Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jóhanna skipar starfshóp um siðareglur ráðherra Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 17. mars skipað starfshóp sem ætlað er að semja drög að siðareglum fyrir ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Páll Þórhallsson, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu, er formaður starfshópsins. 8.4.2009 11:22
Vélsleðaslys aukast umfram vélsleðaeign Nokkur aukning hefur átt sér stað á vélsleðaeign landsmanna síðustu 6 árin eða um 35%. Aukning tjóna á sama tíma er 53%. Þó hefur fjöldi slasaðra staðið í stað eða um 37 manns á ári. Alls hafa 183 slasast á vélsleðum þessi 6 ár í 443 tjónum. Það sem af er þessu ári hafa 9 slasast eða látast í 50 tjónum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Forvarnarhúsinu. 8.4.2009 11:19
Kjör neytenda myndu stórbatna við aðild Íslands að ESB Talsmaður neytenda telur réttindi neytenda lítið breytast þó að aukaaðild Íslands að ESB yrði að fullri aðild. Öðru máli gegni hins vegar um kjör neytenda sem myndu stórbatna við aðild sem og möguleikar íslenskra aðila til þess að bæta stöðu neytenda hérlendis. 8.4.2009 10:40
Sjálfstæðismenn gagnrýndu forseta Alþingis Sjálfstæðismenn gagnrýndu fundarstjórn Guðbjarts Hannessonar, forseta Alþingis, í upphafi þingfundar í dag. Þingmennirnir Arnbjörg Sveinsdóttir, Ásta Möller og Pétur Blöndal sögðust öll hafa viljað leggja óundirbúnar fyrirspurnir fyrir ráðherra en sá liður var ekki á dagskrá né sérstök umræða um störf þingsins. Arnbjörg sagði forseta umturna öllum venjum í þinginu með því að hafa hvorugan liðin á dagskrá. 8.4.2009 10:21
Síbrotamaður sem ók á hurðir í gæsluvarðhaldi Þrítugur karlmaður sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær vegna auðgunarbrota, meðal annars eftir að hafa ekið stolnum bíl á dyr verslana, var í dag úrskurðaður í þriggja vikna síbrotagæslu. 8.4.2009 09:51
Þakkaði forsetanum fyrir pólska lánið Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, þakkaði Lech Kaczynski, forseta Póllands, á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins um síðustu helgi fyrir drenglyndi Pólverja þegar bankahrunið brast á í haust. 8.4.2009 09:39
FL Group styrkti ekki Sjálfstæðisflokkinn ári eftir risastyrk FL Group styrkti ekki Sjálfstæðisflokkinn árið 2007. Fram kom í fréttum okkar í gærkvöld að félagið lagði þrjátíu milljónir inn á reikning flokksins í lok árs 2006. Frjálsyndi flokkurinn fékk heldur ekki styrk frá FL Group árið 2007. 8.4.2009 09:34
Skora á stjórnvöld að tryggja sumarannir Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, taka undir þá kröfu stúdenta að háskólar landsins opni dyr sínar til að mæta atvinnuleysi námsmanna í sumar. Framhaldsskólar þurfa sömuleiðis að koma til móts við nemendur sína nú meðan tímabundið atvinnuleysi er mest. Ungir jafnaðarmenn segja að hið opinbera tapar miklum peningum á að bregðast ekki við með þessum hætti. Þá mótmæla Ungir jafnaðarmenn misrétti milli nemenda einkarekinna og opinberra háskóla. 8.4.2009 09:16
Við höfum reynsluna Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, sagði Sjálfstæðisflokkinn bera mikla ábyrgð með innleiðingu frjálshyggju sem þróast hafi í taumlausa græðgisvæðingu og gróðadýrkun, ofurlaun, bruðl og siðleysi. 8.4.2009 06:45
Fundu kannabis í bíl á Blönduósi Um klukkan tíu í gærkvöldi var bifreið á norðurleið stöðvuð af lögreglunni á Blönduósi er hún var á leið í gegnum bæinn. Ástæða stöðvunarinnar var reglubundið „tékk" eins og segir í tilkynningu. Í bílnum fannst hinsvegar töluvert magn af fíkniefnum og sennilega um einn stærsta fíkniefnafund bæjarins að ræða hingað til. 8.4.2009 06:18
Þingið þarf að afsala sér valdi tímabundið Þar sem Alþingi hefur gert margar árangurslitlar tilraunir til að breyta stjórnarskránni á síðustu 40-50 árum er nauðsynlegt að taka stjórnarskrárgjafarvaldið tímabundið úr höndum þingsins og færa til þjóðarinnar. 8.4.2009 05:45
