Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sprengingar við Fálkagötu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um sprengingar við Fálkagötu á tólfta tímanum í gærkvöldi. Þar sást til unglinga að sprengja einhvers konar kínverja, en þeir forðuðu sér áður en lögreglan kom. 14.12.2009 08:14
Átta fjölveiðiskip leita gulldeplu Átta fjölveiðiskip eru nú byrjuð að leita að gulldeplu, um það bil 40 sjómílur suður af Grindavík. 14.12.2009 08:05
Mikill gnýr í Óðalsbændum Mikill glaumur var á veitingahúsinu Óðali í nótt. Kvað svo rammt að hávaðanum frá húsinu að lögreglumenn fóru á vettvang á fimmta tímanum í nótt. 14.12.2009 07:35
Hópslagsmál unglinga við Kringluna Lögreglumenn stöðvuðu unglingaslagsmál við Borgarleikhúsið á áttunda tímanum í gærkvöldi, en tveimur hópum unglinga laust saman við Kringluna. 14.12.2009 07:32
Töluvert tjón í bílskúrsbruna Töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í bílskúr við Hverafold í Reykjavík á tíunda tímanum í gærkvöldi. Eldurinn magnaðist hratt og var að teygja sig í þakskegg á næsta húsi þegar slökkvilið kom á vettvang. 14.12.2009 07:18
Tilraun til að nýta gulldeplu sem aðalfóður í þorskeldi Hraðfrystihúsið Gunnvör í Hnífsdal gerði í fyrravetur tilraun til að nýta gulldeplu sem fóður í áframeldi á villtum þorski. Tilraunin gafst það vel að hugmyndir eru uppi um að leggja áherslu á gulldeplu sem fóður og Álfsfell, annað þorskeldisfyrirtæki í Djúpinu, hefur bæst við. Huginn VE frá Vestmannaeyjum ætlar að frysta 500 tonn fyrir jól, gefi á sjó. 14.12.2009 06:00
Jón berst gegn sameiningu ráðuneyta Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur beitt sér gegn sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins. Samkvæmt heimildarmönnum Fréttablaðsins, úr þingliðum beggja stjórnarflokka, hefur hann reynt að torvelda vinnu við verkefnið, meðal annars með því að neita að hitta embættismenn sem starfa að sameiningunni. 14.12.2009 05:30
Milljarði sóað í dráttarvexti Ríkisstofnanir greiddu 1,2 milljarða króna í dráttarvexti frá ársbyrjun 2007 fram á mitt þetta ár. Stofnanir sem greiddu yfir milljón króna voru 37 talsins en sex þeirra bera meirihluta þessa kostnaðar og er uppsöfnuðum rekstrarhalla undanfarinna ára um að kenna. 14.12.2009 04:45
Fjöldi sveitarfélaga lifir ekki án styrkja Um helmingur sveitarfélaga á Íslandi, 36 af 77, fær þrjátíu prósent eða meira af tekjum sínum frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ljóst er að slík sveitarfélög ættu erfitt uppdráttar án styrksins. Tvö sveitarfélög fá meira en helming tekna sinna úr sjóðnum; Skagabyggð er með 59,4 prósent og Bæjarhreppur með 59,7 prósent. 14.12.2009 04:00
Framlög til fangelsa og dómstóla aukin Auka á fjárveitingar til dómstóla og verja yfir 100 milljónum í fjölgun fangarýma á næsta ári. Þetta er meðal þess sem gert er ráð fyrir í breytingartillögum við fjárlagafrumvarp næsta árs, sem ræddar verða á Alþingi í dag. 14.12.2009 04:00
Ítarleg lögfræðileg álitsgerð óþörf Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu í Strassborg, telur ekki tilefni til að efast um að Icesave-frumvarpið standist stjórnarskrá. Er hann raunar þeirrar skoðunar að ástæðulaust sé að tekin verði saman ítarleg lögfræðileg álitsgerð um málið. 14.12.2009 03:30
Samgöngumiðstöð enn í mestri óvissu Ekki hefur enn verið gengið frá því hvaða fyrirtæki eiga að nota fyrirhugaða samgöngumiðstöð í Vatnsmýri. Á næstunni verður rætt við flugfélög, veitingamenn og þá sem reka hópferðabíla um þetta. 14.12.2009 03:15
673 íslenskar bækur í flóðinu Aldrei hafa verið prentaðar fleiri bækur hérlendis en nú fyrir jólin að því er kemur fram í könnun Bókasambands Íslands. Um áttatíu prósent af öllum þeim bókartitlum sem birtust í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda eru prentuð hérlendis. 14.12.2009 03:00
Möppurnar seljast í janúar Fram undan er aðalvertíð ársins hjá Múlalundi í möppuframleiðslu, en þar eru framleiddar bókhaldsmöppur sem heita því rammíslenska nafni EGLA. Ef ekki selst vel af möppum í janúar má segja að árið sé ekki gott á vinnustofunni. Með því að kaupa möppurnar er verið að styrkja einstakling til betri framtíðar, því þær skapa vinnu fyrir fatlað fólk. Múlalundur var stofnaður árið 1959 og fagnar því hálfrar aldar afmæli sínu í ár. Þar vinnur fólk sem hefur einhvers konar fötlun, líkamlega eða andlega, en þó ekki blindir og heyrnarlausir. 14.12.2009 03:00
Fjölmenni á kertavökum Áætlað er að mörg hundruð þúsund manns hafi mætt á meira en 3.200 loftslagskertavökur í 139 löndum í gær. Meira en ellefu milljónir manna um allan heim hafa skrifað undir yfirlýsingu um að þeir séu tilbúnir fyrir raunverulegar aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. 14.12.2009 03:00
Mótmæla auknum sköttum Neytendasamtökin eru andvíg frumvarpi ríkisstjórnarinnar um umhverfis- og auðlindaskatta og hvetja til þess að það verði endurskoðað. Þetta kemur fram í umsögn samtakanna um frumvarpið. 14.12.2009 02:00
Stal og vildi selja fíkniefni Tvítug kona hefur verið ákærð fyrir innbrot, þjófnaði og afhendingu fíkniefna í söluskyni. 14.12.2009 01:00
Stefnir í 102 milljarða fjárlagahalla Ekki tekst að minnka halla á fjárlögum næsta árs eins mikið og gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu en nú stefnir í að hallinn verði um 102 milljarðar á næsta ári. Framlög til stjórnmálaflokka lækka sem og ráðstöfunarfé ráðherra. 13.12.2009 19:08
Þjóðarkosningu um Icesave hrint af stað Vefmiðillinn Eyjan mun í dag hleypa af stokkunum rafrænni þjóðarkosningu á meðal almennings um hvort veita skuli ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu. 13.12.2009 14:51
Kvartaði undan umfjöllun við útgefanda DV Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, óskaði eftir því við Hrein Loftsson útgefanda DV að blaðið hætti umfjöllun um hans mál. Ástæðan sé sú að fréttaflutningurinn hafi leitt til þess að anarkistar sætu um hús hans og vildu valda honum tjóni. 13.12.2009 14:12
Stálu tölvu og flakkara af heimavist Í nótt var farið inn í herbergi á heimavist Fjölbrautaskóla Suðurlands við Eyraveg og þaðan stolið Toshiba fartölvu og MSI flakkara í eigu nemenda skólans. Lögreglan segir að tjónið sé tilfinnanlegt fyrir nemandann þar sem í tölvunni var mikið efni tengt námi hans. Lögreglan biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um málið að hafa samband í síma 480 1010. 13.12.2009 13:23
Björgunarafrekið við Steinsholtsá - myndir Björgunarsveitamenn á Suðurlandi unnu frækilegt afrek þegar þeir komu þremur mönnum til bjargar í Steinsholtsá í Þórsmörk í gærkvöldi. Svæðisstjóri björgunarsveita á Suðurlandi sem var á vettvangi segir að einn mannanna hafi hangið utan á bifreið mannanna sem sat föst úti í miðri á. 13.12.2009 12:32
Um 40% fjölgun mála hjá Hæstarétti Málum hjá Hæstarétti hefur fjölgað úr 500 á ári í 700, eða um 40%, á síðustu tveimur árum. Biðtími mála hefur á sama tíma lengst um 15%. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpi sem dreift var á Alþingi í gær fyrir aðra umræðu. Horfur eru á að málum muni fjölga mun meira vegna bankahrunsins. 13.12.2009 12:10
Fallið frá skerðingu barnabóta og vaxtabætur hækkaðar Ríkisstjórnin hefur ákveðið að falla frá áformum um skerðingu á barnabótum sem lið í aðhaldsaðgerðgum. Því verður sama upphæð til ráðstöfunar og var árið 2009 til að greiða út bætur. Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, sem dreift var á Alþingi í gær fyrir aðra umræðu, er gert ráð fyrir að þessum útjöldum veðri mætt með tekjum af nýju auðlegðargjaldi. 13.12.2009 11:55
Seldu sendiherrabústaðinn fyrir 550 milljónir króna Utanríkisráðuneytið hefur selt sendiherrabústaðinn í New York fyrir 550 milljónir íslenskra króna. 13.12.2009 11:25
Tveir ölvaðir ökumenn gistu fangageymslur á Selfossi Tveir menn voru handteknir á Selfossi í nótt eftir að hafa ekið undir áhrifum áfengis. Báðir enduðu þeir ökuferðir sínar með því að aka á. 13.12.2009 09:37
Þrjú innbrot í Reykjavík Þrjú innbrot voru framin í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Brotist var inn í Apple umboðið á Laugavegi og þaðan var stolið þremur dýrum tölvum og ein tölva eyðilögð. Þá var brotist inn í íbúðarhúsnæði á tveimur stöðum. 13.12.2009 09:24
Eldur við Fjarðarstræti á Ísafirði Lögregla og slökkvilið fengu tilkynningu um eld við Fjarðarstræti 57 og 59 á Ísafirði laust eftir klukkan fimm í nótt. 13.12.2009 09:20
Ómar: Finnar stálu jólasveininum „Við létum Finna stela jólasveininum frá okkur,“ segir Ómar Ragnarsson sjónvarpsmaður með meiru. 13.12.2009 08:00
Festust á þaki bíls í Steinsholtsá Lið frá björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurlandi var kallað út til aðstoðar mönnum sem festust í Steinsholtsá við Þórsmörk í kvöld. Þeir hugðust aka yfir ána en festust enda hefur mikið vatn verið í ánni í kvöld. Höfðust mennirnir við á toppi bílsins þangað til björgunarsveitamenn komu þeir til aðstoðar. 12.12.2009 20:24
Minni slysahætta engin rök fyrir vegagerð Rök eins og minni slysahætta og stytting ferðatíma hafa ekkert gildi þegar umhverfisáhrif vegagerðar eru metin, samkvæmt túlkun Skipulagsstofnunar á nýlegum dómi Hæstaréttar um Teigsskóg. Alþingismaður segir að ef þetta eigi að gilda sé búið að girða fyrir vegagerð víðsvegar um landið. 12.12.2009 18:40
Segir skattahækkanir ríkisstjórnarinnar stórhættulegar Skattahækkanir ríkisstjórnarinnar við þær aðstæður sem nú eru í íslensku efnahagslífi eru stórhættulegar og allar líkur eru á því að þær bæði dýpki og lengi þá kreppu sem nú stendur yfir, segir Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Hann segir að heimilin í landinu þoli ekki hærri skatta ofan á launalækkun, hærri afborganir á lánum og minni atvinnu. 12.12.2009 17:05
Hannes: Auðvelt að vera vitur eftir á „Athugasemd Ríkisendurskoðunar er eflaust rétt, enda auðvelt að vera vitur eftir á," segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, stjórnmálafræðiprófessor og fyrrverandi bankaráðsmaður í Seðlabanka Íslands. 12.12.2009 14:59
Jólalestin fer af stað klukkan fjögur Jólalögin munu óma víðsvegar um höfuðborgarsvæðið þegar jólalestin svokallaða heldur af stað frá Stuðlahálsi klukkan fjögur í dag. 12.12.2009 14:48
Brjálað að gera hjá Happahúsinu „Það er bara löng röð inn í Hagkaup. Það er brjálæði að gera,“ segir Magnús Kristinsson, starfsmaður hjá Happahúsinu í Kringlunni. 12.12.2009 14:38
Hefur vonandi lært eitthvað af Christie „Ég vona að ég hafi lært eitthvað af henni," segir Ragnar Jónasson rithöfundur í samtali við breska vefinn Crime Time. Ragnar, sem er 33 ára gamall, hefur þýtt Agöthu Christie bækur allt frá því að hann var í menntaskóla en fyrsta skáldsaga hans, Fölsk nóta, kom út fyrir þessi jól. 12.12.2009 13:14
Steingrímur telur að Icesave frumvarpið nái í gegn Fjármálaráðherra býst ekki við andstöðu fleiri þingmanna Vinstri grænna við Icesave frumvarpið og reiknar með að það hljóti stuðning meirihluta Alþingis við lokaafgreiðslu þess. Ef einn stjórnarliði til viðbótar leggst gegn frumvarpinu, þarf stjórnin á stuðningi Þráins Bertelssonar að halda til að frumvarpið verði að lögum. 12.12.2009 12:03
Jólasveinninn lítur sennilegast við í Heiðmörk Fyrsti jólasveinninn kom til byggða í nótt og því voru líklega ófá börn sem vöknuðu með eitthvað í skónum sínum í morgun. Það var stekkjastaur sem var þar á ferðinni. 12.12.2009 11:43
Saka Sjálfstæðisflokkinn um blekkingar Þingflokksformenn Samfylkingarinnar og VG segja að Sjálfstæðisflokkurinn beiti vafasamri framsetningu í umfjöllun sinni um breytingar á skattkerfinu. 12.12.2009 10:49
Boða til nýs kröfufundar í dag Hagsmunasamtök heimilanna og samtökin Nýtt Ísland boða til fundar á Austurvelli í dag klukkan þrjú. Fundurinn krefst leiðréttingar á höfuðstól lána, afnáms verðtryggingar. 12.12.2009 10:22
Hátt í 600 íbúðir komnar í eigu lánastofnana Bankarnir og Íbúðalánasjóður eiga 575 íbúðir og íbúðarhús í dag. Áætlað verðmæti þessara eigna er um 10 milljarðar króna. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. 12.12.2009 09:49
Níu gistu fangageymslur á höfuðborgarsvæðinu Níu manns gistu fangageymslur á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna brota sem tengjast ölvun. Töluverður erill var hjá lögreglunni. Mikið var um útköll vegna hávaða og sex voru teknir vegna gruns um ölvunarakstur. Þá tók lögreglan á Suðurnesjum tvo menn vegna ölvunaraksturs. 12.12.2009 09:31
Íbúum boðin gisting hjá Rauða krossinum Töluverðar reykskemmdir urðu í íbúð í fjölbýlishúsi í Huldulandi í Reykjavík á tíunda tímanum í gærkvöld þegar eldur kviknaði út frá feiti í potti. Slökkviliðið reykræsti íbúð og stigagang í húsinu. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði var íbúum boðin gistiaðstaða á vegum Rauða Krossins. 12.12.2009 09:16
Meta rétt ríkisins til að sækja hrunsbætur Hafin er vinna á vegum fjármálaráðuneytisins við að meta hvort unnt sé að hefja og reka skaðabótamál á hendur þeim sem sýna má fram á að hafi valdið ríkinu og almenningi fjárhagslegu tjóni með athöfnum sínum í aðdraganda bankahrunsins. Nær athugunin jafnt til lögaðila sem einstaklinga og er óháð rannsóknum sérstaks saksóknara á refsiverðri háttsemi í aðdraganda hrunsins. 12.12.2009 08:15
Fallið frá frestun mánaðar af orlofi Ákvæði um frestun eins mánaðar af fæðingarorlofi þar til eftir þrjú ár í frumvarpi félagsmálaráðherra um breytingar á lögum um fæðingarorlof verður breytt í félagsmálanefnd, að sögn Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, formanns félagsmálanefndar Alþingis. 12.12.2009 07:45