Fleiri fréttir

Krefst rannsóknar á kúasæðingu Audda

Dýralæknafélag Íslands krefst rannsóknar á kúasæðingu Auðuns Blöndal sem fjallað var um í Fréttablaðinu í dag. „Þeir eru að gera eitthvað sem leikmenn mega ekki gera og þetta er niðurlægjandi fyrir dýrið. Tiltækið er fámunalega ósmekklegt og það er spurning hvort þetta sé ekki dýraverndarmál,“ segir Guðbjörg Þorvarðardóttir, formaður Dýralæknafélag Íslands, sem er allt annað en sátt með framgöngu sjónvarpmannanna Auðuns Blöndal og Sverris Þór Sverrissonar, betur þekktir sem Auddi og Sveppi.

Þrír af fimm framkvæmdastjórum yfirgefa Seltjarnarnesbæ

Tveir framkvæmdastjórar af fimm hjá Seltjarnarnesbæ hyggjast segja upp störfum og einn sagði upp störfum í morgun. Ástæðan er sögð vera óánægja með breytingar sem hafa orðið í stjórnsýslu bæjarins eftir að Ásgerður Halldórsdóttir tók við stöðu bæjarstjóra fyrr á árinu.

Bjóða fyrrum vistmönnum Silungapolls viðtöl

Nefnd sem kannar starfsemi vist- og meðferðaheimila fyrir börn kannar um þessar mundir starfsemi vistheimilisins Reykjahlíðar, heimavistaskólans Jaðars og vistheimilisins Silungapolls

Evrópulánið tryggir orku í fyrsta áfanga Helguvíkur

Ákvörðun Evrópska fjárfestingabankans, að gefa grænt ljós á þrjátíu milljarða króna lán til Orkuveitu Reykjavíkur, þýðir að Orkuveitan getur tryggt nægilegt rafmagn til fyrsta áfanga álvers Norðuráls í Helguvík. Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir lánskjörin ásættanleg.

Hlín: Ráðning þjóðleikhússtjóra var leikrit

Einn umsækjenda um stöðu þjóðleikhússtjóra gagnrýnir ráðningarferlið harðlega og segir það sýndarmennsku frá upphafi til enda. Hún segir að aldrei hafi annað staðið til en að ráða niðurskurðarmeistara í starfið og íhugar að kæra ráðningarferlið til umboðsmanns Alþingis.

Sýkingin í síldinni alvarlegri en í fyrra

Sýking í íslensku sumargotssíldinni, sem fundist hefur í Breiðafirði, er alvarlegri en í fyrra og mælir Hafrannsóknastofnunin með veiðibanni. Þetta er mikið áfall fyrir síldveiðiflotann og vinnslufyrirtæki í landi og ljóst að þjóðarbúið verður af milljarðaverðmætum.

Skýrsla sendinefndar AGS ekki birt á áður tilkynntum tíma

Skýrsla sendinefndar AGS á Íslandi sem átti að birtast á heimasíðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í hádeginu í dag gerði það ekki. Heimila átti birtingu skýrslunnar klukkan tvö í dag og áttu blaðamenn að fá hana fyrirfram til þess að geta kynnt sér efni hennar, en í skýrslunni er meðal annars lagt mat á skuldaþol íslenska ríkisins verði ríkisábyrgð heimiluð á Icesave-samningana.

Icesave afgreitt í næstu viku

Talið er nánast öruggt að Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar hafi meirihluta á Alþingi. Málið verður væntanlega afgreitt lög frá Alþingi í lok næstu viku.

Vatnsleki í Firðinum

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um áttaleytið í morgun vegna vatnsleka í verslunarmiðstöðinni Firðinum í Hafnarfirði. Dæla í kjallara hússins hafði bilað og lak talsvert magn vatns um kjallarann. Dælubíll slökkviliðsins var enn á staðnum á ellefta tímanum.

Alþingi kemur saman eftir kjördæmaviku

Alþingi kemur saman í dag eftir vikulangt hlé vegna svokallaðrar kjördæmaviku. Fjárlaganefnd kom saman til að ræða fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2010 og frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2009. Þá munu fleiri nefndir funda í dag. Þingfundur mun síðan hefjast með fyrirspurnartíma klukkan þrjú.

Afhenda þingmönnum athugasemdir

InDefence hópurinn hyggst afhenda þingmönnum síðar í dag ítarlegar athugasemdir við Icesave viðaukasamninginn. Þá hefur hópurinn boðað til blaðamannafundar síðdegis þar sem athugasemdirnar verða kynntar.

Ásta fundar með forseta Evrópuþingsins

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, mun eiga fund með Jerzy Buzek, forseta Evrópuþingsins, í Brussel á miðvikudaginn. Þau munu ræða samskipti þinganna í aðildarumsóknarferli Íslands að Evrópusambandinu.

Sextíu ár frá því fyrstu umferðarljósin voru tekin í notkun

Í dag eru liðin 60 ár frá því fyrstu umferðarljósin tekin í notkun á Íslandi en þau voru staðsett á gatnamótum Austurstrætis og Pósthússtrætis. Í beinu framhaldi komu svo ljós á þrenn önnur gatnamót í miðbæ Reykjavíkur, við Lækjartorg og á Laugavegi við Ingólfsstræti og Skólavörðustíg, að fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Fjármögnun virkjana Orkuveitunnar á lokastigi

Evrópski fjárfestingarbankinn hefur samþykkt að lána Orkuveitu Reykjavíkur 30 milljarða króna. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins barst samningur þess efnis til fyrirtækisins á föstudag, þar sem skilyrði bankans fyrir lánveitingu eru tíunduð. Það er fyrirtækisins að ákveða hvort það samþykkir þau skilyrði og þar með lánið. Verði það gert verður skrifað undir í vikunni, samkvæmt heimildum blaðsins.

Borgarafundur í Iðnó í kvöld

Hagsmunasamtök heimilanna efna til borgarafundar í Iðnó klukkan átta í kvöld. Yfirskrift fundarins er: Aðgerðir stjórnvalda, bjargráð eða bjarnargreiði? Framsöguerindi flytja þeir Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra, Marinó G. Njálsson, stjórnarmaður í samtökunum, Jóhann G. Jóhannsson og Theódór Norðkvist. Að loknum framsögum verða pallborðsumræður með þátttöku þingmanna úr öllum flokkum, auk framsögumanna. Öllum ráðherrum og þingmönnum hefur verið sérstaklega boðið á fundinn, en fundarstjóri verður Vilhjálmur Árnason.- kóp

Engar upplýsingar um sparnað vegna opins hugbúnaðar

Ríkið hefur ekki heildarupplýsingar um kostnað stofnana hins opinbera vegna leigu á leyfum á séreignahugbúnaði. Ekki liggja því fyrir upplýsingar um hugsanlegan sparnað ríkisins af innleiðingu opins hugbúnaðar.

Flensan gæti enn átt eftir að versna

Aldrei hafa fleiri sjúklingar legið á Landspítalnum með svínaflensu. Þar liggja nú 45 sjúklingar með flesuna, þar af ellefu á gjörgæsludeild. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að hann eigi von á því að í vikunni komi í ljós hvort flensan eigi enn eftir að versna eða hvort nú muni loks fara draga úr henni. Svo gæti farið að um 100 manns til viðbótar þyrftu að leggjast inn. Þar með gætu sjúklingar á gjörgæsludeild orðið allt að þrjátíu talsins en að jafnaði hefur fólk, þungt haldið af svínaflensu, þurft að dvelja þar í þrjá til fjórar vikur. Spítalann segir hann þó geta annað slíku álagi.

Telur verðfall á fiskmörkuðum kalla á rannsókn

Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir að leita þurfi skýringa á því hvers vegna verð á fiskmörkuðum hér á landi og útflutningsverð þróaðist ekki í takt við gengisfall krónunnar framan af ári.

Leita læknis eftir neyslu orkudrykkja

Töluvert er um að fólk leiti sér læknisaðstoðar eftir að hafa drukkið svokallaða orkudrykki. Þetta segir Ófeigur T. Þorgeirsson, yfirlæknir á slysa- og bráðasviði. Hann segir nauðsynlegt að fólk lesi innihaldslýsingar og virði ráðlagðan hámarksskammt. „Þetta eru mjög varasamir drykkir í of miklu og of hröðu magni,“ segir Ófeigur um orkudrykki almennt.

„Við erum rosalega bjartsýn og vongóð“

„Þetta er örugglega létt geggjun. En við erum rosalega bjartsýn og vongóð,“ segir Telma Birgisdóttir, einn eigenda Tekk ehf., sem hefur tekið við rekstri Habitat.

Hálf milljón gefin í fótabað

Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands hefur styrkt Hveragerðisbæ um fimm hundruð þúsund krónur til að gera fótabað. „Verkefnið er hluti af endurbótum og uppbyggingu svæðisins með það að markmiði að auka aðsókn ferðamanna á Hverasvæðið," segir um málið í fundargerð mannvirkjanefndar Hveragerðis. „Hverasvæðið er eitt af fáum svæðum þar sem hægt er að sjá fjölbreytta nýtingu jarðhita á Íslandi með ræktun í gróðurhúsum, fótabaði í hveravatni, borholum, suðu á eggjum, rúgbrauðsbakstur auk goshvera, leirhvera og hveralækja."- gar

Vill breyta turni í hótel

Þyrping hefur sótt um leyfi til að fá að breyta einum íbúðaturni í Skuggahverfi í hótel. Það mundi rúma allt að 160 herbergi. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gær.