Skuldir sliga heimilin „Það er grafalvarleg staðreynd að 50 til 100 hafa að jafnaði misst atvinnu á hverjum einasta degi síðustu vikur og mánuði,“ sagði Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, sem sagði atvinnuleysi átján þúsund manns óviðunandi og kröfur um róttækar aðgerðir stjórnvalda því eðlilegar. Stuðla yrði að mannfrekum framkvæmdum og huga að fjölbreyttum atvinnutækifærum. 8.4.2009 04:45
Stoðir: Upplýsingar ekki frá okkur komnar „Þessar upplýsingar eru ekki frá okkur komnar. Ég hef enga vitneskju um þetta mál og get því hvorki staðfest það né neitað,“ segir Júlíus Þorfinnsson, talsmaður Stoða, um 30 milljóna króna styrk sem FL Group greiddi til Sjálfstæðisflokksins undir lok ársins 2006. 7.4.2009 21:49
Vilja afnema verðtryggingu um næstu áramót Guðjón Arnar Kristjánsson segir að Frjálslyndi flokkurinn hafi varað við verðtryggingu lána fyrir kosningarnar 2007. 7.4.2009 20:55
Ökufantur: „Ég treysti bara ekki lögreglunni" „Ég var á þunglyndislyfjum en ég má aka hvaða bifreið sem er á þeim," segir tuttugu og fimm ára gamall maður sem var handtekinn í gær eftir mikla eftirför lögreglu sem spannaði allt frá Bústaðavegi langt inn í Grafavog. Maðurinn var handtekinn í kjölfarið og hefur nú verið kærður fyrir margvísisleg umferðalagabrot auk þess að stofna almenningi í hættu. Sjálfur segist hann hafa ekið á brott eftir að lögreglan skipaði honum að fara yfir í lögreglubifreið, án þess að tiltaka hvers vegna. 7.4.2009 20:25
Þurfum aukna tekjuöflun og aðhald í ríkisrekstri Steingrímur Sigfússon fjármálaráðherra sagði að starfsöm og samhent ríkisstjórn sem tók við 1. febrúar hefði komið miklu í verk eftir að nýfrjálshyggja Sjálfstæðisflokksins hafði beðið skipbrot eftir átján ár. 7.4.2009 20:43
Aldrei mikilvægara en nú að kveða á um þjóðareign náttúruauðlinda Jóhanna Sigurðardóttir sagði við eldhúsdagsskrárumræður að ríkisstjórnin hefði ekki tekið við góðu búi en tekist hefði að snúa vörn í sókn 7.4.2009 20:20
Lögreglan lýsir eftir sextán ára pilti Pilturinn strauk frá heimili sínu síðastliðinn sunnudag og hefur ekki sést síðan. Í tilkynningu frá lögreglu segir að pilturinn sé 16 ára gamall, 190sm á hæð, grannvaxinn og ljósskolhærður. 7.4.2009 20:17
Einungis tveir mæla með samþykkt stjórnskipunarfrumvarpsins Bjarni Benediktsson segir það dapurlegt að síðustu daga á Alþingi hafi ríkisstjórnin reynt að knýja fram breytingar á stjórnarskránni án þess að samstaða væri um þaði á Alþingi í fyrsta skipti í 50 ár. 7.4.2009 20:12
Dópsali handtekinn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í fjölbýlishúsi í Hlíðunum í Reykjavík eftir hádegi í dag. Um var að ræða um 50 gr. af marijúana en talið er að það hafi verið ætlað til sölu. Húsráðandi, piltur um tvítugt, hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. 7.4.2009 22:24
40 kannabisplöntur í heimahúsi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í miðborginni eftir hádegi í dag. 7.4.2009 21:52
Hefur áhyggjur af stöðu námsmanna Birkir J. Jónsson segir það grafalvarlegt mál að 50 – 100 manns hafi misst vinnuna á hverjum degi undanfarna mánuði og að 18 þúsund manns séu 7.4.2009 20:35
Olía gæti fundist undir Íslandi Olíu gæti verið að finna undir norðausturhluta Íslands, að mati jarðfræðings hjá Olíustofnun Noregs. Hann segir að bora verði djúpt undir þykk hraunlög til að finna það áhugaverðasta. 7.4.2009 18:45
Sýknaður í Hæstarétti: „Réttlætið sigraði að lokum“ Anton Kristinn Þórarinsson var í dag sýknaður í Hæstarétti af fíkniefnainnflutningi en hann hafði áður verið sakfelldur ásamt Jóni Halldóri Arnarssyni fyrir innflutning á samtals 701,54 grömmum af kókaíni í Héraðsdómi. Efnin voru flutt í tvennu lagi til Íslands frá Hollandi um Danmörku, ætluðu til söludreifingar hér á landi. Jón Halldór játaði aðild sína að innflutningnum með þeim athugasemdum að hann hefði ekki lagt á ráðin um innflutninginn með Antoni. 7.4.2009 17:25
