Fleiri fréttir

Einkaspítalinn vonandi ekki reistur á loftköstulum

„Ég hef ekki aldrei verið hugfanginn að markaðsvæðingu á heilbrigðisþjónustu en ég hef í sjálfu sér ekkert við einkaspítala að athuga fyrr en farið er að gera út á skattgreiðendur,“ segir Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, aðspurður um fyrirhugaðan einkaspítala og heilsuhótel.

Slökkvilið kallað út vegna reyks

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins barst á ellefta tímanum í kvöld tilkynning um mikinn reyk sem barst út um glugga á 7. hæð. Suðurlandsbraut 12. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var sent á staðinn en við nánari skoðun kom í ljós að reykurinn kom frá pizzaofni, en veitastaðurinn Eldsmiðjan er með rekstur á fyrstu hæð hússins. Enginn eldur reyndist vera laus í húsinu.

Áframhaldandi gæsluvarðhalds krafist vegna morðsins í Dalshrauni

Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn segir að gerð verði krafa á morgun um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Bjarka Frey Sigurgeirssyni, en hann hefur játað að hafa orðið Braga Friðjónssyni að bana í húsnæði Dalshrauni í Hafnarfirði mánudagskvöldið 17. ágúst.

Nokkrir yfirheyrðir vegna skemmdarverka á eignum auðmanna

Nokkrir menn hafa verið yfirheyrðir vegna skemmdarverka sem framin hafa verið á bílum og húsnæði auðmanna og fólks sem tengist tengdust íslensku útrásinni eða hruninu. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Heilsuspítali mun skila milljörðum í gjaldeyristekjur

Stefnt er að því að hefja byggingu á einkaspítala og heilsuhóteli á næsta ári. Forsvarsmenn spítalans telja að starfsemin muni geta skilað allt að 10 þúsund ferðamönnum til landsins og rúmlega 10 milljörðum í gjaldeyristekjur. Fyrirhugaður spítali verði byggður upp á grænum gildum, að sögn framkvæmdastjóra Primacare sem stendur á bak við verkefnið.

Ekki móðurfélagsábyrgð og því ekki hægt að ganga að Magma ef illa fer

„Þá er það mikið áhyggjuefni að móðurfélagsábyrgð Magma er ekki á skuldabréfinu heldur einungis veð í bréfum í HS orku,“ segir í bókun Sigrúnar Elsu Smáradóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar og fulltrúa flokksins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, vegna sölu á hlut fyrirtækisins í HS orku til kanadíska félagsins Magma Energy.

Læknarnir komast ekki af vaktinni í vetur

Vegarklúðrið á Melrakkasléttu veldur því að heilsugæslulæknarnir á Kópaskeri og Þórshöfn sjá ekki fram á að komast neitt frá vinnu í vetur. Læknirinn á Þórshöfn vill að menn taki slaginn og fari með ýturnar á síðasta spottann sem á vantar.

Vill hefja olíuleitina strax næsta sumar

Norska olíufélagið Sagex Petrolium vonast til að geta hafið olíuleitina á Drekasvæðinu þegar á næsta ári með nákvæmum hljóðbylgjurannsóknum. Borpallur kemur hins vegar ekki á svæðið nema fleiri olíufélög fáist í verkefnið.

Telur að Ólafur verði við áskoruninni

Undirskriftarlisti með nöfnum tíu þúsund einstaklinga var afhentur Forseta íslands í dag en þar skorað á forsetann að staðfesta ekki lög um Icesave samkomulagið. Talsmaður kjósa.is segist trú því að forsetinn verði við þessari áskorun.

Málstaður Íslendinga styrkist í Bretlandi og Hollandi

Málstaður Íslendinga vegna Icesave málsins virðist vera að styrkjast í Bretlandi og Hollandi. Stjórnmálamenn eru sagðir mildari í afstöðu sinni og háskólaprófessorar halda íslenskum sjónarmiðum á lofti.

Stjórnarformaður Orkuveitunnar: Ekki verið að einkavæða HS orku

„Með þessum samningum er ekki verið að einkavæða HS Orku,“ segir Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Stjórn fyrirtækisins samþykkti á fundi sínum í dag kaupsamning við Magma Energy um 16,58% hlut OR og tæplega 15% hlut Hafnarfjarðarbæjar í HS Orku. Jafnframt samþykkti stjórnin samkomulag við Hafnarfjarðarbæ um uppgjör milli aðila vegna viðskipta þeirra með hluti í Hitaveitu Suðurnesja.

Stefnt að HS orka verði í meirihlutaeigu opinberra aðila

Viðræðuhópur verður skipaður á næstu dögum sem muna kanna forsendur þess að ganga til samninga við Geysir Green um meirihluta félagsins í HS Orku þannig að félagið verði í meirihlutaeigu opinberra aðila. Miðað er við að niðurstaða viðræðna um möguleg kaup liggi fyrir á næstu vikum.

Salan til Magma samþykkt í stjórn OR

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti í dag að selja hlut sinn í HS Orku til kanadíska félagsins Magma Energy. Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki borgarráðs og borgarstjórnar Reykjavíkur. Fulltrúar minnihlutans í stjórninni greiddu atkvæði gegn samningnum og gagnrýna þeir þann skamma tíma sem stjórnarmönnum gafst á að kynna sér efni samningsins.

Nálgunarbann staðfest í Hæstarétti

Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Suðurlands þess efnis að manni skuli gert að sæta nálgunarbanni í þrjá mánuði. Manninum er meinað að koma nálægt heimili konu sinnar og þriggja barna þeirra. Jafnframt er honum bannað að veita konunni og börnunum eftirför, ónáða þau á almannafæri eða setja sig með öðru móti í samband við þau.

Hús Lárusar Welding atað málningu í miðjum gleðskap

Blárri blöðru með rauðri málningu var hent á heimili Lárusar Welding, fyrrum bankastjóra Glitnis, í Blönduhlíð á föstudagskvöldið svo húsið varð útatað. Tilkynning um atvikið barst lögreglu klukkan 23:37.

Vill lagabreytingar til að takast á við Vítisengla

Stýrihópur ríkislögreglustjóra kom saman til fundar í dag, og var þar farið yfir fyrirliggjandi upplýsingar um umsvif Hells Angels hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra.

Hvattur til þess að synja ríkisábyrgð á Icesave

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, veitti undirskriftalista Kjósa.is viðtökur klukkan þrjú í dag á Bessastöðum. Þetta var í fyrsta skiptið sem forsetinn tekur við slíkri áskorun í eigin persónu.

Ellefu teknir fyrir vímuakstur um helgina

Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu. Einn var stöðvaður á laugardag og fimm á sunnudag. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 19-44 ára og tvær konur, 18 og 40 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.

35 prósent launþega hafa lent í skerðingu

Ríflega þriðjungur eða 35% þeirra sem eru í launaðri vinnu hafa lent í því að laun eða starfshlutfall hefur verið skert frá hruni bankanna í október. Frá þessu er greint á heimasíðu ASÍ en Capacent Gallup gerði könnun á þessu fyrir sambandið í júní. Þar kemur í ljós að flestir, eða rúmlega 18 prósent hafa lent í launalækkun, hjá 9 prósentum hefur vinnutími verið styttur og 8 prósent hafa orðið fyrir annarskonar skerðingu. Í samskonar könnun sem gerð var í desember 2008 var hlutfallið mun lægra en þá höfðu 21 prósent launafólks orðið fyrir slíkri skerðingu.

Fimmtán þúsund manns gæddu sér á túnfiskís og bjórís

Talið er að tæplega fimmtán þúsund gestir hafi sótt Ísdaginn mikla í Hveragerði á laugardaginn. Aðstandendur telja að íslandsmet hafi verið sett í íssmökkun og segja svo virðast sem ókeypis fjölskylduskemmtanir séu í sókn.

Þrjú og hálft ár í fangelsi fyrir Hummer-ákeyrslu og íkveikju

Jón Kristinn Ásgeirsson var í morgun dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa ekið Hummer-bifreið á 26 ára gamlan mann í janúar síðastliðnum og fyrir að eiga aðild að því að bera eld að húsi á Kleppsvegi í júní. Frá dómnum dregst 85 daga gæsluvarðhald sem Jón Kristinn hefur sætt. Hann er einnig dæmdur til þess að borga fórnarlambinu frá því í janúar tvær milljónir króna í miskabætur auk þess sem hann þarf að standa skil á málskosntaði.

Beygjuljós á mótum Kringlumýrarbrautar og Borgartúns

Beygjuljósum verður komið fyrir á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Borgartúns, akreinum fjölgað og sérstök vinstribeygjuakrein verður fyrir strætó af Kringlumýrarbraut inn í Borgartún. Þá verður bætt við hægribeygjuakrein frá Kringlumýrarbraut inn á Sæbraut og verður hún með umferðarljósum.

Barðastrandarræningi meinaði sjö ára börnum för

Einn af Barðastrandaræningjunum var handtekinn á laugardagskvöldið eftir að hafa gengið í skrokk á sautján ára pilti upp í Breiðholti. Atvikið átti sér stað um kvöldið en pilturinn hafði farið að vitja systkina sinna. Í ljós kom að Barðastrandaræninginn, auk félaga sem var með honum, höfðu meinað börnunum, sem eru um sjö ára aldur, að komast heim til sín.

Handtekinn fyrir sprengjugabb við 10-11

Piltur sem tilkynnti um sprengju í tösku fyrir utan 10-11 verslun við Laugarima í Grafarvogi á ellefta tímanum í gærkvöldi var handtekinn í gærkvöldi.

