Ítarleg lögfræðileg álitsgerð óþörf 14. desember 2009 03:30 Davíð Þór Björgvinsson
Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu í Strassborg, telur ekki tilefni til að efast um að Icesave-frumvarpið standist stjórnarskrá. Er hann raunar þeirrar skoðunar að ástæðulaust sé að tekin verði saman ítarleg lögfræðileg álitsgerð um málið. Davíð er í hópi þeirra lögspekinga sem fjárlaganefnd Alþingis hefur, að ósk stjórnarandstæðinga, beðið um að skrifa lögfræðiálit um hvort Icesave standist ákvæði stjórnarskrár. Snýst álitaefnið um hvort í frumvarpinu felist framsal dómsvalds og þar með brot á stjórnarskránni. Í bréfi til þingsins segir Davíð að reynist skilningur hans á frumvarpinu réttur geti hann ekki séð að um framsal dómsvalds geti verið að ræða, sem fari gegn stjórnarskrá. „Sýnist raunar þetta atriði það einfalt [að] ekki sé tilefni til að taka saman ítarlega lögfræðilega álitsgerð um það sérstaklega," segir í bréfinu. Að því sögðu kveðst Davíð ekki geta tekið að sér að vinna umbeðið lögfræðiálit vegna starfa sinna í Strassborg. Guðrún Erlendsdóttir og Pétur Kr. Hafstein, fyrrverandi hæstaréttardómarar og Skúli Magnússon, ritari EFTA-dómstólsins í Lúxemborg, hafa einnig beðist undan verkefninu. Lagaprófessorarnir Björg Thorarensen og Eiríkur Tómasson vinna hins vegar að álitsgerð um málið, að ósk meirihluta fjárlaganefndar. Stjórnarandstæðingar telja þau vanhæf þar sem þau hafa áður komið fyrir nefndina og látið í ljós álit sitt munnlega. Munu þau þeirra skoðunar að Icesave-frumvarpið brjóti ekki í bága við stjórnarskrá.- bþs
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira