Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ágreiningur í Árborg um Skólaskrifstofu Suðurlands "Það er engin úlfúð í þessu máli,“ segir365, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Árborg en hún leggst alfarið gegn hugmyndum sveitarfélagsins um að segja sig úr Skólaskrifstofu Suðurlands. Sjálfstæðisflokkurinn er með hreinan meirihluta í bænum en fjórir bæjarfulltrúar hið minnsta eru sammála ákvörðun fræðslunefndar Árborgar um að segja sveitarfélagið úr Skólaskrifstofum Suðurlands. 8.5.2012 10:50
Katrín mætti með tvíburana á fund Barnaheilla Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Bjarni Bjarnason eiginmaður hennar mættu með tvíburana sína á fund Barnaheilla - Save the Children þegar skýrsla samtakanna um stöðu mæðra í heiminum 2012 var kynnt í morgun. Katrín er sem kunnugt er í barneignaleyfi. Hún varð önnur ráðherra til þess að eignast barn, en nafna hennar Katrín Júlíusdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, ól barn í júní í fyrra. Samkvæmt skýrslu barnaheilla er best að vera móðir á Norðurlöndunum. Norskar mæður hafa það best, en íslenskar mæður eru í öðru sæti. 8.5.2012 10:41
Íslenskar mæður hafa það gott Ísland lendir í öðru sæti þegar kannað er hvar mæður hafa það best í heiminum. Samtökin Save the Children, eða Barnaheill eins og þau kallast hér á landi, hafa gefið út árlega skýrslu sína þar sem kannað er hvar best sé að vera í móðurhlutverkinu en þetta er í þrettánda sinn sem skýrslan er gerð. 8.5.2012 09:22
Ríkisstjórnin fundar fyrir austan Ríkisstjórnarfundur verður haldinn á Egilsstöðum núna klukkan níu en um er að ræða verður fyrsta ríkisstjórnarfundinn sem haldinn er í þessum landshluta. 8.5.2012 08:53
Líklegt að hætt verði við hvalveiðar Útlit er fyrir að Hvalur hf. muni ekki veiða nein stórhveli í sumar, eins og til stóð. Kristján Loftsson forstjóri Hvals segir í viðtali við Morgunblaðið að ástæðan sé sú að ekki hafi náðst samkomulag við Sjómannafélag Íslands um kaup og kjör undirmanna, þar sem félagið krefjist þess að fyrirtækið greiði hásetum bætur fyrir skerðingu stjórnvalda á sjómannaafslætti á sköttum. 8.5.2012 08:48
Ákærður fyrir hrottalegt morð Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Hlífari Vatnari Stefánssyni, 23 ára Hafnfirðingi sem varð fyrrverandi unnustu sinni að bana í húsi að Skúlaskeiði í Hafnarfirði í byrjun febrúar. 8.5.2012 08:00
Metafli: Verðmætið er átján milljónir á mann Togbáturinn Steinunn SF frá Hornafirði setti aflamet í flokki slíkra báta þegar hann landaði 723 tonnum úr tíu róðrum í síðasta mánuði. Samkvæmt vefsíðunni Aflafréttir.com var aflaverðmætið hátt í 200 milljónir króna, eða hátt í 18 milljónir króna á hvern skipverja í 11 manna áhöfn bátsins. 8.5.2012 07:19
Innbrot í heimahús - yfirbuguðu ölvaðan ræningja Brotist var inn í heimahús í vesturborginni í gærkvöldi og þaðan stolið 52 tommu sjónvarpstæki, leikjatölvu og sjónvarpsflakkara. Tilkynnt var um innbrotið á tólfta tímanum, en þjófurinn var á bak og burt með þýfið, og er hans leitað. 8.5.2012 07:18
Áætla verklok í júlímánuði Vinna er að hefjast við breytingar á Suðurlandsvegi milli Bláfjallavegar og Litlu-Kaffistofunnar, að því er fram kemur á vef Vegagerðar Íslands. „Unnið verður við frágang við Litlu-Kaffistofuna og einnig verður akbrautin í austur breikkuð og lagfærð,“ segir í frétt Vegagerðarinnar. Fram kemur að verkinu eigi að ljúka í júlí næstkomandi, samkvæmt áætlun. „Vegfarendur eru beðnir að aka varlega um framkvæmdasvæðið og virða merkingar um hámarkshraða.“- óká 8.5.2012 07:00
Fimm strandveiðibátar dregnir í land Fimm strandveiðibátar voru dregnir til hafna í gær, eftir vélabilanir um borð í þeim. Í öllum tilvikum tóku aðrir fiskibátar þá í tog og var ekkert björgunarskip Landsbjargar kallað út, enda veður gott og engin hætta á ferðum. Fjölmargir strandveiðibátar hafa streymt á miðin í nótt, enda gott sjóðveður umhverfis landið. 8.5.2012 06:58
Bólusetning gegn svínaflensu ótengd fósturláti Bólusetning þungaðra kvenna með lyfinu Pandemrix gegn svínainflúensu veldur ekki fósturláti, er niðurstaða danskrar rannsóknar. Rannsóknarniðurstöðurnar voru birtar í hinu virta tímariti British Medical Journal (BMJ) þann 2. maí. Þetta kemur fram í frétt á vef landlæknis. 8.5.2012 06:00
Óvíst að saksókn efnahagsbrota eftir hrunið skili miklu Miðað við reynslu Norðurlandaþjóða eftir bankahrun í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar ættu Íslendingar ekki að vænta þess að saksókn efnahagsbrota eftir bankahrunið hér 2008 skili miklum dómum. Þetta segir Paul Larsson, prófessor við Politihøgskolen í Ósló, en hann var meðal þeirra sem fluttu erindi á 50 ára afmælisráðstefnu Norræna sakfræðiráðsins á Hótel Selfossi í gær. Ráðstefna ráðsins, sem hér á landi er vistað hjá Lagastofnun Háskóla Íslands, hófst á sunnudag og lýkur í dag. 8.5.2012 05:00
Eðlilegt að taka eitt skref í einu Unnið var að því í gær að stofna íslenskt félag í eigu fjárfestingafélags kínverska athafnamannsins Huangs Nubo, segir Halldór Jóhannsson, umboðsmaður Huangs á Íslandi. 8.5.2012 05:00
Sótti óvart um geitahald í Hafnarfirði „Ég verð að leiðrétta þetta við bæinn,“ segir Jóhann Davíð Barðason sem sótti óvart um leyfi til að halda tvær geitur við hús í útjaðri Hafnarfjarðar. 8.5.2012 04:00
Lyf ræktað í gulrótum er komið í sölu Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur samþykkt markaðssetningu á fyrsta lyfinu sem búið er til í erfðabreyttum plöntum með sameindaræktun. Íslenska líftæknifyrirtækið ORF Líftækni notar sambærilega tækni við framleiðslu próteina í byggi. 8.5.2012 04:00
Hvergerðingar bjarga forsætisráðuneytinu „Við bara rigguðum upp hér dagskrá fyrir einn æðsta mann í heimi,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði sem sjálf var fjarri góðu gamni 21. apríl síðastliðinn þegar óvenjuleg ósk barst frá forsætisráðuneytinu. 8.5.2012 03:30
Frakki á feykihraða Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði franskan ferðamann á Snæfellsnesvegi í kvöld á 118 kílómetra hraða en þar er 90 kílómetra hámarkshraði. Samkvæmt sektarreikni Umferðarstofu á ökumaðurinn 50 þúsund króna sekt yfir höfði sér. Lögregla segir að þeir ökumenn sem hafi verið teknir á síðustu dögum hafi verið að mælast á meiri hraða en síðustu mánuði. Það er líklega vegna þess að betra veður er úti og þá eiga ökumenn það til að stíga fastar á bensíngjöfina, að sögn varðstjóra. 7.5.2012 23:20
Sóley búin að prófa Boot Camp: "Takk samt fyrir boðið" "Ég er búin að prófa Boot Camp, ég gerði það árið 2007. Þannig takk samt fyrir boðið, ég er í fínu formi þrátt fyrir að vera ekki hjá þeim," segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri Grænna í borgarstjórn. Arnaldur Birgir Konráðsson, annar eiganda Boot Camp, skoraði á Sóleyju að koma og prufa einn tíma hjá þeim í samtali við Vísi í dag. 7.5.2012 20:36
Hvað kostar að byggja pall? - samanburður risanna þriggja Segja má að byggingavöruverslunin Bauhaus hafi kastað sprengju inn á markaðinn þegar tuttugu og tvö þúsund fermetra verslun var loks opnuð um helgina. 7.5.2012 20:45
Raunhæft að leggja einkabílnum Borgarstjóri segir eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu gefa fólki raunhæfan kost á að leggja einkabílnum. Vonast er til að tilraunaverkefni sem skrifað var undir í dag komi til með að fjölga strætisvagnafarþegum verulega. 7.5.2012 18:45
Níu sinnum þurft að innkalla vörur Það sem af er ári hefur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur níu sinnum þurft að innkalla matvörur þar sem skortur er á merkingu um að vara innihaldi efni sem geta valdið ofnæmi eða óþoli. Dæmi er um að barn hafi fengið ofnæmisviðbrögð eftir að hafa borðað smáköku sem innihélt hnetur en ekkert stóð á umbúðunum. 7.5.2012 18:38
"Við erum heimsmeistarar" "Við erum heimsmeistarar og komum til með að halda hátíð líkt og er alltaf gert þegar heimsmeistarar koma heim. Þessu verður fagnað, ég lofa því," segir Kormákur Geirharðsson, annar eiganda Ölstofu Kormáks og Skjaldar. Bríó bjórinn, sem var þróaður sérstaklega af Borg Brugghúsi í samstarfi við þá félaga, bar sigur úr býtum í sínum flokki í World Beer Cup 2012, sem fram fór í Kaliforníu á dögunum. 7.5.2012 18:14
Lítið um rottur í Reykjavík - eiginlega viðburður að sjá þær "Það er nú óhætt að segja að rottur í Reykjavík séu ekki stórvandamál, það er eiginlega orðinn viðburður að fólk sjái þær,“ segir Guðmundur Björnsson, rekstrarstjóri meindýravarna Reykjavíkurborgar, en íbúi á Grettisgötunni náði magnaðri mynd af rottu í gluggakistu á Grettisgötunni og ketti sem fylgist með henni. 7.5.2012 16:32
Eigandi Boot Camp býður Sóleyju í prufutíma Boot Camp er bara venjuleg líkamsræktarstöð og á ekkert skylt við hernað, segir Arnaldur Birgir Konráðsson, annar eigenda Boot Camp, í samtali við Vísi. Vinstri græn hafa lagst gegn því að Boot Camp fái aðstöðu í húsi Fornbílaklúbbsins á Rafstöðvarvegi. Telja VG að ekki fari vel á því að koma fyrir á þessu svæði líkasrækt með herbúðarsniði. 7.5.2012 16:23
Stærðar rotta skelfdi kött "Hún var allavega svo stór að kötturinn var skíthræddur við hana," sagði íbúi á Grettisgötunni sem rakst á stærðar rottu fyrir framan heimili nágranna síns í Reykjavík á frídag verkamanna í síðustu viku. Rottan var sprellifandi og ekki frýnileg að sjá. Kötturinn sem sést á myndinni gerði sig líklegan nokkrum sinnum til þess að gera atlögu að rottunni en lét aldrei verða að því. Eftir nokkra stund lét rottan sig hverfa. 7.5.2012 15:19
Hótaði unglingi með hníf og rændi fermingjagjöfinni Lögreglan í Hafnarfirði rannsakar vopnað rán sem átti sér stað í Hafnarfirði á föstudagskvöldinu. Fjórtán ára drengur var þá rændur IPhone-síma þegar hann mætti hettuklæddum einstaklingi. Það var mbl.is sem greindi frá því að ungur maður hefði ógnað 14 ára dreng með hníf í Hafnarfirði á áttunda tímanum á föstudagskvöldið. Þeir voru þá staddir á Vesturgötunni í Hafnarfirði. 7.5.2012 15:15
