Fleiri fréttir

Eyðibýli brann til kaldra kola

Íbúðarhúsið að eyðibýlinu Hóli í Dalabyggð brann til kaldra kola í morgun. Ekki hefur verið búið í húsinu í eitt ár, en það er þó enn tengt við rafmagn. Vegfarandi sá eld og reyk, frá húsinu á sjöunda tímanum í morgun og hringdi hann strax á slökkvilið Dalabyggðar í Búðardal, sem er í um 20 kílómetra fjarlægð.

Fjórir grunaðir um að hafa brotið gegn konu í miðborg Reykjavíkur

Kona var flutt á neyðarmóttöku Landspítalans fyrir þolendur kynferðisafbtota í gærmorgun eftir að hún fannst við Kjörgarð í miðborg Reykjavíkur. Lögreglan hefur handtekið fjóra menn vegna rannsóknar málsins. Þetta staðfestir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. Hann segir að málið sé í rannsókn en vill að öðru leyti ekki tjá sig um það.

Hnoðaði lífi í ókunnuga konu á bílaplani

"Við viljum hafa uppi á honum til þess að geta þakkað honum fyrir,“ segir Bryndís Vilbergsdóttir, systir konu sem fékk hjartastopp á bílaplani við N1 í Hveragerði fyrr í þessum mánuði. Maður sem átti leið um bensínstöðina hnoðaði í hana lífi þar til sjúkraflutningamenn komu á vettvang.

Margrét Pála fer til starfa á Tálknafirði

Margrét Pála Ólafsdóttir stofnandi Hjallastefnunnar hefur verið ráðinn skólastjóri Tálknafjarðarskóla, sem er sameinaður leik-, grunn- og tónlistarskóli Tálknafjarðar. Ríflega sjötíu nemendur stunda nám við skólann. Margrét Pála hefur störf um næstu mánaðarmót og mun sinna starfinu að minnsta kosti í eitt ár á meðan skólinn er að aðlagast Hjallastefnunni.

Saka stjórnvöld um að virða alþjóðasamninga að vettugi

Stjórnvöld gera innflutning á landbúnaðarvörum eins erfiðan og mögulegt er og Samtök verslunar og þjónustu þurfa að nýta flest úrræði sem tiltæk eru að lögum til að knýja á um að farið sé að alþjóðasamningum í þeim efnum. Þetta segja forystumenn Samtakanna, þau Margrét Kristmannsdóttir og Andrés Magnússon í grein sem birtist í Fréttablaðinu og á Vísi í dag. Þau segja það jafnframt dapurlegt að allir stjórnmálaflokkarnir á Alþingi virðist jafn áhugalausir um það að virða gerða samninga.

Ferðamenn slösuðust í bifhjólaslysi

Tveir erlendir ferðamenn, sem voru saman á bifhjóli, meiddust, en þó ekki alvarlega þegar ökumaður hjólsins missti stjórn á því í lausamöl á Bíldudalsvegi á móts við Hálfdán í gærkvöldi. Þeir voru fluttir á sjúkrahúsið á Patreksfirði, þar sem gert var að sárum þeirra.

Börn í lífshættu vegna einangrunar sem fylgir netfíkn

Af þeim rúmlega 900 börnum sem skráð eru í meðferð á göngudeild Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans, BUGL, glímir stór hópur drengja á aldrinum 14 til 18 ára við netfíkn. Í alvarlegustu tilfellunum eru börnin lögð inn. Þau eru þá ekki bara hætt samskiptum við aðra í umhverfinu vegna mikillar tölvunotkunar heldur eru þau beinlínis í lífshættu vegna þunglyndis og vanvirkni. Þetta segir Guðlaug María Júlíusdóttir, verkefnastjóri félagsráðgjafar á kvenna- og barnasviði Landspítalans.

Útköll vegna elds í rusli og bílabruna

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Langholtsskóla í gærkvöldi til að slökkva í rusli, sem logaði það í útigrilli, sem er í trjálundi skammt frá skólanum.

Strandveiðisvæði lokað

Strandveiðisvæðinu frá Ísafjarðardjúpi og austur fyrir Eyjafjörð verður lokað á miðnætti, þar sem júlíkvótinn verður uppurinn.

Kálið ræktað nærri vígðri mold

Paradís virðist ekki hafa farið langt þó Eden í Hveragerði hafi brunnið því að skammt frá rústum Edens slá feðginin Hjörtur Benediktsson og Helga Hjartardóttir upp markaði um helgar þar sem grænmeti, bleikja og hrossabjúgu renna út eins og heitar lummur.

Fá klapp á bak frá Trip Advisor

Við hlutum þessa viðurkenningu í fyrra, fyrst allra dagsferðarfyrirtækja hérlendis, og erum mjög stolt af að hafa hlotið hana aftur í sumar,? segir Guðmundur Sigurðsson, eigandi ferðaskrifstofunnar Gateway to Iceland sem hlotið hefur viðurkenningu fyrir framúrskarandi frammistöðu frá ferðavefnum Trip Advisor. Margir skipuleggja ferðalög sín samkvæmt Trip Advisor. Við höfum fengið mikil skrif þarna inni og finnum vel fyrir því,? segir Guðmundur. - trs

Logn skemmdi flugdrekaflug

"Það var mikið stuð hér og rosalega gaman, en því miður vantaði allan vind og því fóru flugdrekarnir lítið sem ekkert á loft," segir Guðlaugur Ottesen Karlsson hjá Viðeyjarferjunni. Ætlunin var að reyna við Íslandsmet í flugdrekaflugi á fjölskylduhátíð sem fram fór í Viðey í gær. Fyrra met var sett í eynni árið 2010. "Við reynum bara aftur við þetta á næsta ári," segir Guðlaugur hress í bragði. Samkvæmt tölum Viðeyjarferjunnar skemmtu sér tæplega 300 manns þar saman í gær. - trs

Tuttugasti október verði kjördagur

Gera má ráð fyrir því að þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs fari fram 20. október, á meðan ekki hefur verið tekin önnur ákvörðun. Þetta kemur fram í bréfi Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, til innanríkisráðuneytisins.

Með vottorð frá Leonard Cohen

Íslenska hljómsveitin The Saints of Boogie Street, sem sérhæfir sig í flutningi á lögum Leonards Cohen, fékk nýverið þakkarbréf frá söngvaskáldinu sjálfu þar sem farið er lofsamlegum orðum um túlkun hljómsveitarinnar á lögunum.

Óttast að skilaboð um árangur rati ekki til almennings

Forystufólk í Vinstri grænum hefur sérstakar áhyggjur af því að skilaboð um góðan árangur ríkisstjórnarinnar rati ekki til kjósenda. Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, telur ástæðuna aðallega vera neikvæðni og hörku í opinberri umræðu.

Laumufarþegar ógna öryggi starfsfólks

Eimskip vill að stjórnvöld bregðist við ítrekuðum tilraunum hælisleitenda til að smygla sér um borð í skip. Félagið telur öryggi starfsfólks ógnað og hefur sent innanríkisráðherra bréf vegna málsins. Þrír voru handteknir í nótt eftir slíka tilraun í Reykjavíkurhöfn.

Annie kemur ekki til greina sem íþróttakona ársins

Crossfit er ekki flokkað sem íþróttagrein hjá Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ). Það hefur í för með sér að Annie Mist Þórisdóttir, afrekskona í greininni kemur ekki til greina þegar íþróttamaður ársins verður valinn í vetur, jafnvel þó hún eigi góða möguleika á að vinna heimsmeistaratitil í greininni. Þegar þetta er skrifað eru þrjár þrautir eftir af heimsmeistaramótinu í crossfit og Annie er í fyrsta sæti með 59 stiga forystu og hefur þar með aukið forystu sína í dag.

Fjallkonan átti sér norska systur

Árið 2004 fundust leifar ríkulega búinnar konu frá víkingaöld. Fundur hennar er einstakur hér á landi en hún bar á sjötta hundrað perla og annað skart. Nú er kominn í ljós annar sambærilegur fornleifafundur í Noregi og áleitnar spurningar hafa vaknað um hverjar konurnar voru. Svavar Hávarðsson komst að því að heimildarmynd er í smíðum sem varpar ljósi á einstakan fund.

