Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Björgunarsveitir sinna útköllum vegna ófærðar Björgunarsveitir slysavarnarfélagsins Landsbjargar hafa verið kallaðar út á þremur stöðum vegna ófærðar í dag. 14.5.2012 15:35
Grunnur skjálfti við Herðubreið Grunnur jarðskjálfti varð klukkan 12:45 í dag, rúmlega 3.5 kílómetrum VSV af Herðubreið. 14.5.2012 15:06
Bæjarfulltrúa hótað líkamsmeiðingum "Ég og einnig maðurinn minn höfum fengið símhringingar þar sem honum hefur verið sagt að árásir á mig og mína fjölskyldu séu hafnar og muni fólk ekki hætta fyrr en tekist hafi að flæma okkur í burtu," segir Kolfinna S. Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi í Garði, í samtali við Víkurfréttir. 14.5.2012 14:17
Þóra óskar Ólafi Ragnari til hamingju með afmælið Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi óskar Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, til hamingju með afmælið á Facebook-síðu sinni í dag. Ólafur Ragnar fagnar 69 ára afmæli sínu í dag, 14. maí. Í færslu á síðu sinni segir Þóra að þau hjónin bíði í rólegheitunum eftir nýjasta fjölskyldumeðliminum en Þóra á von á barni á næstu dögum. 14.5.2012 13:09
Smyglarar áfram í gæsluvarðhaldi Þrír karlmenn hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 11. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli almannahagsmuna, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Mennirnir, sem allir eru pólskir, eru grunaðir um aðild að innflutningi á umtalsverðu magni af fíkniefnum, eða 8,5 kg af amfetamíni. Mennirnir voru handteknir um miðjan apríl, sama dag og þeir höfðu komið hingað með flugi frá Póllandi. Það var fíkniefnahundurinn Nelson sem kom upp um smyglið á fíkniefnunum. Í Fréttablaðinu, stuttu eftir fundinn, kom fram að mennirnir hafi áður flutt fíkniefni til landsins. 14.5.2012 12:33
Laus eftir að hafa stungið konu tólf sinnum - móðir konunnar óttaslegin 28 ára gömul kona sem lifði af morðtilraun í Kópavogi í lok apríl furðar sig á því að árásarmaður hennar gangi laus. Hún hlaut tólf hnífstungur og óttast mjög að á hana verði ráðist aftur. Konan undrar sig á því að lögreglan krefjist ekki frekara gæsluvarðhalds yfir árásarmanninum og ætlar að flýja land. 14.5.2012 00:00
Fordæma hótanir í garð bæjarfulltrúa Bæjarfulltrúar D-listans í Garði og Ásmundur Friðriksson bæjarstjóri fordæma þær árásir sem bæjarfulltrúinn Kolfinna S. Magnúsdóttir hefur mátt þola síðustu daga eftir að hún sagði skilið við meirihlutann og myndaði nýjan meirihluta með L-lista og N-lista. Í samtali við Víkurfréttir í dag segir Kolfinna að sér hafi borist stöðugar símhringingar þar sem hótað er að gengið verði í skrokk á henni. Bæjarstjórinn og bæjarfulltrúar biðja íbúa í Garði að sýna stillingu og virða skoðanir fólks. Kolfinna ætlar að leggja fram kæru hjá lögreglunni á Suðurnesjum vegna hótananna. 14.5.2012 16:11
Tilbúin að verja ríkisstjórnina falli Þingmenn Hreyfingarinnar eru tilbúnir að verja ríkisstjórnina falli takist samningar um framgang ákveðna mála sem flokkurinn telur brenna helst á þjóðinni. Þau Þór Saari, Margrét Tryggvadóttir og Birgitta Jónsdóttir funduðu í gær með Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni, formönnum ríkisstjórnarflokanna eftir að þau sendu þeim bréf um hugsanlegt samstarf. 14.5.2012 14:38
