Tugmilljóna skattar á hlutabréfahlunnindi stjórnenda Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 19. júní 2009 19:18
Tuga og jafnvel hundruð milljóna skattar verða lagðir á stjórnendur í atvinnulífinu sem keyptu hlutabréf á sérkjörum, samkvæmt nýjum úrskurði yfirskattanefndar. Algengt var að stjórnendur og millistjórnendur víða í fjármálageiranum og mörgum öðrum af helstu fyrirtækjum landsins keyptu hlutabréf í félaginu sem þeir störfuðu hjá og fengu jafnframt sölutryggingu á hlutabréfin til að verja þá tapi auk ábyrgðar á láni fyrir kaupunum. Deilt hefur verið um hvort tekjur sem af þessu mynduðust í góðærinu hafi verið fjármagnstekjur eða launatekjur. Nú hefur yfirskattanefnt fellt um þetta úrskurð þar sem kveðið er á um að í þessum samningum felist tekjur sem beri að skattleggja sem laun. Skiptir þá engu hvort að kaupin hafi verið gerð á kennitölu viðkomandi eða í gegnum einkahlutafélag. Stjórnendur í atvinnulífinu, sem höfðu gríðarmiklar tekjur af hlutabréfaviðskiptum í góðærinu munu því þurfa að greiða viðbótarskatta sem geta numið hundruðum milljóna króna þegar skattlagningin breytist úr því að vera 10% í um það bil 35%. Dæmi eru um að einstaklingar hafi verið með 2 til 300 milljónir í tekjur af svona samningum. Þá er ekki útilokað að það komi til 25% álag vegna vangoldinna skatta. Meðal þeirra sem gerðu svona samninga samkvæmt Kauphöll Íslands eru t.a.m.Kaupþingsstarfsmennirnir Ármann Þorvaldsson, Bjarki H. Diego, Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson, Ingólfur Helgason, Kristín Pétursdóttir og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson. Fleiri sem gerðu svona samninga voru Þórður Már Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri Straums, og nokkrir forstöðumenn félagsins, Róbert Wessman, fyrrverandi forstjóri Actavis, Magnús Jónsson, forstjóri Atorku Group og Reimar Pétursson og Benedikt Olgeirsson, framkvæmdastjórar hjá Atorku Group. Samkvæmt heimildum frá embætti ríkisskattstjóra verður unnið að því að endurákvarða skatta á þessa aðila leiðrétti þeir ekki framtöl sín sjálfir.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri Sjá meira