sendiráðsbyggingu með sama hætti og Norðurlöndin hafa gert í Berlín. Þetta kom fram á blaðamannafundi utanríkisráðherra Norðurlanda á Norðurlandaráðsþingi í Helsinki í gær.

Embættismönnum hefur verið falið að undirbúa flutning sendiráðanna í sameiginlega byggingu og kynna tillögur um það á næsta fundi utanríkisráðherranna sem verður haldinn vorið 2013. Sameiginleg sendiráðsbygging Norðurlanda í Berlín var opnuð árið 1999. Nú eru uppi áform um sams konar samstarf í ýmsum löndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×