Lýst eftir Richard

Lögreglan á Húsavík lýsir eftir Richard Oddi Haukssyni. Richard er 35 ára, með skollitað hár, grannur og um 184 cm á hæð. Hann var íklæddur grá/bláum gallabuxum, svartri hettupeysu og svörtum Cintamani vindjakka. Í gráum og hvítum Nike strigaskóm og með ljós grá/bláa prjónahúfu. Þá var Richard með sólgleraugu og lítinn bakpoka. Til hans sást síðast í Reykjahlíð í Mývatnssveit um kvöldmatarleytið á föstudag.

Ekki ólíklegt að makríllinn hafi áhrif á hrefnuna

Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar, telur ekki ólíklegt að makrílstofninn geti haft áhrif á hrefnugegnd við landið. Makríll í íslenskri lögsögu hefur aukist mjög á síðustu árum en hann nærist meðal annars á sandsílum þó rannsóknir okkar síðustu árin bendi til þess að krabbasvifdýr sé mikilvægasta fæða hans hér við land. Hrefnur nærast sömuleiðis á sandsílum og því ekki ólíklegt að stofnarnir lendi í ákveðinni samkeppni um næringu. "En hvaða áhrif það hefur á hvernig gengur að sjá hrefnur við landið veit ég ekki," segir Jóhann.

Ben Stiller tjúttaði í Reykjavík í gær

Grínleikarinn Ben Stiller er á landinu. Hann er í Reykjavík eins og er. Í gær fór hann út á lífið í gærkvöldi ásamt lífvörðum sínum og sást meðal annars á skemmtistaðnum Vegamótum.

Þyrla sækir ökklabrotna konu

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út eftir hádegi í dag að eftir að pólks ferðakona ökklabrotnaði fyrir ofan Glym í Hvalfirði. Þar sem erfitt var fyrir björgunarsveitarfólk að komast að staðnum var óskað eftir þyrlu.

Íslenskt fyrirtæki blómstrar

Íslenska tímaskráningar- og áætlunargerðarkerfið Tempo frá TM Software er nú orðið söluhæsta viðbótin á sölutorgi ástralska upplýsingafyrirtækisins Atlassian, en sölutorgið er með stærri markaðstorgum fyrir viðskipti á fyrirtækjalausnum. Tempo er starfseining innan TM Software sem er dótturfélag Nýherja.

Fangarnir brosa hringinn þegar þeir ná fyrsta prófinu

Ásókn fanga í nám eykst ár frá ári. Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litlahrauni, segir það mjög jákvætt enda er hún á þeirri skoðun að "ekki sé til betri leið til betrunar og betra lífs heldur en að ljúka námi."

Rannsóknir á kalkþörungum hefjast á Ísafirði

Rannsóknir á kalkþörungasetlögum í Ísafjarðardjúpi munu hefjast í næsta mánuði. Ef allt gengur að óskum og rannsóknirnar reynast jákvæðar sjá menn fram á að verksmiðja geti risið á norðanverðum Vestfjörðum innan fimm ára. Þar með skapast 25-35 föst störf.

Annie Mist í gírnum

Annie Mist Þórisdóttir er komin á skrið á heimsmeistaramótinu Reebok CrossFit Games. Nú eru fjórar greinar eftir og hún er í fyrsta sæti með 46 stiga forystu.

Réði niðurlögum eldsvoða með handslökkvitæki

Snör handtök heimilisföður á Reyðarfirði í morgun skiptu sköpum þegar eldur kom upp í íbúðarhúsnæði. Þrír voru inni í húsinu þegar eldurinn kviknaði. Fimmtán manna slökkvilið var sent af stað en þegar það kom á svæðið, um 7 mínútum eftir útkallið, hafði húsráðandi slökkt eldinn með handslökkvitæki.

Rasandi hissa yfir ummælum Ögmundar

Illugi Jökulsson krefst skýringa á ummælum sem höfð voru eftir Ögmundi Jónassyni á dv.is í gær. Við samsæti til heiðurs Karli Sigurbjörnssyni, fráfarandi biskupi, á Ögmundur að hafa sagt að undanfarið hefðu "árásargjarnir menn vegið grimmilega að kirkjunni og rofið samstöðu kirkju og þjóðar."

Vill bændur á YouTube

Borgarbúar hvarvetna í heiminum þekkja oft lítið sem ekkert til landbúnaðarframleiðslu. Þeir skilja því oft ekki sjónarmið bænda. Kanadískur prófessor við háskólann í Colorado er með lausnina við þessum vanda. Hann ráðleggur bændum að nota YouTube til að kynna sjálfa sig og framleiðslu sína.

Líkamsárás í Vestmannaeyjum

Karlmaður á tvítugsaldri var fluttur á sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum snemma í morgun eftir líkamsárás fyrir utan skemmtistað. Hann er ekki talinn alvarlega slasaður að sögn lögreglu. Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn vegna málsins. Hann flúði af vettvangi en lögregla gómaði hann stuttu síðar. Hann verður yfirheyrður síðar í dag.

Í fótspor frumbyggja í dag

Gestum í Viðey verður í dag boðið að setja sig í fótspor frumbyggja. Skátarnir í Landnemum kenna áhugasömum að reisa skýli, kveikja eld og ýmislegt annað sem nauðsynlegt er fyrir frumbyggja að kunna skil á. Þá verður einnig efnt til fjársjóðsleitar í formi ratleiks og flugdrekaeigendum stefnt saman með það að markmiði að slá Íslandsmet í flugdrekaflugi sem sett var í Viðey fyrir tveimur árum. Dagskráin hefst klukkan hálf þrjú og lýkur hálf fimm.

Dælubílar tvisvar í útkall

Dælubílar slökkviliðsins voru tvisvar kallaðir út í nótt. Annars vegar barst brunaboð frá Landspítalanum í nótt en þar reyndist engin hætta vera á ferðum. Hins vegar gleymdist pottur á eldavél að Funahöfða í Árbæ, slökkviliðið kom á svæðið og reykræsti húsnæðið. Þar fyrir utan var talsverður erill í sjúkraflutningum en alls voru sjúkraflutningamenn kallaðir út 35 sinnum sem er nokkuð yfir meðallagi samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu.

Annie Mist komin í fyrsta sæti

Annie Mist Þórisdóttir er í fyrsta sæti í kvennaflokki á heimsmeistaramótinu Reebok CrossFit Games. Síðasti dagur mótsins fer fram í dag. Síðan á miðvikudag hafa keppendur tekið þátt í ýmsum þrautum og framan af gekk Annie ekki sérlega vel. Á föstudaginn og í gær náði aftur á móti hún góðum sprettum, skaut sér upp stigatöfluna og upp í fyrsta sæti.

Réðst á mann í Bankastræti

Maður var handtekinn í Bankastræt um hálffjögurleytið i nótt, grunaður um líkamsárás. Hann var vistaður í fangageymslu. Árásarþola ekið á slysadeild til aðhlynningar. Ekki hafa fengist upplýsingar frá lögreglu um það hvort sá hafi verið alvarlega slasaður.

Handtekinn ölvaður um hánótt í Sæbjörginni

Þrír menn voru handteknir um borð í erlendu skipi við Miðbakka í Reykjavíkurhöfn um þrjúleytið í nótt. Mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að reyna að komast til Ameríku. Mennirnir voru handteknir og vistaðir í fangageymslu og mál þeirra verður rannsakað. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er þetta ekki í fyrsta skipti sem þeir reyna að koma sér úr landi með þessum hætti. Þá var maður handtekinn um borð í Sæbjörginni, skipi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, um fjögurleytið í nótt. Maðurinn, sem er erlendur, gat illa skýrt veru sína þar og var vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls.

Tónlistin tók yfir fyrir tilviljun

Lögin Sumargestur og Leyndarmál hafa ómað í eyrum Íslendinga í sumar. Það er tvítugur tónlistarmaður sem á heiðurinn af þeim, Ásgeir Trausti Einarsson . Hann sagði Sigríði Björgu Tómasdóttur frá því hvernig skipuleg áætlun um að sópa til sín Íslandsmeistaratitlum í kraftlyftingum fuðraði upp eftir að hann var hvattur til dáða á tónlistarsviðinu.

Fyrsta póló æfing landsins

Hið íslenska póló félag hélt sína fyrstu formlegu æfingu í dag í reiðhöll í Mosfellsbænum. Íþróttin hefur aldrei verið leikin hér á landi áður svo vitað sé en stofnandi þess óttast ekki að hún verði einungis fyrir ríka og fína fólkið.

Sjá næstu 50 fréttir