Vonar að eignir gangi upp í skuldirnar 28. nóvember 2008 06:30 Björgvin G. Sigurðsson. „
Sjóðurinn gerir ráð fyrir ýmsum breytum í sinni áætlun sem hann segir að sé ekki endilega víst að gangi eftir. Þeir taka þessa tölu sjálfsagt til að vera ekki um of bjartsýnir og gera kannski ráð fyrir hinu versta," segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra. Fram kemur í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) sem birt var í fyrradag að hann geri ráð fyrir að um helmingur af eignum bankanna ytra dugi fyrir innlánum sem íslenska ríkið, og þar með skattgreiðendur, þarf að ábyrgjast. Samkvæmt mati sjóðsins yrði þar um að ræða um 245 milljarða króna, eða hátt í 800 þúsund krónur á hvern Íslending. Þetta er einkum vegna Icesave reikninga Landsbankans. „Við auðvitað vonum að eignirnar gangi meira eða minna upp í þetta og ég trúi því að eignir Landsbankans muni ganga upp í þessar skuldir. Þannig að ég held að mat sjóðsins sé heldur svartsýnt og ég held að það yrði óviðunandi ef það gengi eftir," segir Björgvin. Björgvin segir sjóðnum skylt að gera áætlun. Hann áætli ýmislegt fleira, eins og um verðbólgu. „Ég geri ekki athugasemdir. Þetta er bara mat miðað við það sem liggur fyrir núna. Það er ekki byggt á neinu sérstöku öðru, en mat á eignum bankanna er mjög erfitt núna," segir Björgvin, spurður um hvort AGS hafi ekki í raun sett nokkurs konar verðmiða á eignir bankanna ytra. Gylfi Magnússon dósent segir sjóðinn gefa sér þessa tölu sem mat á horfum fyrir Ísland. Þetta sé þó ekki beinlínis sett fram sem mat á því hvert verð eignanna verði þegar þar að kemur. Sér þyki mat sjóðins þó heldur svartsýnt. „Ég hygg að sjóðurinn reyni að hafa vaðið fyrir neðan sig í verðmati á brunarústum. Það er betra að verðmeta þær of lágt en of hátt," segir Þórólfur Matthíasson prófessor.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira