Ómar: Finnar stálu jólasveininum 13. desember 2009 08:00 Ómar Ragnarsson í gervi jólasveinsins í Vesturveri við Aðalstræti í desember 1964. „
Við létum Finna stela jólasveininum frá okkur," segir Ómar Ragnarsson sjónvarpsmaður með meiru. Ómar segir að eftir stríðið hafi íslensk börn jólasveininum á Íslandi en Íslendingar hafi hreinlega ekkert séð nema fyrirhöfn við þetta. „En við getum ennþá toppað Finnana. Þeir eru með hreindýr, sleða, frosin vötn, skóg og snjó. Við erum með þetta allt og auk þess eldfjöll, þrettán jólasveina í staðinn fyrir einn, Grýlu, Leppalúða, tröllin, álfana. Allan pakkann. Það eru ekki nema tveir staðir á Íslandi sem geta boðið þetta. Kröflusvæðið, sem er á kafi í snjó allan veturinn, og Fljótsdalsheiði, í örfárra kílómetra fjarlægð frá alþjóðaflugvellinum á Egilsstöðum. Með öllum þessum jólahefðum, lögum og textum, sem búið er að búa til á síðustu sjötíu árum," segir Ómar í bókinni Jólaminningar, eftir Jónas Ragnarsson, sem kom út fyrir skömmu. Ómar segir að Íslendingar séu með stórkostlega jólamenningu á Íslandi sem er hvergi annars staðar til í heiminum. Ómar segir einnig frá því í bókinni að eftir að hann varð landsþekktur skemmtikraftur hafi hann verið tregur til að fara að skemmta sem jólasveinn. „Ég taldi að maður ætti ekki að græða á Jesúbarninu. Síðan gerðist það að Svavar Gests bað mig að gera texta við Here Comes Santa Claus. Ég gerði það og lagið hét Jólasveinninn minn," segir Ómar. Þetta var fyrir jólin 1962. Ragnar Bjarnason og Ellý Vilhjálms sungu lagið á Hótel Sögu og síðar kom það út á plötu. „Þá brotnaði stíflan og ég ákvað að fara út í þennan jólasveinaslag - sem Gáttaþefur," segir Ómar. Hann segist hafa gert fleiri jólatexta en nokkur annar Íslendingur. „Ekki undir hundrað. Oftast fyrir aðra," segir Ómar.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira