Fleiri fréttir

Aftur kveikt í á Bergstaðastræti - fimmta sinn á skömmum tíma

Slökkviliðið var kallað út seint í nótt vegna bruna í Bergstaðastræti en þar hafði verið kveikt í einangrun sem er utan á sökkli nýbyggingar í götunni. Fljótlega gekk að slökkva eldinn og hlaust lítið tjón af. Þetta er hinsvegar í fimmta sinn á rúmum mánuði sem kveikt er í þessu sama húsi. Ekki er vitað hver þar hefur verið að verki.

Icesave er á leiðinni fyrir EFTA-dómstól

ESA, eftirlitsstofnun EFTA, mun ekki bíða eftir uppgjöri þrotabús Landsbankans heldur fara með Icesave-málið fyrir EFTA-dómstólinn, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Lögreglumenn þreyttir á ofríki

„Lögreglumenn eru þreyttir á ofríki því sem þeim er sýnt og skilningsleysi gagnvart neikvæðri launaþróun þeirra.“ Svo segir í ályktun félagsfundar Lögreglufélags Reykjavíkur sem var samþykkt í fyrradag. Lögreglumenn krefjast leiðréttingu launa sinna miðað við launaþróun annarra stétta síðastliðin tíu ár og segjast eiga betra skilið frá ríkinu.

Vilja að ekkert skyggi á kirkjuna í Skálholti

Afkomendur Harðar Bjarnasonar, fyrrum húsameistara ríkisins og hönnuður Skálholtskirkju, eru ósáttir við gerð svonefndrar Þorláksbúðar í nágrenni kirkjunnar og segja ekkert samráð hafa verið haft við sig vegna málsins.

Allt stefnir í allsherjarverkfall á mánudag

Félagsráðgjafar funduðu með fulltrúum frá Reykjavíkurborg hjá Ríkissáttasemjara í gær. Fundinum lauk upp úr hádegi án árangurs og er annar boðaður klukkan tvö í dag.

Atvinnuleitin erfið

Atvinnulaus ungmenni segja leit að vinnu geta verið erfiða en mörg hver hafa sótt um fjölda starfa án árangurs. Um fjórðungur ungmenna sem eru atvinnulaus hefur verið án án atvinnu í meira en eitt ár.

Klippum beitt til að ná manni úr bíl

Einn slasaðist alvarlega í bílslysinu efst í Kömbunum um fimmleytið í dag. Ekki er þó talið að hann sé í lífshættu. Tveir bílar rákust þar saman og er talið að annar þeirra hafi verið að aka inn á veginn af bílastæði sem þar er. Einn maður var í öðrum bílnum og fimm í hinum. Allir sex voru fluttir á spítala, en fimm voru með minniháttar meiðsl. Beita þurfti klippum til að ná þeim sem slasaðist mest út úr bíl sínum.

Skjólskógar brutu jafnréttislög

Skjólskógar á Vestfjörðum brutu jafnréttislög þegar þau sögðu konu en ekki karlmanni upp störfum á dögunum. Þetta segir í niðurstöðu kærunefndar Jafnréttisnefndar.

Hljóp tölvuþjóf uppi

Sprettharður starfsmaður verslunar í miðborginni hljóp á eftir unglingspilti sem stal tölvu úr verslun í miðborginni í gær og endurheimti tölvuna. Starfsmaður lauflétti er kominn á miðjan aldur en er greinilega í góðu formi.

Slökkvilið kallað út vegna misheppnaðs pizzubaksturs

Lögregla og slökkvilið brunuðu að fjölbýlishúsi í Reykjavík í gær þegar tilkynnt var um reyk í húsinu. Enginn eldur reyndist vera í húsinu þegar á staðinn var komið. Í einni íbúðinni hafði hinsvegar ungur maður verið að hita sér pizzu í ofni og haft hana þar inni alltof lengi. Pizzan var auðvitað ónýt og eitthvað virðist það hafi farið í skapið á manninum því hann neitaði að hleypa lögreglu og slökkviliði inn til sín. Engar skemmdir voru sjáanlegar í íbúðinni eftir þessa misheppnuðu eldamennsku.

Harður árekstur í Kömbunum

Harður árekstur varð milli tveggja bíla í Kömbunum um fimm leytið í dag. Bílarnir voru að koma úr gagnstæðri átt þegar þeir skullu saman. Samkvæmt upplýsingum frá sjúkraliði höfuðborgarsvæðinu voru sex manns fluttir á slysadeild, misjafnlega alvarlega slasaðir. Lögregla og sjúkralið frá Reykjavík, Árborgarsvæðinu og Hveragerði voru send á vettvang.

