Hvergerðingar bjarga forsætisráðuneytinu 8. maí 2012 03:30 Bæjarstjórinn í Hveragerði segir forsætisráðherra Kína, lengst til vinstri, hafa fylgst anduktugan með þegar Ólafur Reynisson veitingamaður reiddi fram gufusoðið brauð og lambalæri með engum fyrirvara. Mynd/GUðmundur Þór Guðjónsson „
Við bara rigguðum upp hér dagskrá fyrir einn æðsta mann í heimi,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði sem sjálf var fjarri góðu gamni 21. apríl síðastliðinn þegar óvenjuleg ósk barst frá forsætisráðuneytinu. „Þegar Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, var hér um daginn ætlaði hann auðvitað að stoppa og skoða Kerið og öll dagskráin miðuð við það. Svo fengu þeir ekki að fara þangað og þá voru góð ráð dýr. Það var hringt hingað og spurt hvort við gætum tekið á móti þeim með hálftíma fyrirvara,“ lýsir Aldís bæjarstjóri aðdragandanum að óvæntri heimsókn Wens Jiabaos. Þótt Aldís sjálf hafi verið erlendis þegar forsætisráðherra Kína bar að garði kom það ekki að sök, segir hún. Aðrir bæjarfulltrúar ásamt forstöðumanni upplýsingamiðstöðvar Suðurlands og öðrum settu á tuttugu mínútum upp þrælgóða dagskrá fyrir Wen og aðra tigna gesti frá Kína. „Hverasvæði var opnað og hann fékk leiðsögn um það sem honum þótti afskaplega áhugavert enda jarðfræðingur,“ segir bæjarstjórinn. Í lokin hafi verið farið með Wen og föruneyti á veitingastaðinn Kjöt og kúnst sem er við hliðina á hverasvæðinu og nýtir orkuna þaðan í matseldina. „Þar fékk hann að smakka hveraeldaðan mat.“ Aldís segir sér finnast Hvergerðingar hafa staðið ótrúlega vel að verki. „Það væru örugglega ekki margir sem gætu hlaupið svona til með engum fyrirvara og tekið á móti svo stórri sendinefnd með öllu því sem tilheyrir. Þetta sýnir hvað Íslendingar geta verið fljótir að bregðast við og Hvergerðingar sérstaklega,“ segir hún stolt af sínu fólki. Nokkrum dögum eftir innlit Wen Jiabaos fengu Hvergerðingar þakkarbréf frá Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. „Hún var svo ánægð með að við skyldum geta bjargað málinu með þessum hætti þegar þau voru óvelkomin við Kerið,“ segir Aldís um bréfið frá Jóhönnu. Alla heimsóknina segir bæjarstjórinn hafa verið mjög skemmtilega. „Bæjarbúar vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Allt í einu hrúguðust inn lögregluþjónar á hvert einasta götuhorn og það fóru sprengjuleitarhundar út um allt þar sem Wen átti að koma við. Mér skilst að þetta hafi verið eins og stormsveipur færi yfir bæinn.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Sjá meira