Fleiri fréttir

20 árekstrar á höfuðborgarsvæðinu í dag

Hátt í tuttugu árekstrar urðu á höfuðborgarsvæðinu í dag samkvæmt upplýsingum frá árekstur.is. Þannig varð þriggja bíla árekstur í morgun á Kringlumýrabrautinni. Einn bíll var óökufær eftir óhappið.

Niðurstöður kynntar fyrir lögreglumönnum

Niðurstaða gerðadóms hefur verið kynnt forsvarsmönnum Landssamband lögreglumanna. Hátt í hundrað lögreglumenn voru fyrir utan gerðadóm þegar niðurstaðan var kynnt.

Lögreglumenn sitja um gerðadóm

Tugi lögreglumanna eru fyrir utan húsnæði gerðadóms þar sem niðurstöður dómsins verður kynntur fyrir fulltrúum Landssambands lögreglumanna og fulltrúum ríkisins vegna kjarabaráttu lögreglumanna.

Er með meðvitund og verður útskrifaður af gjörgæslu í dag

Líðan mannsins sem var stunginn nokkrum sinnum í kvið og handlegg í Kópavogi síðdegis í gær er stöðug. Samkvæmt upplýsingum læknis á gjörgæslu Landspítalans verður hann útskrifaður af gjörgæslu og sendur á almenna deild síðar í dag. Maðurinn er með fulla meðvitund.

Stálu bíl og fóru í ferðalag

Tveir ungir menn stálu bíl í Kópavogi í gærmorgun. Í framhaldinu fóru þeir á bensínstöð, stálu þar eldsneyti og lögðu svo upp í langferð sem lauk á Norðurlandi nokkrum klukkutímum síðar.

Varðskipið Þór afhent í dag

Varðskipið Þór verður í dag afhent Landhelgisgæslunni við hátíðlega athöfn í Chile. Skipið leggur úr höfn á þriðjudag og kemur til landsins eftir rúman mánuð en áhöfnin áætlar að nýta siglingartímann til að læra á búnaðinn um borð.

Kviknaði í potti á eldavél

Slökkviliðið átti ekki í miklum vandræðum með að ráða niðurlögum elds sem tilkynnt var um í Skipasundi nú rétt fyrir klukkan eitt. Eldurinn hafði kviknað í potti sem skilinn hafði verið eftir á eldavél og náði eldurinn ekki að breiðast út um íbúðina.

Eldur í kjallara í Skipasundi

Slökkviliðið er nú á leið í Skipasund 1 í Reykjavík þar sem eldur kom upp í kjallara. Tveir bílar eru á leið á staðinn. Ekki er ljóst hvort um mikinn eld sé að ræða á þessari stundu.

110 prósent leiðin of flókin - afstaða Lýsingar illskiljanleg

110 prósent úrræðið var útfært of þröngt og hefði mátt vera einfaldara og þar með fljótlegra í framkvæmd. Úrræðið fór seint af stað og var ekkert auglýst í byrjun. Þetta er meðal annars mat eftirlitsnefndar til efnahags- og viðskiptaráðherra um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins.

Brennisteinslykt fannst við Múlakvísl í morgun

Megn brennisteinslykt fannst við Múlakvísl í morgun og segir Jónas Erlendsson, bóndi í Fagradal, að hann hafi fundið lyktina fyrst um sex leytið í morgun og því áður en skjálftin reið yfir en skjálfti, um tveir komma átta á ríkter, varð í Kötlu í morgun. Jónas segir að hann hafi fundið lyktina öðru hverju undanfarin ár og að það sé algengara að hún blossi upp á haustin. Menn setji þó fyrirvara við lyktina þegar hún komi samfara jarðskjálfta á svæðinu. Jónas segir engan vöxt í Múlakvíslinni, einungis sé um venjulegt haustvatn sé að ræða.

Skar sig á IKEA spegli - varan innkölluð

Ikea hefur innkallað ELGÅ skáp með FENSTAD rennihurð með spegli eftir að verslunin fékk tilkynningar um að spegillinn losnaði af hurðinni með þeim afleiðingum að hann brotnaði. Í einu tilviki skar viðskiptavinur sig eftir að spegillinn féll í gólfið og brotnaði.

Vinningshafinn í Víkingalottóinu fundinn

Glaðbeittur maður á besta aldri af höfuðborgarsvæðinu kom í morgun á skrifstofu Íslenskrar getspár og framvísaði vinningsmiða úr Víkingalottóinu í síðustu viku. Lýst hefur verið eftir manninum frá því á miðvikudag enda ekki um neinn smávinning að ræða, heldur rúmar fimmtíu milljónir íslenskra króna. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að maðurinn eigi börn og barnabörn og sjái nú fram á að geta aðstoðað sitt fólk í lífsbaráttunni. Miðinn var keypur í söluturninum Jolla í Hafnarfirði. Aðeins var um eina röð að ræða sem kostaði fimmtíu krónur. Þær hafa nú skilað sér margfalt til baka.

Skjálfti í Kötlu

Jarðskjálfti reið yfir í Mýrdalsjökli rétt fyrir klukkan sjö í morgun. Veðurstofan hefur reiknað út styrk skjálftans og var hann 2,89 stig. Engir aðrir skjálftar hafa mælst í kjölfarið og samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunnni er ekkert sem bendir til að skjálftinn sé vísbending um frekari tíðindi. Skjálftinn varð í öskju Kötlu og mælist á fimm kílómetra dýpi.

Sundabraut sett á ís í minnst hálfan áratug

Framkvæmdum við Sundabraut verður slegið á frest, að minnsta kosti næstu fimm árin. Þess í stað mun ríkisstjórnin setja einn milljarð á ári næstu tíu árin í tilraunaverkefni um eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að öllum stórframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu verði slegið á frest, á fyrri hluta tilraunaverkefnisins.

Kirkjuráð vill fresta framkvæmdum við Skálholt

Framkvæmdir Kirkjuráð hefur farið fram á að framkvæmdir við svonefnda Þorláksbúð við Skálholtskirkju verði stöðvaðar tímabundið. Samtök áhugamanna um uppbyggingu Þorláksbúðar hafa unnið að gerð búðarinnar á tóftum eldri byggingar og var farið að hilla undir verklok.

Stakk sambýlismann sinn í Kópavogi

Karlmaður var stunginn með hnífi í Kópavogi um klukkan fimm síðdegis í gær. Sambýliskona mannsins var handtekin grunuð um verknaðinn. Maðurinn var stunginn nokkrum sinnum í kvið og í hendi. Hann var fluttur á sjúkrahús alvarlega slasaður en mun þó ekki vera í lífshættu að því er lögregla segir. Fólkið er á sextugsaldri. Konan er enn í haldi lögreglu og hefur ekki verið yfirheyrð enn sökum ástands, eins og lögreglan orðar það.

Tími kominn á skipaflotann

„Þetta eru stærstu skipin sem við getum látið smíða fyrir okkur miðað við þær hafnir sem við erum að fara inn á á suðurleið okkar. Við erum ekki aðeins að bæta um sautján prósentum við flutningsgetuna heldur erum við einnig að setja í skipin fleiri tengingar fyrir frystigáma,“ segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips.

Níu kannabisræktendur ákærðir

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært níu kannabisræktendur. Ákærurnar, sjö talsins, voru allar þingfestar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. Sama dag voru fimm sakborninganna dæmdir. Þeir hlutu allt frá skilorðsbundinni refsingu upp í fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi. Hinir fjórir bíða dóms.

Seguljárn á hafsbotni dregur til sín Ástrala

Félagið Soley Minerals vill leyfi frá Orkustofnun til að kanna hvort vinna megi seguljárn og fleiri málma af hafsbotni við Suðurland og í Héraðsflóa. Soley Minerals er dótturfélag ástralska námuvinnslufélagins Thielorr Sarl.

Tíu milljarðar settir í almenningssamgöngur

Ríkisstjórnin hefur skuldbundið sig til að setja einn milljarð króna árlega í almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Litið er á verkefnið sem kjarabót, þar sem samgöngur eru nú næststærsti útgjaldaliður heimila, næst á eftir húsnæði og hærri en matarinnkaup.

Sigurvegarinn fær forsíðuna

Ljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins hefst í dag og er þemað „Fólk að hausti“. Besta myndin mun prýða forsíðu Fréttablaðsins laugardaginn 1. október næstkomandi. Verðlaun fyrir fyrsta sætið eru leikhúsmiðar fyrir sex í Borgarleikhúsið. Verðlaun fyrir annað og þriðja sætið eru leikhúsmiðar fyrir tvo í Borgarleikhúsið.

Ákært fyrir vanrækslu sauðfjár

Lögreglustjórinn á Eskifirði hefur ákært ábúanda á Stórhóli í Djúpavogshreppi fyrir brot á lögum um dýravernd og búfjárhald með því að vanrækja að tryggja góðan aðbúnað, meðferð og fóðrun sauðfjár á ofangreindum bæ.

Samkeppnisstaða fjármálafyrirtækja skert með nýjum bankaskatti

Okkur líst afar illa á þennan skatt, segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja. Hann staðfestir í samtali við Vísi að samtökunum hafi verið kynntar hugmyndir í gær um 10,5% skatt sem fjármálaráðuneytið hyggst leggja á launagreiðslur starfsmanna hjá fjármálafyrirtækjum vátryggingafélögum og lífeyrissjóðum á næsta ári.

Milljónatjón fyrir fornleifafræðinga

Fornleifafræðingar sem vinna við uppgröft á Landspítalalóðinni við Hringbraut urðu fyrir miklum skakkaföllum í fyrrinótt þegar tækjabúnaði, að verðmæti margra milljóna króna, var stolið úr vinnuaðstöðu þeirra.

Efast um skatta á laun bankastarfsmanna

Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur efasemdir um að rétt sé að hækka skatta á laun bankastarfsmanna. Í fjármálaráðuneytinu er um þessar mundir verið að ræða að leggja sérstakan 10,5% skatti ofan á launakostnað banka og tryggingafyrirtækja, eftir því sem Viðskiptablaðið greinir frá.

Gæslan fær Þór á morgun

Varðskipið Þór verður afhent Landhelgisgæslunni við hátíðlega athöfn í Asmar skipasmíðastöð skipasmíðastöð sjóhersins í Chile á morgun.

Nokkrir voru ósyndir

Nokkrir af þeim sem varðskipið Ægir bjargaði úr ofhlöðnum báti á sjó milli Marokkó og Spánar lentu í sjónum og virtust vera ósyndir. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni lak mjög hratt úr bátnum þeirra en skamman tíma tók að setja út Springer léttbát varðskipsins og var björgunarvestum kastað til fólksins. Einnig voru tveir gúmmíbjörgunarbátar sjósettir.

Þroskaþjálfar styðja félagsráðgjafa í kjarabaráttu

Þroskaþjálfar lýsa yfir fullum stuðningi við félagsráðgjafa í kröfum þeirra um bætt kjör og að fá leiðréttingu launa sinna. Í ályktun frá Þroskaþjálfafélagi Íslands segir að félagsráðgjafar sinni mikilvægu starfi af metnaði og dugnaði. Mikil fagleg uppbygging hafi átt sér stað á liðnum árum og oft á tíðum við erfiðar aðstæður eftir bankahrunið.

Áfrýjar DV-máli til Hæstaréttar

Heiðar Már Guðjónsson fjárfestir ætlar að áfrýja sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur yfir DV til Hæstaréttar. Heiðar Már höfðaði mál gegn blaðinu vegna ummæla sem féllu um hann í blaðinu í október á síðasta ári. Í blaðinu var meðal annars fullyrt að Heiðar Már hefði tekið stöðu gegn krónunni.

Sló mann fjórum sinnum í andlitið með slökkvitæki

Hæstiréttur Íslands hefur staðfest átta mánaða fangelsisdóm yfir karlmanni á fertugsaldri sem sló annan mann að minnsta kosti fjórum höggum í andlitið með slökkvitæki. Hæstiréttur lækkaði greiðslu á miskabótum til mannsins um 250 þúsund krónur en héraðsdómur hafði áður dæmt manninn til að greiða fórnarlambi sínu 500 þúsund í bætur.

Pútin vill kynnast Kjarval

Forsætisráðherra Rússlands, Vladimir Putin, bauð forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni að sækja ráðstefnu um norðurleiðina og önnur málefni Norðurslóða. Meginviðfangsefni ráðstefnunnar er hvernig bráðnun hafíss kallar á nýja skipan og ábyrga stefnumótun.

Blindaðist af sólinni og velti bílnum

Ökumaður bifreiðar slapp við minniháttar áverka þegar að hann velti bíl sínum á Reykjanesbrautinni fyrir hádegið í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum blindaðist ökumaðurinn af sólinni og missti stjórn á bílnum í kjölfarið. Hann var fluttur á slysadeild til skoðunar.

Vox rakaði inn verðlaunum fyrir matreiðslumann ársins

Úrslitakeppni um Matreiðslumann ársins fór fram í Hótel- og matvælaskólanum um síðustu helgi. Fulltrúar frá VOX Restaurant lentu í tveimur af þremur efstu sætunum, þeir Sigurður Kristinn Laufdal Haraldsson sem sigraði keppnina, og Fannar Vernharðsson í því þriðja.

DV-menn sýknaðir: "Sanngjörn og falleg niðurstaða“

"Þetta gefur mér aukna trú á dómskerfið,“ segir Reynir Traustason, ritstjóri DV, sem var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag í meiðyrðamáli sem hagfræðingurinn Hreiðar Már Guðjónsson höfðaði gegn honum.

1400 blaðsíður um íslenska listasögu

Á blaðamannafundi í morgun var kynnt útgáfa yfirlitsverks um íslenska myndlist. Verkið ber nafnið Íslensk listasaga og er fimm binda verk sem spannar tímabilið frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar. Bindin eru gefin út í vandaðri öskju og er samtals um 1400 blaðsíður.

Lýsa yfir stuðningi við Ögmund í Teigskógarmálinu

Landvernd, Fuglavernd og Náttúruverndarsamtök Íslands lýsa yfir stuðningi við þá ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra að hlífa Teigsskógi og leggja til vegagerð eftir svokallaðri D-leið í Gufudalssveit með göngum undir Hjallaháls. Í sameiginlegri tilkynningu frá félögunum segir að þessi leið hafi verið samþykkt af Skipulagsstofnun og umhverfisráðherra og því sé ekkert til fyrirstöðu að ráðast í hana og bæta þannig strax úr brýnni þörf Vestfirðinga á betri samgöngum með láglendisvegi. Hugmyndin hefur mætt mikilli andstöðu heimamanna og á dögunum gekk stór hluti fundarmanna út þegar Ögmundur kynnti málið á Patreksfirði

Gagnrýnir Ferðaklúbbinn fyrir kortagrunn

Umhverfisstofnun er ósátt við Ferðaklúbb 4x4 eftir að þeir birtu GPS kortagrunn með upplýsingum um vegi, slóða og aðrar akstursleiðir á Íslandi.

Framkvæmdastýra jafnréttisstofu: VR brýtur hugsanlega á karlmönnum

Framkvæmdastýra Jafnréttisstofu telur að hugsanlega sé verið að brjóta á karlmönnum með aðgerð VR sem felst í því hvetja fyrirtæki til að veita konum tíu prósent afslátt af vörum þessa vikuna. Átak VR er liður í því að vekja athygli á launamisrétti kynjanna.

Kvikmyndahús slást um klassíska tónlist

„Þetta er enginn risamarkaður heldur mjög tryggur hópur og við sjáum oft sömu andlitin," segir Alfreð Árnason, framkvæmdastjóri Sambíóanna. Kvikmyndafélagið Sena tilkynnti í gær að það hygðist hefja beinar útsendingar frá óperum og ballettsýningum Royal Opera House í Háskólabíói. Fyrsta sýningin verður Faust miðvikudaginn 28. september.

Helmingur á móti staðsetningu hátæknisjúkrahúss

Rúmur helmingur þjóðarinnar er andvígur staðsetningu nýs hátæknisjúkrahúss við Hringbraut, samkvæmt könnun MMR. Tvöfalt fleiri eru mjög andvígir staðsetningunni en mjög hlynntir en lítill munur er á afstöðu fólks eftir búsetu en hann er mikill eftir aldri.

Sjá næstu 50 fréttir