Innlent

Hestur sparkaði í barn

Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Hestur sparkaði í kvið tveggja ára barns í Tjarnarbyggð sunnan við Selfoss í gær og eftir læknisskoðun var ákveðið að flytja það með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans í Reykjavík. Samkvæmt fyrstu skoðun reyndist barnið ekki alvarlega slasað, en það hentist að minnstakosti einn metra við höggið, að sögn sjónarvotts. Nánari atvik málsins liggja ekki fyrir.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×