Sjálfstæðismenn leggja til sáttaleið „Sterk krafa er um það í samfélaginu að þingmenn snúi bökum saman og móti lausnir og úrræði fyrir heimili og fyrirtæki í vanda. Okkar mat er að þetta verkefni sé það mikilvægasta sem liggi fyrir þinginu um þessar mundir,“ segir í opnu bréfi til Guðbjarts Hannessonar sem allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins skrifa undir. 7.4.2009 16:58
Starfshópur um aukinn hlut kvenna í sveitarstjórnum fundaði Starfshópur sem samgönguráðherra skipaði nýverið sem leggja á fram tillögur um aðgerðir stjórnvalda til að jafna betur stöðu kynjanna í sveitarstjórnum kom næstu sveitarstjórnarkosningar kom saman til fyrsta fundar í dag. 7.4.2009 16:53
Þingmenn allra flokka einhuga um skýrslu bresku þingnefndarinnar Kristrún Heimisdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum aðstoðarmaður utanríkisráðherra, sagði að skýrsla fjármálanefndar breska þingsins væri lýsing á beinni árás bresku ríkisstjórnarinnar á grunnstoðir íslensks samfélags. „Þetta er móralskur sigur,“ sagði varaþingmaðurinn. 7.4.2009 15:39
Umræður um stjórnarskrá skammt á veg komnar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra sakaði sjálfstæðismenn um málþóf á vikulegum blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í Þjóðmenningarhúsinu fyrr í dag. Sagði hún að umræða um stjórnskipunarlög hafa tekið 34 klukkustundur og sjálfstæðismenn hefðu talað í 75% af þeim tíma. Sagði hún ræður sjálfstæðismanna einnkennast af endurtekningum og greinilegt væri að þeir beittu málþófi. 7.4.2009 15:22
Niðurskurði á framlögum til mannaflsfrekra framkvæmda mótmælt Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir að það hafi vakið athygli að Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, hafi varið 265 milljón króna niðurskurð á framlögum til mannaflsfrekra viðhaldsframkvæmda. Rætt var um atvinnumál og stöðu þeirra í Reykjavík á fundi borgarstjórnar í dag. 7.4.2009 15:14
Heilbrigðisstofnunin í Eyjum segir upp starfsfólki Starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar í Vestmannaeyjum fékk afhent uppsagnarbréf í síðustu viku en uppsögnin er liður í niðurskurði sem stofnunin glímir við um þessar mundir. Öllum var boðinn nýr samningur með 5% skertu starfshlutfalli. Þetta kemur fram í frétt Eyjafrétta. 7.4.2009 14:25
Nýir skrifstofustjórar í samgönguráðuneytinu Kristján Möller, samgönguráðherra, hefur skipað tvo nýja skrifstofustjóra í samgönguráðuneytinu til næstu fimm ára. Karl Alvarsson, lögfræðingur, verður skrifstofustjóri samgönguskrifstofu og Sigurbergur Björnsson, verkfræðingur, verður skrifstofustjóri samskiptaskrifstofu. 7.4.2009 14:11
Endurtekningar sjálfstæðismanna - frumvarpið rætt í 34 klukkustundir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að umræða um frumvarp forystumanna allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins til stjórnskipunarlaga hafa tekið 44 klukkustundir. Þar af hafi sjálfstæðismenn talað í 75% af þeim tíma. Þetta kom fram í máli Jóhönnu á fundi með blaðamönnum í dag. 7.4.2009 14:06
Helga bendir á ólíka sýn Tryggva Þórs Helga Vala Helgadóttir, laganemi og Samfylkingarkona, gerir yfirlýsingar Tryggva Þórs Herbertssonar, frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi efnahagsráðagjafa forsætisráðherra, að umfjöllunarefni á bloggsíðu sinni í dag. 7.4.2009 13:47
Brown fær bréf frá ríkisstjórninni Ríkisstjórn Íslands sendi Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands bréf í morgun í tengslum við niðurstöðu fjármálanefndarinnar á breska þinginu. Nefndin koms meðal annars að þeirri niðurstöðu að beiting hryðjuverkalaganna gegn Íslendingum á sínum tíma hafi verið mjög gagnrýniverð aðgerð. 7.4.2009 13:34
Eignir sökudólganna upp í skuldir á undan eignum almennings Hagfræðingarnir Gunnar Tómasson og Ólafur Ísleifsson mættu í Bítið í morgun og ræddu Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og stöðu ríkisins og heimilanna. Þeir félagar eru báðir fyrrverandi starfsmenn AGS og voru þeir nokkuð sammála um það að þeir, Michael Hudson og John Perkins, sem verið hafa hér á landi undanfarna daga og gagnrýnt AGS harðlega, hafi tekið of djúpt í árinni. Ólafur sagðist alls ekki getað tekið undir þær fullyrðingar að AGS væri að vinna gegn hagsmunum Íslendinga. 7.4.2009 13:17
Þingmaður vill fresta kosningunum Grétar Mar Jónsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, vill fresta þingkosningunum sem fram fara 25. apríl um mánuð. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í dag. Hann sagði sérkennilegt ástand í þinginu og benti á að þingmenn hafi ekki haft tækifæri til að fara út í kjördæmin og kynna sig. 7.4.2009 13:09
Fagfélagið gefur Krabbameinsfélaginu milljón Í gær afhenti Fagfélagið Ragnheiði Alfreðsdóttur, forstöðumanni Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, eina milljón króna til styrktar átakinu Karlmenn og krabbamein. Fagfélagið er stéttarfélag sem varð til í desember þegar Trésmiðafélag Reykjavíkur og Félag byggingamanna Eyjafirði runnu saman. 7.4.2009 12:43
Sagði Kjartan gáfaðan og uppskar gagnrýni Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, sagði Kjartan Ólafsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, meðal rökföstustu og gáfuðustu snillinga á þingi í umræðum um störf Alþingis í dag. Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, og Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndu Mörð fyrir orðin. 7.4.2009 12:26
Bannað verður að veðsetja náttúruauðlindir Bannað verður að veðsetja náttúruauðlindir, samkvæmt auðlindaákvæði í frumvarpi um stjórnarskrá. Lögfræðingur segir að þetta hafi þó ekki áhrif á veðsetningu fiskveiðikvóta. Hann sé þegar í einkaeign. 7.4.2009 12:19
Óvíst hver á að reka tónlistarhúsið Áætlað er að tónlistar og ráðstefnuhúsið verði opnað eftir tvö ár. Það á hins vegar ekki að ráðast fyrr en eftir fimm ár hver á að reka eða eiga húsið. Viðbúið er að stór og djúpur grunnur við hlið tónlistarhússins verði opinn næstu árin. 7.4.2009 11:52
Reyna aftur að breyta dagskrá þingsins Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins flutti á þingi í dag tillögu um að gerð yrði sú breyting á dagskrá þingsins að frumvarp um greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna yrði sett fyrst á dagskrá í dag. 7.4.2009 11:36
Ræða skýrslu fjármálanefndar breska þingsins Umræða utan dagskrár fer fram á Alþingi í dag um skýrslu fjármálanefndar breska þingsins um áhrif aðgerða bresku stjórnarinnar á fall íslensku bankanna. 7.4.2009 11:09
Geir í framhaldsmeðferð í Amsterdam Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, gekkst í dag undir framhaldsmeðferð á vélinda vegna þess meins sem hann greindist með á liðnum vetri. Á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins segir að meðferðin hafi farið fram á háskólasjúkrahúsinu í Amsterdam og að hún hafi gengið að óskum. Þá segir að gert sé ráð fyrir því að Geir þurfi að fara í sambærilega meðferð eftir þrjá mánuði. 7.4.2009 10:39
Ökuníðingurinn yfirheyrður í dag Ökuníðingur og farþegi fólksbifreiðar sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi á Vesturlandsvegi eftir rúmlega tólf mínútna eftirför verða yfirheyrðir síðar í dag. Fjórir lögreglumenn slösuðust minniháttar á meðan á eftirförinni stóð og í lok hennar. 7.4.2009 10:30
Staða efnahagsmála verri en talið var Horfur í efnahagsmálum þjóðarinnar voru verri á vaxtaákvörðunardegi Seðlabankans 19. mars en við stýrivaxtaákvörðun 29. janúar. 7.4.2009 08:45