Viðskiptabann á Íslendinga ef ekki verður samið fljótlega María Damanaki, sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins, segir að ef ekki náist samkomulag í makríldeilunni fljótlega muni Evrópusambandið setja á viðskiptabann á fiskinnflutning Íslendinga og Færeyja. 14.5.2012 12:00
Órói í Kötlu olli smáhlaupi í Múlakvísl Lítið Kötluhlaup varð í kringum síðustu mánaðamót og stóð í nokkra daga. Órói í eldstöðinni kom fram á jarðskjálftamæli og aukin rafleiðni mældist í Múlakvísl. 14.5.2012 12:00
Leita að hótelgesti sem stundar það að stinga af Lögreglan á Hvolsvelli tók við fjársvikakæru í vikunni en málin snýst um erlendan aðila sem bókaði sig inn á hótel í umdæminu á dögunum. Hann lét sig síðan hverfa frá ógreiddum reikningnum. Að sögn lögreglu hefur sami maður stundað þessa iðju víða um landið. Lögreglan leitar hans en hún telur sig vita um hvaða mann er að ræða. 14.5.2012 10:50
Ákvörðun um ákæru tekin á næstu vikum Ríkissaksóknari reiknar með að taka ákvörðun á næstu vikum hvort ákæra verði gefin út í máli Egils Einarssonar, betur þekktum sem Gillzenegger, og unnustu hans, en þau voru kærð fyrir nauðgun á síðasta ári. 14.5.2012 13:21
Leggja væntanlega til breytingar á veiðigjaldi Atvinnuveganefnd Alþingis stefnir að því að afgreiða kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar úr nefnd öðru hvoru megin við næstu helgi. Meirihluti nefndarinnar mun væntanlega leggja til breytingar á veiðigjaldi en önnur atriði eru einnig til skoðunar. 14.5.2012 12:01
Kartöflubændur komu í veg fyrir stórtjón Kartöflubændur á Hornafjarðarsvæðinu, sem er eitt af mestu kartöflusvæðum landsins, náðu flestir eða allir að verjast stórtjóni af óveðrinu með vökvun. 14.5.2012 11:03
Tveir á slysadeild eftir harðan árekstur Tveir voru fluttir með sjúkrabílum á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja fólksbíla á mótum Lyngháls og Stuðlaháls í Hálsahverfinu í Reykjavík á tíunda tímanum. 14.5.2012 10:12
Segjast hafa fellt tugi sýrlenskra hermanna Uppreisnarmenn í Sýrlandi fullyrða að 23 stjórnarhermenn hafi fallið í borginni Rastan í morgun. Þá segir að tugir séu særðir en þrír herflutningabílar voru sprengdir í loft upp í árás uppreisnarmanna. 14.5.2012 09:26
Skemmtiferðaskip sigldi framhjá skipbrotsmönnum Sjómaður frá Panama, sem lifði það af að vera 28 daga á reki á Kyrrahafi, hefur kært eigendur skemmtiferðaskips sem sigldi fram hjá honum og tveimur félögum hans. Hinir skipverjarnir tveir fórust báðir en Adrian Vasquez lifði af og hefur nú kært skipafélagið fyrir rétti í Flórída. 14.5.2012 09:16
Fá skip á sjó Aðeins 140 skip eru á sjó umhverfis landið og þá eingöngu stór skip. Þetta eru mikil umskipti frá fimmtudeginum í síðusut viku þegar 925 skip voru á sjó. Nú er bræla á flestum eða öllum miðum smábáta, þannig að strandveiðiflotinn er í landi. Ekki er vitað til að neitt skip hafi fengið á sig alvarlegan brotsjó þótt víða sé töluverð ölduhæð. 14.5.2012 09:10
Von er á bótakröfum vegna strandstígs Landeigendur á Arnarnesi krefjast bóta samþykki bæjaryfirvöld nýtt deiliskipulag þar sem gert er ráð fyrir almenningsstígum við strandlengjuna. Í lögfræðiáliti fyrir bæinn segir að landeigendurnir hafi réttinn sín megin. 14.5.2012 08:00
Nóg að gera hjá björgunarsveitum og lögreglu Enn er stormur og éljagangur um suðaustanvert landið, hvasst og gengur á með éljum á Vestfjörðum og á Norðurlandi. Töluvert öskufok er úr Eyjafjallajökli er sumstaðar á Suðurlandi, og moldrok ofan af hálendinu. 14.5.2012 07:07
Helmingurinn vildi sjá þyngri refsingar Ný rannsókn leiðir í ljós afar ólík viðhorf fólks til refsinga við afbrotum, sér í lagi þegar kemur að kynferðisbrotum. Helgi Gunnlaugsson, prófessor við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands, kynnti niðurstöður rannsóknar sinnar á 50 ára afmælisráðstefnu Norræna sakfræðiráðsins sem fram fór á Hótel Selfossi í byrjun vikunnar. 14.5.2012 06:00
Alltaf náðað vegna alvarlegra veikinda Umsóknir fanga um náðanir hafa allar verið samþykktar á grundvelli heilsufarsástæðna. Síðan 1980 hafa alls verið náðaðir 167 einstaklingar hér á landi, þar af 45 á síðustu 16 árum. Skúli Þór Gunnsteinsson, lögfræðingur hjá innanríkisráðuneytinu, segir allar náðanir byggðar á læknisfræðilegum rökum. 14.5.2012 04:00
Aðstoða sjófarendur á Faxaflóa Faxaflóahafnir sf. styrkja starfsemi Landsbjargar, Björgunarbátasjóðs Reykjavíkur og fjögurra björgunarsveita við Faxaflóa næstu fimm árin. Skrifað var undir samning þessa efnis á aðalfundi Faxaflóahafna á laugardag. Alls greiða Faxaflóahafnir út á samningstímanum tíu milljónir króna, tvær milljónir hvert ár. 14.5.2012 03:15
Lést í hlíðum Esjunnar Karlmaður sem var á göngu í Esjunni í dag varð bráðkvaddur uppi á fjallinu. Eins og greint var frá í fréttum í dag var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út auk sjúkraflutningamanna og björgunarsveitamanna. Þyrlan gat ekki athafnað sig vegna óveðurs. Maðurinn var því borinn niður. Samkvæmt upplýsingum sem fengust á slysadeild Landspítalans var hann látinn þegar þangað var komið. 13.5.2012 22:32
Berfættur prestur fór á bólakaf Það var líf og fjör í Salalauginni í dag þar sem hópur barna var mættur ásamt foreldrum sínum til að taka þátt í sunnudagsskóla Lindakirkju. Börnin tóku vel undir þegar sungið var og busluðu á meðan þau hlýddu á boðskap prestsins sem var berfættur. 13.5.2012 19:49
Jóhanna segir samskipti við forsetann í samræmi við hefðir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin hafi, í samskiptum sínum við Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands, í einu og öllu fylgt stjórnarskrá og mótuðum stjórnskipunarhefðum. Það sé því óhjákvæmilegt að vísa á bug öllum ásökunum um að annað hafi átt við í samskiptum ríkisstjórnarinnar eða forystumanna hennar og núverandi forseta. 13.5.2012 18:05
Ari Trausti hefur lokið undirskriftasöfnun Ari Trausti Guðmundsson lauk í gær undirskriftarsöfnun vegna meðmæla með framboði sínu til embættis forseta Íslands. Það var gert í ferð til Mið-Norðurlands nú um helgina. Með síðustu undirskriftanna voru þær sem fengust á stuttum en skemmtilegum fundi að kvöldi föstudagsins síðasta í Grímsey. Flogið var til eyjarinnar á lítilli og nýuppgerðri tveggja hreyfla Piper Apache-vél og skundað í félagsheimilið þar sem heitt kaffi beið á könnu og hressir Grímseyingar tóku á móti gestunum. 13.5.2012 17:09