Eldfjall framlag Íslands til Óskarsverðlauna

Meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar hafa valið Eldfjall, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2012 sem besta erlenda myndin.

Kassastrákur kærði formann VR til jafnréttisnefndar

Kassastrákurinn Hallur Reynisson hefur kært sextán fyrirtæki til kærunefndar jafnréttismála og að auki formann VR, Stefán Einar Stefánsson og yfirmann sinn, Gunnar Inga Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa.

RIFF sett annað kvöld

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík 2011, RIFF, verður sett annað kvöld á NASA. Opnunarmynd hátíðarinnar er myndin “Inni” með hljómsveitinni Sigur Rós.

Oddný Sturludóttir formaður skóla- og frístundaráðs

Skipað var í nýtt skóla- og frístundaráð á fundi borgarstjórnar 20. september. Ráðið tekur yfir stefnumótun menntamála og frístundastarfs barna og ungmenna í leik- og grunnskólum og frístundaheimilum Reykjavíkurborgar sem áður fór fram í leikskólaráði, menntaráði og að hluta til í íþrótta- og tómstundaráði.

Koma úr Reykjavík til að kaupa eina röð

"Það er búið að vera brjálað að gera og mikið um að fólk sé að koma og kaupa eina röð," segir Líney Ragnarsdóttir, rekstrarstjóri Jolla í Hafnarfirði.

Ók á brugghús undir áhrifum fíkniefna

Karlmaður ók á brugghús Víkings á Akureyri seint í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri var maðurinn að taka fram úr annarri bifreið þegar hann missti stjórn á bílnum.

Kristni í lagi meðan fólk fer ekki í kirkju

"Staðreyndin er sú að málflutningur á borð við þann sem Friðrik stendur fyrir veldur því að samkynhneigð ungmenni jafnt á Íslandi sem um heim allan líða miklar kvalir og í versta falli fremja sjálfsmorð því einhver prestur segir þeim að tilfinningarnar sem þau eru að upplifa séu ekki Guði þóknanlegar. Það eru þung og erfið skilaboð fyrir óharðnaða unglinga,“ skrifar Guðmundur Helgason, formaður samtaka 78´, og svarar grein sem Friðrik Schram, prestur Kristskirkjunnar í Reykjavík, ritað og birti í Fréttablaðinu og á Vísi í gær.

Veiða ólöglega og vonast til að lenda fyrir dómi

Tugum smábáta verður siglt á næstu vikum og munu þeir veiða án kvóta í mótmælaskyni. Formælandi sjómannana segist vonast til þess að bátarnir verði sviptir veiðileyfi sínu svo hægt sé að höfða mál til að breyta framkvæmd laga um stjórn fiskveiða.

Kannast þú við tölurnar 2-9-16-17-38-42?

"Við höfum áhyggjur af því að sá sem vann hafi hent miðanum sínum og því hvet ég alla til að skoða miðana sína," segir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar Getspá.

Ísland vinsælt í hinsegin ritum

Öll helstu alþjóðlegu tímarit samkynhneigðra beina sjónum að Íslandi um þessar mundir. Landinu er lýst sem ákjósanlegum áfangastað fyrir hinsegin fólk og athygli vakin á náttúru og fjölbreyttri afþreyingu.

Gröfumaður lokaði óvart metan-afgreiðslustöðum

Gröfumaður sleit í sundur raflögn í gærdag sem varð til þess að viðskiptavinir bensínstöðvarinnar gátu ekki dælt metan eldsneyti á bíla sína. Í kjölfarið þurfti fyrirtækið að leggjast í lagfæringar til þess að opna metanstöðvarnar á ný.

Gögnum um þrotabú safnað

ESA, eftirlitsstofnun EFTA, féllst á þá röksemd íslenskra stjórnvalda að bíða eftir gögnum, sem varða þrotabú Landsbankans, áður en ákvörðun yrði tekin í Icesave-málinu.

Hrefnuveiðiskip verði útilokuð frá Faxaflóa

„Það er ekki hlustað á okkur og hrefnuveiðarnar í Faxaflóa stöðvaðar þó að við séum grenjandi af áhyggjum,“ segir Vignir Sigursveinsson, forsvarsmaður hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar í Reykjavík.