Fagna skýrari ramma um smálán - telja þó frumvarpið ganga of langt "Ég fagna því að það sé verið að setja lög um þessa starfsemi með skýrari hætti en áður hefur verið gert, það verður kannski til þess að gróusögur um starfsemina hætta,“ segir Haukur Örn Birgisson, lögmaður smálánafyrirtækisins Kredia, en á forsíðu Fréttablaðsins í dag var greint frá því að Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, telji mikilvægt að koma böndum á smálánafyrirtæki, "þannig að það sé öllum ljóst á hvaða kjörum þessi lán séu og hvaða réttarstöðu menn hafa," eins og Steingrímur orðar það í fréttinni. 7.5.2012 14:55
Engir ísbirnir á Hornströndum - en ummerki um vélsleðamenn Lögreglan á Ísafirði fór í gær með þyrlu Landhelgisgæslunnar í eftirlitsflug um friðlandið á Hornströndum. Ekkert sást til bjarndýra eða ummerkja um að slíkar skepnur hefðu verið þar á ferð. 7.5.2012 14:51
Ætla að stórefla almenningssamgöngur Fulltrúar Vegagerðarinnar og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu skrifuðu í dag undir samkomulag um 10 ára tilraunaverkefni um eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. tilgangur verkefnisins er að tvöfalda hlutdeild almenningssamgagna á höfuðborgarsvæðinu, lækka samgöngukostnað heimila og samfélagsins og stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda. 7.5.2012 14:32
Elduðu ofan í Gordon Ramsey Jakob Magnússon matreiðslumeistari og eigandi Hornsins eldaði nú um helgina fyrir stjörnukokkinn Gordon Ramsey, en Gordon var við veiðar í sjóbirtingsánni Tungulæk við Kirkjubæjarklaustur. Þetta kemur fram á vefnum Freisting.is. 7.5.2012 14:22
Vinstri grænir leggjast gegn heræfingum í Elliðaárdal Vinstri grænir í Reykjavíkurborg leggjast gegn því að Boot Camp fái aðstöðu í gamla húsnæði Fornbílaklúbbsins neðst í Elliðaárdal fyrir æfingaaðstöðu. DV greindi frá því á síðasta ári að Sjöstjarnan ehf, félag Skúla Gunnars Sigfússonar, sem oft er kenndur við Subway, hefði keypt hús af Fornbílaklúbbi Reykjavíkur. Hann leigði það til fyrirtækisins BootCamp og verður það notað undir líkamsræktarstöð. Í frétt DV kom jafnframt fram að kaupin væru háð þeim fyrirvara að borgaryfirvöld samþykki breytingar á deiliskipulagi á lóðinni. Samkvæmt núgildandi deiliskipulagi má eingöngu vera safn í húsinu. 7.5.2012 14:00
Sérsveitin aðstoðaði við handtöku á fíkniefnasala Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann um 50 grömm af kókaíni, talsvert af sterum og búnað til framleiðslu á kannabis við húsleit í Norðlingaholti fyrir helgina. 7.5.2012 13:47
Guðni gróinn sára sinna - Skúli á góðum batavegi Guðni Bergsson lögfræðingur segir að hann sé gróinn sára sinna en Guðni særðist þegar hann kom vinnufélaga sínum til hjálpar á lögfræðistofunni Lagastoð sem var fyrir árás manns með hníf. 7.5.2012 13:31
Stríð á byggingavörumarkaði: "Tittlingaskítur og væl“ Framkvæmdarstjóri Bauhaus gefur lítið fyrir athugasemdir samkeppnisaðilanna á auglýsingum félagsins sem hann kallar tittlingaskít og væl. Verðvernd fyrirtækisins tryggi kúnnanum einfaldega alltaf besta verðið. 7.5.2012 12:58
Íslenskir lífeyrissjóðir sakaðir um rányrkju Nokkrir af stærstu lífeyrissjóðum landsins eiga verksmiðjutogarann Blue Wave sem veitt hefur fisk við vesturströnd Afríku frá árinu 2007. Í frétt um málið í DV í dag kemur fram að lífeyrissjóðirnir sem um ræði séu Gildi, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóður verslunarmanna, Stapi, Stafir og Sameinaði líeyirssjóðurinn. 7.5.2012 11:07
Forsetinn sendi Hollande heillaóskir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í morgun François Hollande, nýkjörnum forseta Frakklands, heillaóskir og kveðjur frá íslensku þjóðinni í tilefni af sögulegum sigri. Í kveðjunni áréttar forseti að samvinna Íslendinga og Frakka eigi sér djúpar sögulegar rætur; frönsk menning, listir og vísindi hafi haft ríkuleg áhrif á íslenskan samtíma. 7.5.2012 10:46
Jón fullyrðir að þjóðin sé á móti hugmyndum Nubo Jón Bjarnason fyrrverandi ráðherra og þingmaður VG segir á bloggi sínu í dag að hvorki íslenska ríkisstjórnin né sú kínverska geti hrósað happi yfir að vera "laus við innanríkisráðherrann Ögmund Jónasson". Jón vísar þarna í mál kínverska kaupsýslumannsins Huang Nubo sem áformar að leigja Grímsstaði á Fjöllum af sveitarstjórnum á svæðinu. 7.5.2012 10:46
Viðbúið að kvótafrumvörpin taki breytingum Kristján L. Möller, formaður atvinnuveganefndar Alþingis segir viðbúið að kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar taki breytingum meðförum nefndarinnar. Nefndin mun funda um málið í dag en nær allar umsagnir um frumvörpin hingað til hafa verið neikvæðar. 7.5.2012 12:12
Æfðu viðbrögð við stórslysi Umfangsmikil viðbragðsæfing samkvæmt flugslysaáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll fór fram á laugardaginn. Flugslysaáætlun Keflavíkurflugvallar segir fyrir um skipulag og stjórnun aðgerða í kjölfar flugslyss á eða við Keflavíkurflugvöll. Æfingin er almannavarnaæfing þar sem allir viðbragðsþættir vegna flugslyss eru prófaðir með reglubundnum hætti. Líkt var eftir flugslysi við lendingu á Keflavíkurflugvelli og æfð samvinna viðbragðsaðila með áherslu á samhæfingu og virkni áætlunarinnar. Æfingin er umfangsmesta viðbragðæfing vegna flugsamgangna sem haldin er í landinu með reglubundnum hætti. 7.5.2012 11:32
Koma böndum á smálánin Þrjú ný smálánafyrirtæki hafa tekið til starfa á síðustu mánuðum og bítast nú fimm fyrirtæki um markaðinn. Nýju fyrirtækin bjóða hærri fjárhæðir til láns en þau sem fyrir voru. 7.5.2012 07:00
Engin undanþága fyrr en ráðherra fær svör Félag kínverska athafnamannsins Huangs Nubo þarf að veita starfandi iðnaðarráðherra svör um umhverfis- og skipulagsmál áður en hún getur tekið ákvörðun um hvort félagið fær undanþágu til að leigja land á Grímsstöðum á Fjöllum. 7.5.2012 07:00
Strandveiðibátar streyma aftur á miðin Strandveiðibátar hafa streymt á miðin í nótt, eftir þriggja daga helgarstopp. 7.5.2012 06:50
Sótti veikan sjómann um borð í rússneskan togara Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í nótt veikann sjómann um borð í rússneskan togara sem var staddur 150 sjómílur suðvestur af landinu. 7.5.2012 06:47
Víða frost á landinu í nótt Frost var víða um land í nótt og fór það mest í 13 gráður í Sandbúðum. Á láglendi mældist mesta frostið að Reykjum í Fnjóskadal, liðlega 9 gráður. 7.5.2012 06:44
Kirkjuráð í samstarf um miðaldakirkju Kirkjuráð ákvað á síðasta fundi sínum að ganga til samstarfs um endurreisn miðaldadómkirkju í Skálholti, en hugmynd þess efnis var kynnt á kirkjuþingi í nóvember síðastliðnum. 7.5.2012 05:00