Steingrímur fór fram á lengri frest en fékk ekki

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra óskaði eftir lengri fresti til þess að móta hugmyndir um aðkomu lífeyrissjóðanna og sveitarfélaga að kaupum á hlut Orkuveitunnar í HS Orku. Guðlaugur Sverrisson stjórnarformaður OR segir ekki hægt að verða við beiðninni. Tilboð Magma Energy í hlutinn rennur út klukkan fimm í dag.

Ólafur F.: Með jafnhreinan skjöld nú sem fyrr

„Árið 2008 var ekki unað við það af okkar hálfu að flokkur úti í bæ sem var ekkert að vinna með okkur ætlaði að fá aftur þetta fé annað árið í röð til þess eins í besta falli að klekkja á okkur, en ekki til að láta fjármuni renna til framboðsins," segir Ólafur F. Magnússon, óháður borgarfulltrúi.

Hafnar ásökunum um sögufölsun

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Tryggvi Þór Herbertsson, skrifar á bloggið sitt að Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, sé beinlínis að reyna að falsa söguna. Ástæða þessarar harkalegu ummæla Tryggva Þórs er viðtal við þingmennina tvo sem var tekið í Íslandi í Bítið í morgun. Þar sátu þeir og skeggræddu meðal annars Icesave frumvarpið. Þar sagði Magnús Orri að það hefði alltaf staðið til innan Samfylkingarinnar að setja fyrirvara á Icesave-samninginn.

Brotist inn en engu stolið

Brotist var inn í tvö húsnæði á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Annarsvegar var brotist inn á heimili á Langholtsvegi en þjófurinn tók ekkert. Samkvæmt lögreglu á höfuðborgarsvæðinu er allavega ekki ljóst hvort eitthvað hafi verið tekið af heimilinu.

Háskaakstur við vegaframkvæmdir

Umferðarstofa biður ökumenn að fara varlega vegna framkvæmda á gatnamótum Kringlumýrabrautar, Suðurlandsbrautar og Laugavegar.

Íhuga að kæra Ólaf F. fyrir fjárdrátt

„Málið er að þegar hann var borgarstjóri lét hann færa þetta fé á eigin reikning án samráðs við okkur," segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins.

Arður HS orku verði eftir í landinu

Hugmyndir eru uppi um að lífeyrissjóðir, ríkissjóður sveitarfélög og jafnvel bankar eignist meirihluta í HS Orku þannig að arður af fyrirtækinu verði að sem mestu eftir í landinu.

Ferðamenn á vanbúnum bílum

Lögreglan á Hvolsvelli hefur að undanförnu þurft að aðstoða ferðamenn, sem lent hafa í vandræðum á bílaleigubílum vegna þess hversu vanbúnir bílarnir eru.

Hestur sparkaði í barn

Hestur sparkaði í kvið tveggja ára barns í Tjarnarbyggð sunnan við Selfoss í gær og eftir læknisskoðun var ákveðið að flytja það með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans í Reykjavík.

Íslendingar eru ekki aflögufærir

Íslendingar eru „lens í fjárframlögum" til verkefna Vestnorræna ráðsins, segir Atli Gíslason þingmaður, en hann sat ársfund Vestnorræna ráðsins, sem lauk í Færeyjum á föstudag.

Iðnaðarmenn að verki

Iðnaðarmenn sem töldu sig eiga óuppgerð vinnulaun frá fyrri eiganda sumarbústaðar í Grímsnesi tóku glugga og hurðir upp í skuld. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá lögreglunni.

Heimspressan hefur sýnt hvalveiðunum lítinn áhuga

Áhyggjur stjórnvalda og hagsmunaaðila í útflutningi og ferðaþjónustu af áhrifum stórtækra hvalveiða hér við land í sumar virðast hafa verið óþarfar. Ráðuneytum hafa borist sárafá erindi og fjölmiðlar sýna hvalveiðum lítinn áhuga.

Önnur sprengjuhótun í Grafarvogi

Starfsfólk 10-11 verslunar við Langarima í Grafarvogi fékk símtal rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld með sprengjuhótun. Þegar lögreglumenn komu á vettvang sáu þeir að poki var fyrir utan verslunina og hann merktur sprengja.

Fylgjast með íslensku Vítisenglunum

Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa ásamt lögreglunni fylgst með starfsemi Fáfnismanna, eða Hells Angels Prospects, eins og þeir heita nú, eftir að klúbburinn fluttist í Hafnarfjörð í vor.

Velti bíl á Þykkvabæjarvegi

Bílvelta varð á Þykkvabæjarvegi í gærkvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli var ökumaður einn á ferð og valt bíllinn eina og hálfa veltu og stöðvaðist á hvolfi ofan í skurði. Ökumaður var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur en meiðsli hans voru talin minniháttar. Lögregla segir að maðurinn megi teljast heppinn þar sem bíllinn sé mjög mikið skemmdur.

Sjá næstu 50 fréttir