Strandveiðimenn læri rétta meðferð á afla

„Við skynjuðum það á bryggjunni þegar við vorum að gera þessar mælingar að vilji er til að gera rétt, en oft skortir þekkinguna. Menn átta sig kannski ekki á því en margir hafa gott af smá kennslu í réttri aflameðferð og örverufræði,“ segir Jónas R. Viðarsson, fagstjóri Matís.

Kvótalaus skip lönduðu í gær

Nokkrir smábátar útgerða sem eru í Samtökum íslenskra fiskimanna héldu til veiða í gær þrátt yfir að hafa ekki útgefnar aflaheimildir. Meðal annars var róið frá Hólmavík, Kópavogi og Sandgerði. Fulltrúar Fiskistofu fylgdust með þegar afla úr einum bátanna var landað í Kópavogi.

Rafrænt eftirlit talið spara 10 til 15 pláss

Gera má ráð fyrir að um tíu til fimmtán fangelsisrými sparist á ári hverju með rýmkun samfélagsþjónustu og upptöku rafræns eftirlits með föngum í afplánun. Þetta segir Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar.

Ísland vinsælt í hinsegin ritum

Helstu alþjóðlegu tímarit samkynhneigðra beina nú sjónum að Íslandi. Landinu er lýst sem ákjósanlegum áfangastað meðal annars sökum þess hversu langt á veg réttindabaráttan er komin og höfuðborgin og náttúran hafin upp til skýjanna.

Óvíst hverjir bjóða sig fram fyrir Besta flokkinn

Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Besta flokksins, hefur fyrir hönd flokksins unnið að stofnun nýs framboðs til Alþingis með Guðmundi Steingrímssyni þingmanni. Hún segir ekki liggja fyrir nein nöfn á fólki sem mun bjóða sig fram fyrir hönd flokksins.

Vísað af veitingastöðum fyrir að gefa brjóst

Viðhorf gagnvart brjóstagjöf á almannafæri hér á landi virðist hafa versnað síðustu ár segir einn skipuleggjandi brjóstagjafarviku. Dæmi eru um að konum hafi verið vísað út af veitingastöðum fyrir það eitt að gefa brjóst.

Samkynhneigðir bjóða Friðriki í heimsókn

Prestur íslensku krists-kirkjunnar í Reykjavík segir kynlíf einstaklinga af sama kyni vera rangt. Formaður Samtakanna 78 segir prestinn breiða út fordóma og skorar á hann að kíkja í heimsókn og fræðast.

Vilja ekki fjölga borgarfulltrúum

Sjálfstæðismenn í borgarstjórn telja óþarft að fjölga borgarfulltrúum líkt og gert er ráð fyrir í lagafrumvarpi sem samþykkt voru á Alþingi þann 17. september. Borgarfulltrúar sjálfstæðisflokksins óskuðu í dag eftir sérstakri umræðu um frumvarpið. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að borgarfulltrúum verði fjölgað úr 15 í 23-31.

Synti með selunum í Húsdýragarðinum

Selirnir í Húsdýragarðinum fengu óvænta heimsókn í dag þegar róðrarkappinn Fiann Paul gerði sér lítið fyrir og fékk sér sundsprett í tjörninni þeirra. Uppátækinu var meðal annars ætlað að undirbúa hann fyrir samveru með mun hættulegri dýrum.

Vilja Torfajökulssvæðið á minjaskrá UNESCO

Torfajökulssvæðinu verður bætt á yfirlitsskrá Íslands með tilnefningu til heimsminjaskrár UNESCO í huga, samkvæmt tillögu sem samþykkt var á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Þjóðskrá fær alþjóðlega viðurkenningu

Alþjóðasamtök sérfræðinga á sviði fasteignamats (The International Association of Assessing Officers - IAAO) veittu Þjóðskrá Íslands í dag æðstu viðurkenningu sína fyrir aðferðir og tæknilega vinnu við nýtt fasteignamat á Íslandi. Þetta var tilkynnt á ársþingi samtakanna, sem stendur yfir í Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum. Þjóðskrá deildi viðurkenningunni með matsstofnun í Seattle í Bandaríkjunum.

Karlmaður um sjötugt stunginn í miðborginni

Karl um sjötugt var stunginn með hnífi í húsi miðborginni síðdegis í gær. Árásarmaðurinn, sem er nokkru yngri, var handtekinn af lögreglunni á staðnum og vísaði sá á hnífinn, sem var haldlagður. Sá sem var stunginn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en meiðsli hans voru ekki talin ekki alvarleg.

Sjá næstu 50 fréttir