Jón berst gegn sameiningu ráðuneyta 14. desember 2009 05:30 Í þinginu Þrátt fyrir óánægju Jóns Bjarnasonar með fyrirhugaða sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins er hvergi hvikað frá verkefninu.fréttablaðið/stefán
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur beitt sér gegn sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins. Samkvæmt heimildarmönnum Fréttablaðsins, úr þingliðum beggja stjórnarflokka, hefur hann reynt að torvelda vinnu við verkefnið, meðal annars með því að neita að hitta embættismenn sem starfa að sameiningunni. Kveðið er á um sameiningu ráðuneytanna í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í atvinnuvegaráðuneyti. Samhliða henni á að færa rannsókir, mótun nýtingastefnu og ráðgjöf vegna auðlinda til umhverfisráðuneytisins, sem við það verður umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að frumvarp um nauðsynlegar lagabreytingar vegna sameiningarinnar og tilfærslu verkefna verði lagt fram nú á haustþingi. Það hefur ekki enn verið gert en samkvæmt heimildum blaðsins er enn stefnt að því. Ekki hefur verið ákveðið hvenær af sameiningunni verður en bæði hefur verið rætt um mitt næsta ár og ársbyrjun 2011. Viðmælendur Fréttablaðsins segja Jón leggjast bæði gegn sameiningu ráðuneytanna og flutningi verkefna er lúta að auðlindamálum úr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu í umhverfisráðuneytið. Veigamest er færsla Hafrannsóknarstofnunarinnar á milli ráðuneyta. Í stefnuskrá Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs fyrir síðustu kosningar var fjallað um að auka beri veg auðlindamála í umhverfisráðuneytinu. Viðmælendur Fréttablaðsins úr stjórnsýslunni furða sig á háttalagi Jóns í ljósi þess að breytingarnar eru á stefnuskrá ríkisstjórnarinnar og njóta þar með samþykktar hans eigin þingflokks. Þingmenn úr VG sem rætt var við sögðu málið njóta stuðnings meirihluta þingmanna flokksins og almennur vilji væri fyrir því að af breytingunum yrði. Jóni hefði verið gerð grein fyrir því. Ekki náðist í Jón Bjarnason. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira