Fleiri fréttir

Býður upp á hátíðarmatseðil Jóhönnu og Steingríms

„Þetta er það sem að maður hefur um að velja þegar við erum búin að borga Icesave,“ segir kvikmyndagerðamaðurinn Magnús Magnússon sem ákvað að bjóða upp á hátíðarmatseðil fyrir utan Alþingishúsið í dag. Matseðillinn bar yfirskriftina: „Hátíðarmatseðill í boði Jóhönnu og Steingríms“.

Afburðanemendur við Háskóla Íslands hljóta styrki

Þann 16 júní voru veittir ellefu styrkir til afburðanemenda sem hefja nám í Háskóla Íslands næsta haust. Um er að ræða styrki til nemenda sem náð hafa framúrskarandi árangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands.

Svandís með stóra kúlu: Þarf að fá mér hjálm

„Ég er bara með stóra kúlu á höfðinu," segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra en hún varð fyrir því óláni í morgun að detta af hjólinu sínu þar sem hún var á leið í Umhverfisráðuneytið. Svandís var flutt með sjúkrabíl á Landspítalann til aðhlynningar. Hún reyndist ekki hafa fengið heilahristing.

Lögreglan lýsir eftir Söru Dögg Helenardóttur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Söru Dögg Helenardóttur, 16 ára, sem er ljóshærð með sítt hár, um 152 cm. á hæð. Þegar hún fór að heiman var hún klædd í ljósbláar íþróttabuxur, hvíta skó og hvíta peysu. Ekki vitað hvernig hún er klædd núna.

Átak í atvinnumálum hefur skilað yfir 2200 störfum

Iðnaðarráðuneytið hefur lokið fyrstu samantekt á árangri sérstaks átaks ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum sem miðað að því að draga úr atvinnuleysi með sköpun allt að 6000 ársverka á næstu misserum. Þótt ekki séu komnar tæmandi upplýsingar um alla þætti aðgerðanna er niðurstaðan samt sem áður sú að nú þegar má rekja um 2200 til 2500 störf til átaksins, að fram kemur í tilkynningu.

Húsinu á Álftanesi mokað í burtu - myndband

Grafa mætti í gær út á Álftaness til að moka í burtu rústum húss sem fyrrum eigandi þess gjöreyðilagði í gærdag. Maðurinn hafði nýverið misst húsið í hendur Frjálsa Fjárfestingabankans. Einnig gróf maðurinn bíl sem stóð á lóðinni ofan í holu og mokaði yfir hann.

Höskuldur gagnrýndi fundarstjórn Ástu Ragnheiðar

Enn á ný var tekist á um fundarstjórn Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, á þingfundi í dag þegar Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi Ástu. Hann sagði hana hafa truflað Birgittu Jónsdóttur, þingmanns Borgarahreyfingarinnar, þegar hún beindi fyrirspurn sinni til forsætisráðherra.

Þurfti að fórna golfhring fyrir umræður um Icesave

Golfurum brá brún þegar þeir bókuðu sér rástíma í Grafarholti í dag. Þar gaf að líta nafn Sigmundar Ernis Rúnarssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, sem átti skráðan rástíma klukkan 13:50 í dag en umræða um Icesave hefst klukkan þrjú.

Jóhanna: Ekki hætta á þjóðargjaldþroti

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir engar líkur vera á þjóðargjaldþroti með Icesave-samningunum. Hún sagði mjög sérkennilegt að halda öðru fram. Verið sé að hræða þjóðina. Þetta kom fram í máli Jóhönnu á Alþingi við fyrirspurn Péturs Blöndal, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.

Bjarni: Þjóðin mun ekki eiga síðasta orðið um ESB

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ljóst að þjóðin muni ekki fá að eiga síðasta orðið um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta kom fram í máli formannsins í umræðum á Alþingi í dag. Þar beindi hann fyrirspurn sinni til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, en hann vildi vita hvaða þýðingu möguleg aðildarumsókn hafi í ljósi þess að lagt verði fram á næstu dögum frumvarp um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslur. Bjarni spurði auk þess hvort kæmi til álita að fram fari tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla.

Ráðherra datt af reiðhjóli - flutt á spítala

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra féll af reiðhjóli sínu fyrir framan umhverfisráðuneytið um klukkan hálfeitt í dag. Í umhverfisráðuneytinu fengust þær upplýsingar að Svandís hafi ekki misst meðvitund en engu að síður hafi verið talið öruggast að kalla á sjúkrabíl og flytja hana á slysadeild til nánari skoðunar. Svandís var í Alþingishúsinu í morgun og þaðan var hún að koma þegar óhappið varð.

Óljóst hvort að Icesave verði rætt á þingi

Icesave samningarnir verða kynntir fyrir alþingismönnum í dag og í kjölfarið verða þeir gerðir almenningi opinberir. Samningsaðilum hefur verið greint frá þessari ákvörðun íslenskra stjórnvalda.

Móðir lýsir eftir dóttur sinni - Týnd í fimm daga

„Hún er búin að vera týnd síðan á laugardag. Þá fór hún að heiman,“ segir Helen Halldórsdóttir. Helen lýsir eftir dóttur sinni, Söru Dögg Helenardóttur, sem hefur verið týnd í fimm daga. Sara Dögg er sextán ára, ljóshærð, um 155 sm á hæð

Þingmenn fá að sjá samkomulagið um Icesave í dag

Icesave samningarnir verða kynntir fyrir alþingismönnum í dag og í kjölfarið verða þeir gerðir almenningi opinberir. Samningsaðilum hefur verið greint frá þessari ákvörðun íslenskra stjórnvalda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Járnfrúin fær járnpinna í handlegginn

Járnfrúin svonefnda og fyrrum forsætisráðherra Breta, Margaret Thatcher, þarf að fara í aðgerð þar sem járnpinni verður settur í handlegg hennar sem brotnaði á dögunum.

Mikill verðmunur á milli sumarnámskeiða fyrir börn

Í yfirliti sem verðlagseftirlit ASÍ tók saman um sumarnámskeið barna kemur fram að mikill verðmunur er á milli námskeiða sem í boði eru. Ljóst er að þetta getur verið talsvert kostnaðarsamt fyrir margar fjölskyldur að skipuleggja dagskrá fyrir börn sín í fjórar til sex vikur á sumri þegar skólar eru í fríi.

Með stolin verkfæri og kannabis

Í morgun var þingfest mál Sýslumannsins á Selfossi gegn 25 ára gömlum karlmanni. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa í fórum sínum verkfæri sem hann mátti vita að væru þjófstolin en einnig fyrir að hafa í fórum sínum tópaksblönduð kannabisefni.

Hraðakstur á Háteigsvegi og við Lönguhlíð

Fjörutíu og sex voru staðnir að hraðakstri á Háteigsvegi í Reykjavík á þriðjudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á þriðjudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eldur kviknaði í bíl við Rauðavatn

Eldur kom upp í vélarrými bíls sem var á leið út úr Reykjavík við Rauðvatn á ellefta tímanum í morgun. Ökumaður og farþegar komust út úr bílnum og náðu með aðstoð vegfarenda að slökkva eldinn með slökkvitæki áður en lögregla koma á staðinn. Bifreið mun vera talsvert skemmd og óökufær.

Víkingaheimar formlega opnaðir á þjóðhátíðardaginn

Víkingaheimar í Reykjanesbæ voru formlega opnaðir í gær á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Til þeirra teljast sýningarskáli Íslendings sem Guðmundur Jónsson arkitekt hannaði og sýningin Víkingar Norður-Atlantshafsins sem sett er upp í samvinnu við Smithsonian-stofnunina í Bandaríkjunum.

Segja þjóðréttarlega stöðu Íslands í hættu

InDefence hópurinn segja ekkert skjól vera í Icesave samningunum og að þjóðréttarleg staða Íslands sé í hættu vegna þeirra. Hópurinn hefur undir höndum samning hollenska ríkisins annars vegar og Tryggingasjóðs innistæðueigenda, fjárfesta og íslenska ríkisins hins vegar um lausn Icesave deilunnar.

Góð hátíðarhöld og eitt innbrot

Hátíðarhöld gærkvöldsins gengu vel fyrir sig að sögn lögreglu en töluverður fjöldi var saman kominn í miðbæ Reykjavíkur í gær í tilefni af þjóðhátíðardeginum. Þeir sem héldu lengst út fóru úr bænum um þrjúleytið en mesti straumurinn út í úthverfin var um eittleytið.

Tvær bifreiðar brunnu til kaldra kola

Tvær bifreiðar brunnu til kaldra kola við Úthlíð í Biskupstungum í gær. Ung stúlka var að fikta með kveikjara inni í bíl en við hlið hennar lá bensíntrekt sem nýlega hafði verið notuð til þess að hella bensíni á tank bílsins og var því blaut og mjög eldfim.

Ákæruvaldið taki þátt í umræðunni

Það er stór spurning hvort ákæruvaldið eigi ekki að taka meiri þátt í umræðu um refsimál, segir sérstakur saksóknari, Ólafur Þór Hauksson: „Það er allavega á hreinu að lögmannastéttin dregur ekkert af sér þar," segir hann.

Árni hefur ekkert að fela

Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segist ekkert hafa að fela. Ástæða þess að hann hafi ekki skráð fjárhags­lega hagsmuni sína á vef Alþingis sé sú að hann hafi „bara enga hagsmuni að skrá og aldrei haft“.

Bíllinn kostaði fimm og hálfa milljón

Stjórnmál Starf fjármálaráðherra, starfsskipulag og umfang er það mikið og þess eðlis að nauðsynlegt er talið að hann hafi bílstjóra og ráðherrabifreið til afnota í þágu embættis síns, segir í svari fjármálaráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins um ráðherrabíla.

Landlæknir varar við fíkniefnastríði

Landlæknir segir að ýmis rök megi færa fyrir því að frjálslyndari stefna um notkun kannabisefna þurfi ekki að leiða til versnandi ástands. Hann vísar í rannsóknir sem bendi til að efnið sé lítt ávanabindandi, miðað við önnur vímuefni.

Vilja aftur búskap á Hrafnseyri

Búnaðarsamband Vestfjarða mun senda forsætisráðuneytinu á næstu dögum áskorun um að stuðla að því að búskapur verði hafinn á nýjan leik á Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar.

Upplýsingum leynt í þágu sérhagsmuna

Dæmi eru um að á undan­förnum árum hafi eignir verið færðar inn á ársreikninga fyrirtækja á hærra verði en innstæða hafi verið fyrir. Þannig hafi verið reynt að leyna upplýsingum í þágu sérhagsmuna og í þágu stjórnenda fyrirtækjanna. Þetta segir Aðalsteinn Hákonarson, forstöðu­maður eftirlitssviðs Ríkis­skattstjóra og endurskoðandi.

Mikilvægt fyrir Ísland að vera í NATO

Varnarmál Lawrence Chalmer er yfirmaður Menntunarstofnunar NATO og er á Íslandi í þessari viku til að eiga fund með þingmönnum og yfirmönnum hjá Varnarmálastofnun Íslands. Þetta er í þriðja sinn sem hann kemur til Íslands. Fréttablaðið tók viðtal við hann um stöðu Íslands innan Atlantshafsbandalagsins og um störf hans í þágu bandalagsins.

Kaupþingsgögnin skiptu litlu

Umræða vegna tafa á afhendingu svokallaðra Kaupþingsgagna, frá ríkissaksóknara til embættis sérstaks saksóknara, er smámál sem slík, segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari vegna bankahrunsins. Engir rannsóknarhagsmunir hafi spillst. Gögnin sem um ræðir fjalla um niðurfellingu á persónulegum ábyrgðum lykilstarfsmanna Kaupþings.

Hátekjuskatturinn miðast við árstekjur

Átta prósenta hátekjuskattur, sem byrjað verður að innheimta um mánaðamótin, leggst á allar launatekjur umfram 700 þúsund krónur, samkvæmt frumvarpi sem lagt verður fyrir þingið á næstu dögum.

Grútarblautum erni bjargað

Ársgömlum erni var bjargað í Nátthaga við Berserkjahraun á Snæfellsnesi síðastliðið föstudagskvöld en hann var ataður grút og greinilega aðframkominn. „Hann sat þarna rétt hjá tjaldi ferðafólks sem síðan tilkynnti lögreglu um málið,“ segir Róbert Arnar Stefánsson, forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands, en hann fór á vettvang, handsamaði örninn og kom honum í búr.

Gjöldin hækki ekki næsta árið

Borgarfulltrúar Vinstri grænna vilja ekki að gjaldskrá Strætós verði hækkuð næsta árið og að haldið verði sérstakt íbúaþing um málefni fyrirtækisins, áður en yfirstandandi stefnumótun um framtíð þess verði kláruð.

Jónína er fundin

Hin fimmtán ára gamla Jónína Jófríður Jóhannesdóttir, sem lögreglan lýsti eftir í gær, er fundinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Fæða uppi á landi

Barnshafandi konur í Vestmannaeyjum eru ósáttar við að skurðdeildinni á sjúkrahúsi bæjarins hafi verið lokað í sumar. Þeim er ráðlagt að fara upp á land til að fæða.

Tíu sæmdir fálkaorðu á Bessastöðum

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi í dag tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þeir sem hlutu fálkaorðuna í dag voru:

Þúsunda mótmæli í Berlín: Íslendingur í hústöku

Listfræðingurinn Símon Birgisson tók fyrr í dag þátt í hústöku stúdenta í Humboldt háskólanum í Berlín. Þúsundir námsmanna um gjörvallt Þýskaland skrópuðu í skólann í dag til að mótmæla meðal annars hækkun skólagjalda og hinu svokallaða BA og Masters kerfi.

Sjá næstu 50 fréttir