Sjaldan veldur einn þá tveir deila

Vegna fréttar sem birtist á Vísi í gærkvöldi um slagsmál í Keiluhöllinni vill fyrirtækið taka nokkur atriði fram, þar sem ekki hafi verið greint rétt frá í fréttinni. Málið snýst um átök sem brutust út seint á föstudagskvöldið milli tveggja hópa sem voru á brautum hlið við hlið.

Aldrei fleiri á spítala með svínaflensu

Aldrei hafa fleiri sjúklingar legið á Landspítalnum með svínaflensu en 45 sjúklingar liggja þar nú, þar af ellefu á gjörgæslu. Undanfarna daga hafa borist fréttir af því að flensan sé í rénun en í dag var tekin ákvörðun um að hafa spítalann áfram á svokölluðu virkjunarstigi.

TF-Líf sótti slasaðann ökumann

TF-Líf þyrla Landhelgisgæslunnar var beðin um að sækja slasaðan ökumann sem hafði velt bíl sínum á Holtavörðuheiði í dag. Sjúkrabíll bað um aðstoð þyrlunnar í gegnum neyðarlínuna klukkan 13:52 og var hún farin í loftið tuttugu mínútum síðar.

Hvers vegna verndar íslenska ríkið ekki borgara sína?

Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði ræðir um flókinn málarekstur Jóns Ólafssonar í Bretlandi, en Hannes segist hafa verið eitt fórnarlambið í því máli. Tilefni skrifanna er úttekt Sunday Times í morgun sem birtir fréttaskýringu um málið. Hannes rekur málið sem snýst í grunninn um ummæli Hannesar í garð Jóns. Hann spyr síðan að lokum hversvegna kostnaður við meiðyrðarmál í Bretlandi sé óbærilegur fyrir aðra en auðmenn og hversvegna íslenska ríkið verndi ekki borgara sína gegn því einkennilega réttarfari sem ríki í landinu.

Búast má við jarðskjálftahrinu áfram í dag

Jarðfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að búast megi við að jarðskjálftahrinan sem gekk yfir vestur af Reykjanesi í nótt haldi áfram í dag. Ekki er þó neinn gosóróa að sjá á jarðskjálftamælum.

Rúv brást ekki í umfjöllun um viðskiptalífið

Páll Magnússon segist hafa litlar áhyggjur af þeim röddum sem nú heyrast að Ríkisútvarpið sé að draga taum ríkisstjórnarinnar. Hann segir að eitt sinn hafi hann verið sagður framlenging hinnar svokölluð bláu handar. Nú eigi hann að vera málpípa vinstri manna, þetta fari bara eftir því hvernig vindar blása.

Segir Egil Helgason hafa lagt son sinn í einelti

Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður segir að Egill Helgason þáttastjórnandi á Rúv hafi eftir hrunið lagt son sinn og einn af seðlabankastjórunum í einelti. Þessi orð lét Jón falla í umræðuþættinum Á Sprengisandi á Bylgjunni fyrir stundu.

Snarpir skjálftar á Reykjanesi í nótt

Mikil jarðskjálftahrina gekk yfir vestur af Reykjanesi í nótt. Flestir jarðskjálftanna urðu við Geirfugladrang og Eldeyjarboða vestur af Reykjanesi. Stærstu skjálftarnir voru um 4 stig á Richter.

Passið ykkur á hálkunni

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að á Suður- og Vesturlandi sé víða hálka eða hálkublettir, vegir í öðrum landshlutum séu víðast auðir en þó megi búast við hálku eða hálkublettum á heiðum. Það er því betra að hafa varann á þegar maður fer af stað í morgunsárið. Einn ökumaður í Reykjanesbæ fór heldur ógætilega og hafnaði á ljósastaur í morgun.

Minna atvinnuleysi hjá rafiðnaðarmönnum

Atvinnuleysi meðal rafiðnaðarmanna er töluvert minna en almennt gerist á vinnumarkaðnum eða 4,3 prósent samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Rafiðnaðarsambandið í september. En almennt atvinnuleysi í landinu er hins vegar um 9 prósent.

Strokupiltur fannst á Akureyri

Lögreglan lýsti í gær eftir tveimur piltum sem struku af meðferðarheimilinu Árborg rétt fyrir utan Húsavík í fyrrakvöld. Annar pilturinn fannst á Akureyri í gærkvöldi og er hann nú á lögreglustöðinni þar í bæ.

Lögreglumaður fékk glas í höfuðið

Lögreglumaður sem var við störf fyrir utan 800 Bar á Selfossi fékk glas í höfuðið um klukkan þrjú í nótt. Að sögn lögreglu var árásin með öllu tilefnislaus en það var stúlka sem henti glasinu í lögreglumanninn. Hlaut hann kúlu á höfði og mar en stúlkan sefur nú úr sér í fangageymslum. Þá var einn ökumaður tekinn grunaður um ölvunarakstur og ein bílvelta varð í bænum.

Sjá næstu 50 fréttir