Hjálpa Íslendingum að kynnast landinu sínu BBI skrifar 15. júlí 2012 11:03 Skjáskot af síðunni. Mynd/islandermedetta.is
Heimasíðan Ísland er með'etta opnaði á fimmtudaginn var. Síðan er liður í átaki sem hvetja á Íslendinga til að ferðast innanlands. „Það eru svo margir sem hafa ekkert ferðast um landið og vita ekkert hvaða perlur eru hérna. Þetta á að hjálpa fólki að kynnast landinu og finna þá upplifun sem það er að leita eftir," segir Gústaf Gústafsson, forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða. Á síðunni birtast áhugaverðustu ferðamannastaðir og helstu perlur hvers landshluta á einföldu yfirlitskorti. Úrvalið sem birtist er fjölbreytt, allt frá sundlaugum og upplýsingamiðstöðvum til fuglabjarga og jöklahella. Auðvelt er að flokka ábendingar á margan hátt, t.d. eftir landshlutum. Síðan opnaði á fimmtudaginn og hefur hlotið ágætar viðtökur nú þegar. „Fólk sem heimsótti síðuna fyrst eyddi að meðaltali yfir fjórum mínútum á henni, sem er mjög gott," segir Gústaf. En síðan er í raun ekki fullmótuð. Enn er bara lítið brot þeirra ábendinga sem eiga að vera á síðunni komið inn. „Við vorum bara að senda ferðaþjónustuaðilum aðgangsupplýsingar nú fyrir helgi," segir Gústaf. „Þeir verða svo að setja sjálfir inn upplýsingar um sína þjónustu." Síðan er langtímaverkefni og stefnan er að safna þar saman öllum upplýsingum um ferðamöguleika í hverjum landshluta. Íslendingar geta því kynnt sér nákvæmlega hvað er í boði í hverjum landshluta á einfaldan hátt áður en þeir fara í fríið. Ferðamálastofa, markaðsstofur allra landshluta og Ferðaþjónusta bænda standa að síðunni.
Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Innlent Vonda veðrið færist í borgina og á Suðurland Veður Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Innlent Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Innlent Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Erlent Fleiri fréttir Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Hundrað eldislaxar í Haukadalsá, ásakanir um samráð og blómlegt í Hveragerði Saka Storytel um að forgangsraða eigin efni á kostnað annarra Ekki tilkynnt um stórt gat á sjókví í nokkurn tíma þrátt fyrir eftirlit Taldi hundrað eldislaxa í neðri hluta Haukadalsár Tónlistarmaður taldi handtökuna ólögmæta en fór tómhentur heim Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði