Innlent

Geir í framhaldsmeðferð í Amsterdam

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, gekkst í dag undir framhaldsmeðferð á vélinda vegna þess meins sem hann greindist með á liðnum vetri. Á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins segir að meðferðin hafi farið fram á háskólasjúkrahúsinu í Amsterdam og að hún hafi gengið að óskum. Þá segir að gert sé ráð fyrir því að Geir þurfi að fara í sambærilega meðferð eftir þrjá mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×