Pútin vill kynnast Kjarval 22. september 2011 16:39 Ólafur Ragnar Grímsson og Vladimar Putin.
Forsætisráðherra Rússlands, Vladimir Putin, bauð forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni að sækja ráðstefnu um norðurleiðina og önnur málefni Norðurslóða. Meginviðfangsefni ráðstefnunnar er hvernig bráðnun hafíss kallar á nýja skipan og ábyrga stefnumótun. Ráðstefnan hófst í morgun í Arkangelsk í Rússlandi og síðdegis átti forseti fund með forsætisráðherra Rússlands. Áður höfðu báðir flutt ræður á ráðstefnunni sem sótt er af fjölda forystumanna, sérfræðinga og áhrifafólks frá ríkjum á Norðurslóðum. Á fundinum með forseta Íslands ítrekaði Vladimir Putin áhuga Rússa á því að auka samvinnu við Ísland á mörgum sviðum. Viðfangsefni sem tengjast væntanlegri opnun hinnar nýju siglingaleiðar kalla á víðtækt samráð en lega Íslands og Rússlands mun skipta miklu þegar siglingar hefjast. Nauðsynlegt sé að huga að setningu strangra reglna til að efla öryggi og umhverfisvarnir. Ennfremur sé þegar hafin umræða um hvaða hafnir kunna að gegna lykilhlutverki. Á fundinum kom einnig fram mikill áhugi á því að auka samstarf við Íslendinga á sviði jarðhitanýtingar, jafnt í Rússlandi sem annars staðar í veröldinni. Orkumálaráðherra Rússlands, sem einnig sat fundinn, kom til Íslands fyrir ári í kjölfar fundar forseta Íslands með Vladimir Putin í septembermánuði 2010, og átti viðræður við stjórnvöld, rannsóknarstofnanir og fyrirtæki. Á fundinum nú var ítrekaður sérstakur áhugi Rússa á nýtingu jarðhita á Kamtsjatka. Vladimir Putin nefndi einnig ríkan áhuga Rússa á því að efla samvinnu milli þjóðanna um rannsóknir og sjálfbæra nýtingu á fiskistofnum og auðlindum hafsins. Einnig kom fram að árið 2013 verður sjötíu ára afmæli stjórnmálasambands landanna. Að því tilefni hefðu Rússar mikinn áhuga á viðburðum á sviði menningar, myndlistar, útgáfu og fræða, og taldi Putin sérstakt fagnaðarefni ef Rússum gæfist kostur á því að kynnast verkum Jóhannesar Kjarvals. Á ráðstefnunni í Arkangelsk eru flutt fjölmörg erindi sem snerta undirbúning siglinga um hinar nýju norðurleiðir en þær munu stytta verulega siglingaleiðir milli Asíu og Evrópu annarsvegar og Asíu og Ameríku hinsvegar. Þá er einnig fjallað um þróun samstarfs á sviði öryggismála, eftirlits og björgunar. Í þeirri umræðu er einnig lögð rík áhersla á verndun umhverfis og strangar öryggiskröfur varðandi siglingar og nýtingu náttúruauðlinda á Norðurslóðum.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Velja Viljandi villt Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Fleiri fréttir Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný Sjá meira