Heimspressan hefur sýnt hvalveiðunum lítinn áhuga 31. ágúst 2009 03:15 Alls hafa 93 langreyðar verið unnar í Hvalfirði á vertíðinni. 71 hrefna er komin á land. fréttablaðið/vilhelm
Áhyggjur stjórnvalda og hagsmunaaðila í útflutningi og ferðaþjónustu af áhrifum stórtækra hvalveiða hér við land í sumar virðast hafa verið óþarfar. Ráðuneytum hafa borist sárafá erindi og fjölmiðlar sýna hvalveiðum lítinn áhuga. Sigurgeir Þorgeirsson, ráðuneytisstjóri sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, segir að í vor og vetur hafi hagsmunaaðilar komið á framfæri mótmælum við ráðuneytið. „Ég kannast hins vegar ekki við að neinar sérstakar kvartanir eða ábendingar hafi borist eftir að veiðarnar hófust. Það væri líka miklar ýkjur að segja að heimspressan hafi sýnt þessu áhuga. Við höfum ekki orðið varir við neinn slíkan hávaða." Sigurgeir segir að á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í vor hafi hvalveiðar Íslendinga aldrei borist í tal. „Á þetta var hvorki minnst formlega né í ræðustól, né var rætt um þetta við okkar fulltrúa þar. Íslensku hvalveiðarnar voru þar einfaldlega ekki á dagsskrá." Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vinnur nú að athugun á efnahagslegum áhrifum hvalveiðanna. Hluti af þeirri vinnu er að hafa samband við hagsmunaaðila og fá skýra mynd af kostum og göllum við veiðarnar. Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, telur að hvalveiðarnar veki litla athygli erlendra fjölmiðla vegna þess að málefni efnahagshrunsins einoki umræðuna. „En við höfum sagt að við eigum ekki að rugga bátnum með þessum veiðum, það sé ekki þess virði." Í áliti samtakanna til sjávarútvegsráðuneytisins í vetur segir að ef Íslendingar hefja stórfelldar veiðar á langreyði mun heimspressan mæta hingað og gera íslenskri ferðaþjónustu og útflutningi erfitt fyrir. Benedikt Sveinsson, framkvæmdastjóri Iceland Seafood International, segir að óþægindin, sem almennt voru talin fyrirsjáanleg, hafi orðið lítil sem engin. „Þetta hefur ekkert truflað okkur." svavar@frettabladid.is
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Fleiri fréttir Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Sjá meira