Varaformaður Samfylkingarinnar gagnrýnir forsetann Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir málflutning Ólafs Ragnars Grímssonar á Bylgjunni í morgun á facebooksíðu sinni. Þar spyr hann hvort Ólafur telji, eftir sextán ár í embætti, að nú þurfi að standa vörð um kvótann og krónuna, hrósa Davíð Oddssyni og sparka í Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Dagur spyr hvort til of mikils sé ætlast að Íslendingar geti átt eitt embætti sem sameini þjóðina. Viðtalið við Ólaf Ragnar má sjá á fréttavef okkar Vísi. 13.5.2012 15:14
Veikur maður borinn niður úr Esjunni Sjúkraflutningamenn og björgunarsveitamenn sóttu núna eftir hádegi mann á Esjuna sem veiktist skyndilega á fjallinu. Auk björgunarsveita, sjúkraflutningamanna og lögreglumanna var óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar en hún gat ekki athafnað sig vegna slæms veðurs. Ekki er hægt að upplýsa á þessari stundu um líðan mannsins. 13.5.2012 14:50
Kvótamálin heppileg í þjóðaratkvæðagreiðslu - viðtalið í heild Fá mál eru jafn vel til þess fallin að setja í þjóðaratkvæðagreislu og kvótamálin sem nú eru fyrir Alþingi. Þetta sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag. 13.5.2012 14:13
Stormur á landinu öllu Stormur verður á öllu landinu í dag en samkvæmt viðvörun frá Veðurstofu Íslands er búist við vindhviðum allt að 23 metrum á sekúndu með hvössum vindhviðum hlémegin fjalla, einkum suðaustan til á landinu seint í dag. Hríðaveður verður á Vestfjörðum og krapi og slydda verður í byggð norðan- og austanlands en þar mun frysta. Gera má ráð fyrir snörpum vindhviðum 30-40 m/s á sunnanverðu Snæfellsnesi, einkum í Staðarsveit, fram á kvöld og einnig á Kjalarnesi 30-35 m/s frá því um miðjan dag og fram á kvöld. 13.5.2012 10:33
Sextán ára dópaður ökumaður stöðvaður Ökumaður bíls var stöðvaður við Stekkjabakka við Nettó rétt fyrir klukkan fjögur í nótt. Ökumaðurinn, sem er aðeins 16 ára og hefur aldrei öðlast ökuréttindi, er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Eftir upplýsinga og sýnatöku var ökumaður laus og tóku foreldrar hans á móti honum Farþegi í bílnum, sem var umráðamaður bifreiðarinnar, var kærð fyrir að fela próflausum akstur bílsins. 13.5.2012 09:30
Öllu flugi til Ísafjarðar og Egilsstaða aflýst Flugi Flugfélags Íslands á milli Egilsstaða og Reykjavíkur og á milli Ísafjarðar og Reykjavíkur hefur verið aflýst vegna veðurs. Athugað verður með flug milli Ísafjarðar og Reykjavíkur klukkan sjö á morgun. Á Egilsstöðum var fimleikamót sem átti að ljúka í kvöld. Þeir sem ekki komast til síns heima fá inni í Menntaskólanum á Egilsstöðum á meðan. 13.5.2012 17:40
Björgunarsveitir standa í ströngu Björgunarsveitir standa í ströngu víða á landinu vegna hvassviðris. Þetta á einkum við um Steingrímsfjarðarheiðina þar sem er snælduvitlaust veður og varla ferðafært. Björgunarsveitirnar eru með að minnsta kosti tvo eða þrjá bíla uppi á heiðinni til að hjálpa fólki og varaði björgunarsveitamaður sem Vísir talaði við, fólk við því að fara upp á heiðina. 13.5.2012 16:17
Slökkviliðið kallað að Þjóðleikhúsinu Slökkviliðið var kallað að Þjóðleikhúsinu snemma í morgun en ræstingarfólk fann mikla reykjalykt þar innandyra þegar það mætti til vinnu í morgun. Ekki reyndist neinn eldur hafa verið í húsinu heldur reyndist lyktin vera frá ljósköplum sem höfðu verði í notkun í gær. 13.5.2012 09:38
Stunginn með hnífi á Laugavegi Maður var stunginn með hnífi á Laugavegi rétt eftir klukkan sjö í gærkvöld. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynningar, en ekkert er vitað nánar um meiðsl hans. 13.5.2012 08:57
Ríkisstjórnin á sjö tíma vinnufundi Ríkisstjórnin sat á fundi í Ráðherrabústaðnum í allan dag að ræða ríkisfjármál. Samkvæmt upplýsingum Vísis var meðal annars farið yfir stöðuna vegna fjárlagafrumvarps fyrir næsta ár. Fundurinn tók um sjö tíma, eftir því sem Vísir kemst næst. Ekki er algengt að ríkisstjórnin fundi svo stíft á sunnudögum. 13.5.2012 16:38
Ólafur gagnrýnir skoðanir Þóru í utanríkismálum Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gagnrýndi Þóru Arnórsdóttur mótframbjóðenda sinn harðlega þegar hann ræddi komandi forsetakosningar í þættinum Sprengjusandi á Bylgjunni í morgun. Hann gagnrýndi meðal annars Þóru fyrir það að ætla að halda afstöðu sinni í Evrópusambandsmálum leyndri. Þá sagði hann að Þóra teldi að forsetinn ætti að fylgja stefnu ríkisstjórnar. 13.5.2012 13:34
Forsetinn segir Jóhönnu vera í herferð gegn sér Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon hafi ekki fyrirgefið sér afstöðu sína í Icesave málinu. Forsætisráðherra og aðstoðarmaður hennar hafi verið í herferð gegn sér frá þeim tíma. 13.5.2012 12:00
Barátta Ólafs forseta fyrir endurkjöri er hafin Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, telur að forsetinn eigi ekki einungis að vera veislustjóri á Bessastöðum. Samkvæmt stjórnarskránni sé forsetaembættinu falið mikið vald. 13.5.2012 11:06
Milljónir í auglýsingar um kvótakerfið Útvegsfyrirtæki og hagsmunaaðilar í sjávarútvegi hafa undanfarið varið milljónum í auglýsingaherferð gegn breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Þingmaður segir herferðina ósvífna. 12.5.2012 21:00
Meirihlutinn í Garði fallinn Meirihlutinn í sveitastjórninni í Garði er fallinn eftir að Kolfinna S. Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna, ákvað í dag að mynda nýjan meirihluta með L lista og N lista. 12.5.2012 19:37
Heiðmerkurvegur er munaðarlaus Vegurinn um Heiðmörk er munaðarlaus. Hvorki Vegagerðin né sveitarfélög sem eiga svæðið hafa viljað hirða um hann um langt skeið. Þeir eru nú í skelfilegu ástandi. 12.5.2012 18:40
Endasprettur á álfasölunni Álfasalan gengur mjög vel, segir Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ. Salan hófst á mánudag og þá var gengið í hús. Á fimmtudaginn byrjuðu sölumenn svo að fara á opinbera staði til að selja. 12.5.2012 16:10
Geysissvæðið að drabbast Hverasvæði Geysis er að drappast niður, segja fimm þingmenn úr Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og Samfylkingu. Þeir vilja að aðgengi ferðamanna að svæðinu verði bætt og göng fyrir fótgangandi gerð þar undir þjóðveginn frá bílastæðum. Þingsályktunartillaga sem Árni Johnsen, Björgvin G. Sigurðsson og fleiri hafa lagt fram verður rædd í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis á mánudaginn. 12.5.2012 14:38