Hvað kostar að byggja pall? - samanburður risanna þriggja Breki Logason skrifar 7. maí 2012 20:45
Segja má að byggingavöruverslunin Bauhaus hafi kastað sprengju inn á markaðinn þegar tuttugu og tvö þúsund fermetra verslun var loks opnuð um helgina. Hinir risarnir Byko og Húsasmiðjan, hafa upp á síðkastið farið í ímyndar og markaðsátak og greinilegt að samkeppnin er mikil. Við ákváðum að gera verðsamanburð á milli risanna þriggja. Ég fór því á stúfana og hafði samband við risana þrjá, kynnti mig sem fréttamann og sagðist þurfa að byggja pall og fá nokkra aukahluti. Greinilegt var að ég var kominn inn á ákveðið sprengjusvæði þar sem menn voru sakaðir um óheiðarleika áður en niðurstaðan var ljós. Eitt áttu þeir þó allir sameiginlegt. Allir segjast þeir vera með besta verðið. Hitalamparnir eru ekki komnir til Bauhaus og því vantar þá tölu inn í heildarpakkann. En miðað við þessar forsendur er ljóst að besta verðið fengum við í Húsasmiðjunni. Þess ber að geta að allar verslanirnar bjóða upp á verðvernd og afslætti sem eru mismunandi. Tekið skal fram að ekki er um sömu vörur að ræða í verslununum þremur og þær eru mismunandi að gæðum. Ég bað einungis um það ódýrasta. ----------------------------------- Verðtilboð Risanna þriggjaHúsasmiðjan Við gefum þér tvö tilboð í 100fm sólpall, annar er lagður beint á frostfrítt undirlag(jarðveg) og er þess vegna ódýrari kostur, hinn er hefðbundinn sólpallur með öllum undirstöðum og festingum. (Sjá tilboðin tvö í meðfylgjandi myndaalbúmi) Ódýrasta gasgrillið sem fæst í versluninni Vnr. 3000391 kr. 12,900 Borð og stóla á pallinn fyrir fjóra Vnr.3899211 kr. 19,900 Tvo sólbaðslegubekki Vnr. 3899229 kr. 6,990 kr/stk = 13980 kr fyrir 2 stk Tvo gaslampa (til að halda hita á köldum síðkvöldum) Vnr. 2999748 Reyndar ekki gas heldur rafmagn. 10.420 kr en 9,899 kr fyrir Kjaraklúbbsmeðlimi Samtals: 57.200 kr Pallatilboð 1: 421.253 kr Heildarverð Húsasmiðjunnar: 478.453 Verðtilboðin frá Byko og Bauhaus má sjá í meðfylgjandi myndaalbúmi. -----------------ViðbótÍ verðtilboðum aðilanna þriggja er um mismunandi magn að ræða í sumum liðum. Þannig er gert ráð fyrir 320 kg af sementi í tilboði Byko en 40 kg hjá hinum tveimur. Verðtilboð Byko lækkar því um 12.012 kr. sé miðað við sama magn af sementi.Líkt og tekið er fram í fréttinni bjóða aðilarnir þrír upp á mismunandi afslætti. Þannig er listaverð Húsasmiðjunnar hærra en hjá keppinautunum en verðstefna þeirra gengur út á það að verðlauna þá sem kaupa mikið magn. Það var gert í þessu tilfelli og því kemur afslátturinn inn í tilboðið.Eins og sjá má á verðtilboðinu frá Byko, sem fylgir þessari frétt, er tilboðsafslátturinn sérstaklega tiltekin, 22.750 kr. og ber að horfa til þess.Það skal ennfremur áréttað hér að líkt og fram kemur í fréttinni er ekki verið að bera saman sömu vörur á milli verslananna þriggja. Forsendurnar voru hinsvegar þær sömu. Óhandlaginn maður sem ætlar að reisa 100 fermetra pall og ætlar að fá sér nokkra hluti á pallinn.Af samtölum við þá sem til þekkja getur það verið mjög misjafnt hvernig menn byggja pall, hvað þeir vilja steypa langt niður og hversu mikið magn af efni er notað í pallinn til dæmis.Þeir sem hyggja á slíkar framkvæmdir eru því hvattir til þess að kynna sér málið ennfrekar.
Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Erlent Fleiri fréttir „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Sjá meira