Milljarði sóað í dráttarvexti 14. desember 2009 04:45
Ríkisstofnanir greiddu 1,2 milljarða króna í dráttarvexti frá ársbyrjun 2007 fram á mitt þetta ár. Stofnanir sem greiddu yfir milljón króna voru 37 talsins en sex þeirra bera meirihluta þessa kostnaðar og er uppsöfnuðum rekstrarhalla undanfarinna ára um að kenna. Stofnunum er ekki heimilt samkvæmt lögum að fjármagna rekstur með lánum eða yfirdrætti. Þetta kemur fram í samantekt Ríkisendurskoðunar fyrir Fréttablaðið um dráttarvaxtagreiðslur ríkisstofnana. Á síðasta ári greiddi A-hluti ríkissjóðs, en til hans heyrir hin eiginlega starfsemi ríkissjóðs sem fjármögnuð er af skatttekjum, tæpar 650 milljónir króna í dráttarvexti til aðila utan ríkisins. Þar af námu dráttarvextir sem tengjast bankahruninu með beinum hætti samtals yfir 150 milljónum króna. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurskoðun ríkisreiknings 2008 kemur fram að dæmi er um að stofnanir sem starfa innan fjárheimilda, greiða engu að síður umtalsverðar upphæðir í dráttarvexti. Ríkisendurskoðun telur nauðsynlegt að tekið verði á þessum vanda í heild sinni tafarlaust og að með öllu sé ólíðandi að stofnanir greiði dráttarvexti að ástæðulausu. Ríkisendurskoðun hvetur fjármálaráðuneytið til þess að bjóða stofnunum sem eiga í verulegum rekstrarvanda upp á endurfjármögnun skulda á meðan unnið er að varanlegri lausn rekstrarvandans. Nokkrar stofnanir skera sig úr hvað varðar greiðslu dráttarvaxta. Þær eiga það sammerkt að bera uppsafnaðar skuldir frá síðustu árum; aðallega til birgja. - shá
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira