Fleiri fréttir

Geta ekki valið sér eignir upp í Icesave

Hollendingar og Bretar geta ekki valið að hvaða eigum þeir ganga standi íslenska ríkið ekki við skuldbindingar sínar segir sérfræðingur í þjóðarétti. Þá eru ákveðnar eigur sem útlendingar og erlend ríki mega ekki eiga samkvæmt reglum um eignarrétt útlendinga.

Engin skelfing á elliheimilinu

Aðalheiður Guðmundsdóttir, íbúi á elliheimili í Grindavík, sagðist hafa fundið greinilega fyrir jarðskjálftanum sem reið yfir á Suðurnesjum fyrir tæpri klukkustund síðan.

Kvennadeginum víða fagnað

Það var bleikt þema á kvennadeginum í ár. Deginum var víða fagnað í dag, en þann 19. júní árið 1915 fengu konur kosningarétt og kjörgengi til Alþingis.

Hyggjast stoppa í 20 milljarða fjárlagagat á árinu

Um níu þúsund opinberir starfsmenn mega búast við lækkun heildarlauna, sælgæti og gos hækkar og margvíslegur niðurskurður verður í starfsemi ríkisins. Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins furðar sig á að ekki skuli farið út í að innheimta skatt af lífeyristekjum, sem gæfi nánast sama pening í ríkissjóð og allar skattahækkanir og aðhald á þessu ári.

Öflugur jarðskjálfti á Reykjanesi

Öflugur jarðskjálfti reið yfir klukkan 18:13. Upptök skjálftans voru við Kleifarvatn um tvo kílómetra vest-suðvestur af Krýsuvík. Jarðskjálftinn var 4,2 á Richter. Samkvæmt heimildum fréttastofu fannst greinilega fyrir skjálftanum í Hafnarfirði og víðar.

Viðbúnaðarsamningur upp á 300 milljónir dala

Landsvirkjun og íslenska ríkið hafa nú gert með sér viðbúnaðarsamning sem tekur til aðstæðna sem kunna að skapast ef Landsvirkjun hefur ekki nægjanlegt fjármagn til að mæta vaxtagreiðslum eða afborgunum erlendra lána.

Kirkjuráð harmar sársauka og vonbrigði Sigrúnar Pálínu

Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem sakaði séra Ólaf Skúlason um kynferðislega áreitni á sínum tíma, kom á fund Kirkjuráðs í dag. Sigrún mætti á fund Kirkjuráðsins til þess að segja frá reynslu sinni af samskiptum hennar og Ólafs.

Innkalla grísagúllas

Ferskar kjötvörur ehf. hafa í varúðarskyni innkallað grísagúllas sem framleitt var af fyrirtækinu þann 5. júní 2009. Ástæða innköllunarinnar er að í sýnum sem tekin voru af vörunni greindist salmonella. Varan er ekki lengur á markaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar.

256 óku of hratt í Hvalfjarðargöngum

Brot 256 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum vikuna 11. - 18. júní. Vöktuð voru 14.485 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða tæplega 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Steingrímur hrósaði þingmanni Sjálfstæðisflokksins

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hrósaði Unni Brá Konráðsdóttur, þingmannni Sjálfstæðisflokksins, í umræðum um ráðstafanir í ríkisfjármálum á Alþingi í dag. Ráðherrann sagði ferskan tón vera í málflutningi hennar.

Sigurður og félagar í gæsluvarðuhaldi til 1. júlí

Þrír karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 1. júlí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir sem um ræðir heita Sigurður Ólason, Ársæll Snorrason og Gunnar Viðar Árnason.

Dæmdur fyrir árás í Fjölbrautaskóla Suðurlands

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag 17 ára karlmann í eins mánaðar fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Árásin átti sér stað miðvikudaginn 18. febrúar á þessu ári í Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Barnaheill hleypa nýju átaki af stokkunum

Fulltrúar Barnaheilla á öllum aldri hleyptu af stokkunum nýju söfnunarátaki á Lækjartorgi í dag og ræddu við áhugasama vegfarendur um alþjóðlegt menntaverkefni Barnaheilla, Save the Children, eða Bætum framtíð barna.

Sálrænn stuðningur við fólk sem kemur að slysum og áföllum

Fólk sem kemur að slysum og öðrum alvarlegum atburðum sem vitni, tilkynnendur og þátttakendur í skyndihjálp, björgun og sálrænum stuðningi fær nú tilboð um sálrænan stuðning til að vinna úr reynslu sinni. Þetta er gert í samvinnu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Rauða kross Íslands fyrir hönd Hjálparsíma Rauða krossins, 1717. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og formaður stjórnar SHS, og Anna Stefánsdóttir, formaður Rauða krossins, undirrituðu samkomulag um verkefnið í gær.

Grænfriðungar fordæma hvalveiðar Íslendinga

Grænfriðungar hafa fordæmt hvalveiðar Íslendinga. Í yfirlýsingu umhverfisverndarsamtakanna frá í morgun segir að ríkisstjórn Íslands hafi brugðist í málinu en andstaða einstaka ráðherra við hvalveiðar hafi ekki dugað til að koma í veg fyrir þær.

Býður Birni að vinna upp í 10 milljóna skuld

„Ef hann vill friða samviskuna þá er honum velkomið að koma hingað norður og vinna upp í þessar tíu milljónir," segir Viðar Guðmundsson, bóndi að Miðhúsum í Kollafirði.

Þrír saksóknarar verði skipaðir við hlið sérstaks saksóknara

Lagt er til að þrír sjálfstæðir saksóknarar verði skipaðir við hlið sérstaks saksóknara í nýju frumvarpi dómsmálaráðherra sem lagt verður fyrir stjórnarflokkana í dag. Þá er lagt til að skipaður verði sérstakur ríkissaksóknir til að fara með eftirlitshlutverk í málaflokknum.

Björn Mikkaelsson: Neyddist til að svíkja fólkið

„Það er rétt hjá þeim,“ segir Björn Mikkaelsson um sögu hjónanna frá Miðhúsum í Kollafirði sem fjallað var um á Vísi fyrr í dag. Í samtali við fréttastofu sagði Viðar Guðmundsson frá því að hann og kona hans borguðu Birni tæpar tíu milljónir upp í Finnskt einingahús sem þau fengu aldrei. Annars vegar 2,7 milljónir í staðfestingargjald og síðar 7,2 milljónir.

Helmingur opinberra starfsmanna getur búist við launalækkun

Helmingur opinberra starfsmanna má búast við endurskoðun heildarlauna. Hægt verður á vegaframkvæmdum eða þeim frestað, nefndakostnaður skorinn niður um helming, aðkeypt sérfræðiþjónusta snarminnkuð og setja á meiri hörku í að draga úr skattsvikum. Þetta er meðal þess sem stjórnvöld ætla að gera til að skera niður til að draga úr fjárlagahallanum.

Stjórnin undrast harkalegar aðgerðir FME og fjármálaeftirlitsins

Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar lýsir furðu sinni á hörðum aðgerðum Fjármálaeftirlitsins og fjármálaráðuneytisins, sem skipað hafa umsjónarmann með sjóðnum, þrátt fyrir að stjórn hans og framkvæmdastjóri hafi ítrekað og að eigin frumkvæði upplýst fulltrúa Fjármálaeftirlitsins um fjárfestingar hans.

Steingrímur mælti fyrir frumvarpi um niðurskurð

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Í frumvarpinu er leitað leiða til þess að bæta stöðu ríkissjóðs eftir bankahrunið með ýmsum aðgerðum og sagði ráðherrann að minnka eigi bilið á milli tekna og útgjalda. Steingrímur sagði að í frumvarpinu væri mennta- og félagsmálum hlíft eftir megni.

Niðurrifsmaður á Álftanesi hafði milljónir af fimm manna fjölskyldu

„Hann er ekki hetja í mínum augum,“ segir Barbara Ósk Guðbjartsdóttir. Hún og maður hennar Viðar Guðmundsson segja farir sínar ekki sléttar af viðskiptum sínum við Björn Braga Mikkaelsson sem þann 17. júní reif niður einbýlishús á Álftanesi. Húsið hafði hann misst í hendur Frjálsa Fjárfestingabankans. Þau Viðar og Barbara greiddu Birni tæpar tíu milljónir króna fyrir finnskt einingahús sem þau fengu aldrei í hendurnar.

Samkomulagið um Icesave átti að opinbera fyrr

Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir að heppilegra væri ef að gögn um Icesave samkomulagið hefðu komið fram fyrr. Pétur Blöndal, þingþingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega vinnubrögð þingflokka stjórnarflokkanna í málinu.

Línuraketta skall á húsi í Sandgerði

Íbúum við Vallargötu í Sandgerði brá í brún í gærkvöldi þegar hár dynkur rauf næturkyrrðina. Íbúarnir grennsluðust fyrir um málið úti í garði og þar kom í ljós eins konar raketta sem lína var áföst við.

Brotist inn í Höfðahverfi

Eitt innbrot var framið á höfuðborgarsvæðinu í nótt þegar brotist var inn í fyrirtæki í Höfðahverfi. Þjófarnir höfðu meðal annars á brott með sér flatskjá. Þá var gerð tilraun til innbrots í fyrirtæki í Hafnarfirði en ekki er talið að neinu hafi verið stolið þar.

Fyrstu langreyðarnar veiddar í gær

Hvalur 9 veiddi síðdegis í gær tvær fyrstu langreyðarnar sem veiða á í ár og var komið með dýrin að landi í nótt í Hvalfirði þar sem þau voru skorin að því er Skessuhorn greinir frá.

Niðurskurðarhnífurinn hátt á loft

Frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjámálum var lagt fram á Alþingi í gærkvöldi. Í frumvarpinu er leitað leiða til þess að bæta stöðu ríkissjóðs eftir bankahrunið og með ýmsum aðgerðum er stefnt að því að ríkið fái 13 milljarða króna í auknar tekjur á þessu ári.

Öllum verður tryggð skólavist

„Allir sem eru undir átján ára aldri eiga rétt á skólavist og þeim mun verða tryggð slík vist. Það verður bara að gera það,“ segir Sigurbjörg Jóhannesdóttir, sérfræðingur í menntamálaráðuneytinu, sem þessa dagana fer yfir umsóknir í framhaldsskóla landsins. Samtals bárust 4.437 umsóknir frá nemendum úr 10. bekk, sem eru um 96 prósent þeirra sem luku grunnskólanámi í ár.

Býr hjá vinum eftir að hafa rifið húsið

„Ég er ekki að hvetja fólk til þess að gera þetta en ég sé alls ekki eftir þessu,“ segir Björn Mikkaelsson. Á þjóð­hátíðardaginn reif hann húsið sem hann bjó í á Álftanesi en hann hefði þurft að afsala sér því í hendur sýslumanns í dag.

Harðar deilur um Icesave-samninginn

Skrifi Alþingi undir Icesave-samninginn verða það afdrifaríkustu mistök í sögu þjóðarinnar. Þetta fullyrða fulltrúar Indefence-hópsins svokallaða, og vísa í þrjú lögfræðiálit sér til stuðnings, sem þeir segjast hafa látið vinna fyrir sig. Sérfræðingur um milliríkjasamninga segir hins vegar ekkert í samningnum koma á óvart.

Segir Evu umdeilda en óháða

„Eva Joly hefur orð á sér fyrir að vera afar sjálfstæð og slíku fylgir jafnan það gjald að vera umdeildur í leiðinni,“ segir Mads Andenæs, prófessor við lagadeild Háskólans í Ósló. Hann segir að oft hafi staðið styr um störf hennar í Noregi, þar sem hún hafi viðhaft harðar kröfur.

Kærunefnd stöðvar Vodafone-samning

„Það er ánægjulegt að kærunefndin skuli hafa stöðvað þetta ferli því það var klúður í uppsiglingu," segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, um þá ákvörðun kærunefndar útboðsmála að stöðva gerð samninga við Vodafone um símaþjónustu fyrir Landspítalann.

Þökur aftur á Ráðhústorgið

Bæjarráð Akureyrar hefur tekið vel í erindi Sigurðar Guðmundssonar verslunarmanns og annars áhugafólks um eflingu miðbæjarins á Akureyri um að Ráðhústorgið verði lagt með túnþökum í sumar.

Munum fyrir milljónir stolið

Miklum verðmætum var stolið úr vörubifreið Línuborunar ehf., þar sem hún var á vinnusvæði við Nesjavallaveg ofan við Nesjavallavirkjun fyrir nokkrum dögum.

Eitraður kræklingur í Eyjafirði

Lömunareitrið PSP hefur greinst í kræklingi úr Eyjafirði, að því er fram kemur á heimasíðu Matvælastofnunar. Stofnunin varar sterklega við neyslu og tínslu á kræklingi og öðrum skelfiski úr Eyjafirði. Í sýnum sem nýlega voru tekin til þörungaeitursgreiningar reyndist magn PSP vera rétt undir viðmiðunarmörkum en magn Alexandrium-þörunga sem valda eitrun yfir hættumörkum.

Mælti fyrir frumvarpi um launabreytingar

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi um kjararáð á Alþingi nú undir kvöld. Samkvæmt frumvarpinu skal kjararáð gæta þess að föst laun ríkisstarfsmanna fyrir dagvinnu, annarra en forseta Íslands, verði ekki hærri en föst laun forsætisráðherra.

Ísbirni stolið af hrekkjalómi

„Ég er með tvo ísbirni þarna fyrir utan og nú er annað kvikindið horfið,“ segir Sigurður Guðmundsson, verslunarmaður á Akureyri. Sigurður vann sér það til frægðar í síðasta mánuði að narra bæði Morgunblaðið og lögregluna með ísbjarnagabbi. Sigurður varð fyrir því óláni í dag að samskonar ísbjarnarlíki og Sigurður notaði við gabbið var stolið fyrir utan verslun hans The Viking á Laugarvegi 1 í Reykjavík.

Landsvirkjun lögð að veði með Icesave

Allar eigur íslenska ríkisins eru lagðar að veði með Icesavesamkomulaginu, þar á meðal Landsvirkjun. Þetta er mat Eiríks Svavarssonar, lögmanns, sem hefur síðustu daga legið yfir samningnum sem gerður var við Hollendinga. Eiríkur Svavarssonar er í InDefence hópnum og hefur víðtæka reynslu af alþjóðasamningum. Hann segir sextándu grein laganna kveða á um þetta.

Ómerktur lögreglubíll myndaði tugi hraðabrota

Ómerktur lögreglubíll útbúinn hraðamyndavél fylgdist með aksturslagi ökumanna á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn föstudag og þriðjudag að því er fram kemur á vef lögreglunnar.

Sjá næstu 50 fréttir