Viðbúið að kvótafrumvörpin taki breytingum 7. maí 2012 12:12 Kristján L. Möller.
Kristján L. Möller, formaður atvinnuveganefndar Alþingis segir viðbúið að kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar taki breytingum meðförum nefndarinnar. Nefndin mun funda um málið í dag en nær allar umsagnir um frumvörpin hingað til hafa verið neikvæðar. Atvinnuveganefnd hefur haldið ellefu fundi um kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar frá því fyrstu umræðu lauk en ekki liggur fyrir hvenær hún mun klára málið. Frumvörpin hafa verið harðlega gagnrýnd og fullyrt að þau muni leiða til fjöldagjaldþrota í greininni og hafa slæm áhrif á afkomu sjávarbyggða. Kristján segir það ekki koma á óvart að umsagnir um skattahækkanir eða veiðileyfagjöld séu neikvæðar. „Hver er ekki á móti hækkun skatta eða gjalda? Það er bara mjög eðlilegt." Hann segir aðalatriðið að þessi frumvörp séu byggð á tillögu svokallaðrar sáttanefndar. „Það er að segja, að festa það í stjórnarskrá að fiskurinn sé sameign þjóðarinnar og úthlutanir á nýtingarleyfum." Hann bætir við innheimtu hóflegs veiðileyfagjalds og að vera með ákveðinn hundraðshluta frátekinn í svokallaða potta. „Og meginatiðrin í frumvarpinu ganga út á þetta og svo geta menn haft skiptar skoðanir á því hvort veiðileyfagjöldin séu of há eða lág eða alltof há eða pottarnir of stórir eða litlir. Og það er bara verkefni okkar í í hinu þinglegu meðferð í þingnefndinni að fara í gegnum þetta." Kristján á von á því að frumvarpið taki breytingum í meðförum nefndarinnar. „Ég hef aldrei unnið með frumvarp sem ekki hefur tekið breytingum og til þess eru umsagnir og gestakoma því betur sjá augu en auga eins og þar stendur ég er alveg sannfærður um að við munum finna góðar leiðir í þessum málum sem eru bæði einfaldir og byggja á rauntíma upplýsingum. En mesta gagnrýnin er um það að það er verið að vinna með gamlar upplýsingar. Það er alveg hárrétt, það er ekki hægt að vera vinna með tveggja þriggja ára gamlar tölur þegar hægt er að nálgast rauntíma upplýsingar."
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Sjá meira