Ágreiningur í Árborg um Skólaskrifstofu Suðurlands 8. maí 2012 10:50 Elfa Dögg Þórðardóttir er fyrir miðju, en hún mun greiða gegn tillögum um að Árborg segi sig úr Skólaskrifstofum Suðurlands. „
Það er engin úlfúð í þessu máli," segir Elfa Dögg Þórðardóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Árborg en hún leggst alfarið gegn hugmyndum sveitarfélagsins um að segja sig úr Skólaskrifstofu Suðurlands. Sjálfstæðisflokkurinn er með hreinan meirihluta í bænum en fjórir bæjarfulltrúar hið minnsta eru sammála ákvörðun fræðslunefndar Árborgar, um að segja sveitarfélagið úr Skólaskrifstofum Suðurlands. Það þýðir að Árborg hættir að reka slíka þjónustu ásamt fjölmörgum öðrum sveitarfélögum á Suðurlandi og færir þess í stað alla þjónustu til Árborgar. Slíkt bitnar þá helst á þeim sveitarfélögum sem hingað til hafa rekið skrifstofuna með Árborg, en höfuðstöðvar Skólaskrifstofu Suðurlands eru á Selfossi. Elfa Dögg er jafnframt formaður stjórnar SASS, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, spurð hvort formannsseta hennar geri hana vanhæfa, í ljósi þess að önnur sunnlensk sveitarfélög vilja halda óbreyttu samstarfi áfram, svarar Elfa því til að hún sé ekki vanhæf til þess að greiða atkvæði um málið. Hún segir samt í viðtali við sunnlenska fréttavefinn, dfs.is, að málið sé henni erfitt í ljósi þess að hún er bæjarfulltrúi Árborgar og formaður SASS. „Jú, ég er sett í mjög erfiða stöðu enda er ég á móti því að Árborg segi sig úr skólaskrifstofunni og mun ég ekki samþykkja tillöguna. Það er ástæða fyrir því að farið var í samstarf um skólaskrifstofu á sínum tíma sem er að við búum á fámennu og dreifbýli svæði og með samvinnu um þessa þjónustu tryggjum við að börn í stórum sem smáum sveitarfélögum, fái öll jafnan aðgang að góðri og faglegri þjónustu," segir hún í viðtali við dfs. Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Árborg, segir allar breytingar á skólamálum viðkvæmar. „Það er auðvelt að misskilja þetta, en svo það sé á hreinu þá er ekki verið að skerða þjónustuna," útskýrir Eyþór sem er hlynntur breytingunum. Hann segir viðkvæmasta snertiflöt málsins vera aðkoma annarra sveitarfélaga að málinu. Nú þurfa þessi sveitarfélög að koma upp eigin skólaskrifstofum í stað þess að ráðgjafar og sérfræðingar séu sendir út af örkinni, frá Selfossi, í hvert sveitarfélag þegar þörf er á störfum þeirra. Eyþór bendir á að Árborg sé áttunda stærsta sveitarfélagið á landinu, og það sé því eðlilegt að þar sé boðið upp á sérstaka þjónustu eins og til stendur að samþykkja. Málið hefur þegar verið afgreitt út úr fræðslunefnd. Næst verður það tekið fyrir á fundi bæjarráðs og að lokum á bæjarstjórnarfundi verði það samþykkt áður. Eyþór segir þó að það sé nægur tími til stefnu, því það er ekki fyrr en í júlí sem það þarf að taka málið fyrir. Eins og fyrr segir liggur fyrir að fjórir bæjarfulltrúar eru hlynntir málinu. Það er því meirihluti fyrir ákvörðuninni, eins og staðan er núna.
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira