Fleiri fréttir

Nær 200 umsóknir um fjörutíu störf

Um 180 umsóknir bárust um fjörutíu stöður sem nýlega voru auglýstar lausar til umsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Á bak við þessar umsóknir eru 120 umsækjendur, því nokkrir sóttu um fleiri en eina stöðu.

Umboðsmenn fá um 50 ný mál á mánuði

Umboðsmenn viðskiptavina hjá viðskiptabönkunum þremur fá samtals um fimmtíu mál á mánuði að meðaltali til úrlausnar þar sem viðskiptavinur bankans gerir athugasemdir eða óskar eftir upplýsingum vegna afgreiðslu bankans á málum viðkomandi.

Icesave ætlaður alltof skammur tími

„Það kemur ekki á óvart að þau skuli ekki hafa fengist til verksins. Það mun enginn fást til að vinna svo mikilvægt og flókið lögfræðiálit á þeim stutta tíma sem meirihlutinn hefur ákveðið.“

Ekki einhugur um staðsetninguna

„Þetta málþing er hugsað fyrir alla sem hafa áhuga á að átta sig á málum sem tengjast væntanlegu háskólasjúkrahúsi, staðsetningu og byggingu,“ segir Gestur Ólafsson, einn aðstandenda málþingsins, Nýr Landspítali – hvar, hvernig og fyrir hverja.

Jólalest Coca-Cola fer af stað

Jólalest Coca-Cola mun keyra um höfuðborgarsvæðið í dag. Jólalestin samanstendur af fimm trukkum sem eru hlaðnir rúmlega tveggja kílómetra löngum ljósaseríum og hljóðkerfi.

Roman Abramóvitsj kemur að útgáfunni

Roman Abramóvitsj, eigandi fótboltaliðsins Chelsea og einn ríkasti maður Englands, kemur að útgáfu ljósmyndabókarinnar Africa, Future of Football eða Afríka, framtíð fótboltans eftir Pál Stefánsson ljósmyndara. Bókin kemur út í mars, örfáum mánuðum áður en heimsmeistarakeppnin í fótbolta hefst í Suður-Afríku.

Strætisvagn lenti utan vegar

Engan sakaði þegar strætisvagn lenti utan vegar í miklu hvassviðri á Kjalarnesi í gærmorgun. Vagninn var á leið frá Akranesi þegar atvikið varð.

Fréttablaðið stækkar enn

Fréttablaðið í dag er 160 blaðsíður, sextán síðum stærra en blaðið sem kom út um síðustu helgi og var þá stærsta blað sem komið hafði út í útgáfusögu blaðsins.

Rúmlega 33 þúsund skora á forsetann

Rúmlega 33 þúsund Íslendingar höfðu í gær skráð nöfn sín á áskorun til forseta Íslands um að synja Icesave-lögum staðfestingar á vef Indefence-hópsins.

Skotarnir unnu enn eina samkeppnina

Sundlaug verður í miðri innhöfninni, á Ægisgarði, ef ráðist verður í framkvæmdir eftir verðlaunatillögu um skipulag Gömlu hafnarinnar og Örfiriseyjar. Skosk arkitektastofa, Graeme Massie, bar sigur úr býtum í keppninni og fékk í sinn hlut 7,5 milljónir króna.

Fíkniefni í sjónvarpsflakkara

Fangi á Litla-Hrauni hefur verið ákærður af lögreglustjóranum á Selfossi fyrir að reyna að smygla fíkniefnum í sjónvarpsflakkara inn í fangelsið.

Jörundarstígur samþykktur

Göngustígurinn milli Skólabrúar og Austurstrætis á hér eftir að heita Jörundarstígur. „Er tillagan gerð með vísan til þess að í ár eru 200 ár liðin frá valdatöku danska ævintýramannsins Jörgens Jörgenssonar á Íslandi og nú er hafin endurbygging Austurstrætis 22 í upprunalegri mynd,“ segir í greinargerð sem lögð var fyrir borgarráð. Stjórnarsetur Jörgens Jörgenssonar var áður í húsinu sem varð Austurstræti 22.

Styrkti aðstoð Rauða krossins

Alþýðusamband Íslands afhenti á dögunum jólaaðstoð Rauða krossins hálfa milljón króna í styrk. Það var Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sem afhenti Kristjáni Sturlusyni, framkvæmdastjóra Rauða krossins, styrkinn. Jólaúthlutun Rauða krossins fer fram í samstarfi við Mæðrastyrksnefnd, Hjálparstarf kirkjunnar og fleiri aðila. Úthlutun fer fram um allt land og meðal þess sem er úthlutað er matur og fatnaður.- þeb

Kröfufundur á morgun

Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland boða til kröfufundar á morgun klukkan 15 á Austurvelli. Helstu kröfur fundarins eru leiðrétting höfuðstóls lána, afnám verðtryggingar, að veð takmarkist við veðandlag og að skuldir fyrnist á 5 árum.

Opið í Skaftafelli í fyrsta sinn að vetrarlagi

Upplýsingamiðstöðin í Skaftafelli er nú í fyrsta sinn opin yfir vetrarmánuði enda segir þjóðgarðsvörður íslenska náttúru einnig draga ferðamenn að um háveturinn. Heitt vatn, sem nýlega fannst á staðnum, býður upp á nýja möguleika.

Meira tjón en hlýst af Icesave

Ríkisendurskoðandi segir að meira tjón hljótist af tæknilegu gjaldþroti Seðlabankans en Icesave, verði heimtur Landsbankans eins og spáð er. Að minnsta kosti hundrað sjötíu og fimm milljarðar króna munu lenda á íslensku þjóðinni vegna ástarbréfa Seðlabankans.

Veikir ekki stjórnarsamstarfið

Fjármálaráðherra segir það ekki veikja stjórnarsamstarfið að tveir þingmenn Vinstri grænna greiddu atkvæði gegn Icesave frumvarpinu. Afstaða þeirra hafi þó valdið honum vonbrigðum. Hann reiknar með að málið muni að lokum njóta stuðnings meirihluta þingmanna.

Sendinefnd AGS kynnir árangur viðræðna

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur dvalið hér á landi frá byrjun mánaðarins og beint athygli sinni að endurreisn fjármálakerfisins og rætt við ráðherra og fleiri um aðra endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda og sjóðsins. Á mánudaginn fer fram blaðamannafundur í Seðlabankanum þar sem Mark Flanagan, yfirmaður sendinefndarinnar, og Franek Rozwadowski, sendifulltrúi sjóðsins á Íslandi, kynna vinnu sendinefndarinnar og árangur viðræðna.

Catalina í vikulangt gæsluvarðhald

Miðbaugsmaddaman, Catalina Ncogo, hefur verið úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald en hún hefur þegar sætt varðhaldi í tvær vikur. Kona sem var einnig handtekinn í tengslum við málið hefur verið sleppt.

Skotar unnu í samkeppni um Gömlu höfnina

Arkitektastofa í Edinborg í Skotlandi, Graeme Massie Architects, hlaut fyrstu verðlaun í A-hluta hugmyndasamkeppni sem Faxaflóahafnir sf. efndu til vegna skipulags Gömlu hafnarinnar og Örfiriseyjar í Reykjavík. Samstarfsaðili hennar á Íslandi er ráðgjafarfyrirtækið Alta ehf. Úrslitin voru tilkynnt við athöfn í Víkinni sjóminjasafni nú síðdegis um leið og sigurlaunin voru afhent, 7,5 milljónir króna. Allt í allt veittu Faxaflóahafnir 14 milljónir króna í verðlaun í samkeppninni.

Ók á brúarstólpa

Betur fór en á horfðist þegar fólksbíl var ekið á brúarstólpa á Reykjanesbraut á fjórða tímanum. Brúin sem ekið var á er á milli Breiðholts og Smiðjuhverfis í Kópavogi.

Tónlistarhúsið heitir Harpa

Tónlistar og ráðstefnuhúsið við höfnina hefur fengið nafnið Harpa. Þetta var tilkynnt við hátíðlega athöfn í dag. Efnt var til samkeppni um nafn á húsið í febrúar í fyrra og létu viðbrögð ekki á sér standa og bárust fjölmargar tillögur.

Vopnaþjófur dæmdur

Maður um tvítugt var dæmdur fyrir að stela tvívegis haglabyssum í Öxarfirði á síðasta ári og vopnalagabrot. Annarsvegar fór hann inn um ólæstar dyr íbúðarhússins að Katastöðum og tók þaðan úr geymslu í forstofuherbergi haglabyssu af gerðinni Stevens.

Dæmdur fyrir að ofsækja barnsmóður sína

Karlmaður var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára fyrir að ofsækja barnsmóður sína og mann sem var með henni. Meðal annars hellti hann gosi inn um glugga hjá henni, á tölvu sem eyðilagðist í kjölfarið.

Flugfreyjur samþykkja verkfallsheimild

Flugfreyjur í Flugfreyjufélagi Íslands samþykktu í atkvæðagreiðslu í gær að veita stjórn félagsins heimild til verkallsboðunar. Gert er fyrir að verkfallið geti hafist 2. janúar næstkomandi náist ekki samningar við Icelandair en að sögn Sigrúnar Jónsdóttur, formanns Flugfreyjufélagsins, snýst kjaradeila flugfreyja um forgangsréttarákvæði í leiguflugi erlendis og starfsaldursákvæði.

Vilja lengra gæsluvarðhald yfir Catalinu - vitorðsmanni sleppt

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Catalinu Ncogo, sem er grunuð um að hafa haft milligöngu um vændi og mansal. Kona sem var handtekin með henni, og er grunuð um sömu brot, hefur verið sleppt.

Í sjokki eftir brotsjó - myndir

„Við erum svona að jafna okkur. Þetta var auðvitað sjokk,“ segir Unnsteinn Líndal Jensson, skipstjóri línubátsins Sighvats GK 57, en brotsjór lenti á bátnum með þeim afleiðingum að sjór flæddi inn og tveir sjómenn slösuðust. Sauma þurfti sex spor í augabrún annars þeirra.

Kirkjuklukkum hringt 350 sinnum vegna umhverfisógnar

Í tilefni af loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í Kaupmannahöfn verður kirkjuklukkum um allan heim hringt 350 sinnum, sunnudaginn 13. desember klukkan þrjú, „til að minna á þá umhverfisvá sem steðjar að jarðarbúum vegna hlýnunar andrúmsloftsins," að því er fram kemur í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni. Hér á landi verður kirkjuklukkum hringt víða um land.

Meira bóluefni berst í næstu viku

Ný sending bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) berst heilsugæslustöðvum um land allt í byrjun næstu viku og þá verður unnt að taka þráðinn upp að nýju við bólusetningar en efnið kláraðist á dögunum. Í tilkynningu frá Sóttvarnalækni og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra segir að bólusetning hefjist á nýjan leik miðvikudaginn 16. desember og þá ganga þeir fyrir sem hafa skráð sig á biðlista. Þrír liggja nú á spítala vegna veikinnar og er einn þeirra á gjörgæslu.

Samstarfskonu Catalinu hugsanlega sleppt

Gæsluvarðhald rennur út í dag yfir Catalinu Ncogo og annarri konu sem eru grunaðar um mansal og að hafa haft milligöngu um vændi. Þær voru handteknar fyrir tveimur vikum síðan og voru strax úrskurðaðar í varðhald, aðeins tveimur dögum eftir að Catalina hafði verið dæmd í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa haft milligöngu um vændi og fíkniefnabrot.

Sluppu ómeidd þegar eldur kviknaði

Kona og ungt barn hennar sluppu ómeidd þegar eldur kom upp í íbúð þeirra á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi við Egilsgötu í Borgarnesi í gærkvöldi.

Brotist inn í tvo skóla

Brotist var inn í Háteigsskóla í Reykjavík um klukkan fimm í morgun, en lögreglumenn gómuðu þjófinn utandyra með tvo skjái, sem hann hafði stolið þar.

Óskar eftir fundi þingnefnda vegna Mjólku

Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur óskað eftir sameiginlegum fundi viðskiptanefndar og sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar vegna fyrirhugaðs samruna Mjólku og mjólkurbús Kaupfélags Skagfirðinga.

Lögregla stöðvaði kannabisrækt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í fyrradag ræktun á 210 kannabisplöntum í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði og lagði jafnframt hald á tæplega tvö og hálft kíló af marijúana.

Þrjár stúlkur játuðu árás í Heiðmörk

Þrjár sautján ára stúlkur játuðu fyrir dómi í fyrradag að hafa ráðist á fjórðu stúlkuna í Heiðmörk í apríl á þessu ári. Vegna skýlausra játninga stúlknanna var málið í kjölfarið dómtekið og má búast við dómi á næstu vikum.

Pörunin stangast á við lög um þingsköp

Útpörun Sivjar Friðleifsdóttur Framsóknarflokki í atkvæðagreiðslunni um Icesave-málið á Alþingi á þriðjudag hefur vakið athygli. Var útpörunin viðhöfð þar sem Helgi Hjörvar Samfylkingunni, nýkjörinn forseti Norðurlandaráðs, var ytra í embættiserindum.

Adakris er orðinn stærsti verktaki Reykjavíkurborgar

Litháíska verktakafyrirtækið Adakris hefur fengið 385 milljónir greiddar frá Reykjavíkurborg á árinu, en Malbikunarstöðin Höfði, opinbert fyrirtæki, hefur fengið næst mest, 263 milljónir.

Segir sjóðinn vera arf frá gömlum tíma

„Ég sé engin sérstök rök fyrir því að halda þessum sjóði sérgreindum frá Atvinnuleysistryggingasjóði. Það er eðlilegt að við séum með eitt og sama kerfið fyrir alla landsmenn,“ segir Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra, um Tryggingasjóð sjálfstætt starfandi einstaklinga.

Fiskvinnslur í hættu ef ákvörðun stendur

„Á þetta útspil ráðherrans lítum við innan samtakanna mjög alvarlegum augum. Það stefnir í að fjölmargir missi vinnuna vegna þess að svo til ekkert hráefni berst inn á fiskmarkaðina og leigumarkaðurinn er frosinn,“ segir Jón Steinn Elíasson, formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda.

Leikskólastjórar múlbundnir af borginni

Leikskólakennurum í Reykjavík hefur verið meinað að áframsenda á stjórnir foreldrafélaga fundarboð frá hagsmunasamtökum foreldra leikskólabarna. Þeir mega heldur ekki hengja upp veggspjöld frá samtökunum þar sem slíkir fundir eru auglýstir, né tala á neikvæðum nótum um fyrirhugaðan niðurskurð hjá leikskólum borgarinnar.

Samfylkingin ein skilar á réttum tíma

Hátt í 180 tilkynningar frá frambjóðendum og flokkum höfðu borist Ríkisendurskoðun að loknum skrifstofutíma í gær, þegar frestur stjórnmálamanna og -flokka til að skila margvíslegum upplýsingum um fjármál sín síðustu árin rann út.

Sjá næstu 50 fréttir